Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Mikilvægt að þurrka sér rétt til að forðast þvagfærasýkingar“

Anna Eðvalds­dóttir ljós­móðir hefur und­an­farin ár tekið eftir mik­illi aukn­ingu á þvag­færa­sýk­ingum hjá konum á barn­eign­ar­aldri og jafn­vel allt niður í leik­skóla­aldur. Aðal­á­stæða aukn­ing­ar­innar telur Anna vera að konur þurrki sér ekki rétt eftir að þær eru búnar að pissa.

„Mikilvægt að þurrka sér rétt til að forðast þvagfærasýkingar“
Anna Jónína Eðvalds­dóttir ljós­móðir. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

„Ég hef tekið eftir því bæði í vinn­unni minni á með­göngu- og sængu­legu­deild­inni á Land­spít­al­anum og í heima­þjón­ustum að fleiri konur eiga sögu um end­ur­teknar þvag­færa­sýk­ingar, blöðru­bólgu og jafn­vel nýrna­sýk­ingar,“ segir Anna sem hefur verið ljós­móðir í 24 ár. 

„Síð­ast­liðin ár hef ég mark­visst spurt kon­urnar sem ég sinni og eru með þessa sögu hvernig þær þurrki sér eftir að þær eru búnar að pissa. Hvort þær fari á milli fóta og þurrki eða hvort þær fari frá annarri hvorri hlið­inni og þurrki. Nið­ur­staðan er heldur betur athygl­is­verð því nán­ast und­an­tekn­ing­ar­laust eru konur sem eru með sögu um end­ur­teknar e-coli-bakt­er­íur í þvagi að þurrka sér vit­laust. Sem sagt, þær eru að fara með papp­ír­inn á milli fóta og halda að þær séu ekki að fara með papp­ír­inn nema bara yfir þvag­rás­ina og alls ekki aftar, en það er bara oft þannig að papp­ír­inn fer aðeins lengra en hann átti að fara og þá draga þær e-coli-bakt­er­í­urnar með papp­írnum að eða yfir þvag­rás­ina þegar þær „skoða“ papp­ír­inn eftir að þær eru búnar að þurrka sér. Ef bakt­er­ían hefur einu sinni kom­ist í þvag­rás­ina og upp í blöðru, þá er eins og þvag­rásin sé farin að þekkja þessa bakt­eríu og býður hana vel­komna næst þegar hún á „leið fram hjá“.“

Nið­ur­staðan er heldur betur athygl­is­verð því nán­ast und­an­tekn­ing­ar­laust eru konur sem eru með sögu um end­ur­teknar e-coli-bakt­er­íur í þvagi að þurrka sér vit­laust.

Nauð­syn­legt að kenna strax í leik­skólum
Það er upp­lifun Önnu að konur séu almennt ekki með­vit­aðar um mik­il­vægi þess að skeina sig rétt.

„Þegar ég var lítil stelpa þá var lögð mikil áhersla á að passa að fara aldrei með papp­ír­inn á milli fóta þegar ég þurrk­aði mér eftir að ég var búin að pissa. Núna finnst mér konur verða dálítið hissa þegar ég spyr þær um þetta, því þær hafa bara aldrei heyrt að þetta gæti verið ástæðan fyrir því að þær fá enda­lausar blöðru­bólgur. Það er auð­sjá­an­lega lítið rætt eða kennt hvorki í skólum né leik­skólum, hversu mik­il­vægt er að aðskilja alger­lega svæðið í kringum enda­þarm­inn, þar sem e-coli-bakt­er­í­urnar eru, þær geta líka verið á stærra svæði í kringum enda­þarm­inn en að maður heldur. Þess vegna eiga konur alltaf að þurrka frá þvag­rás og aft­urá­bak en alls ekki frá þvag­rás og framá­við, því þá er hætta orðin á að e-coli-bakt­er­íur nái í blá­end­ann á papp­írnum og slæð­ist yfir þvag­rás­ar­svæðið þá er leiðin greið upp í þvag­færin.“

Anna segir að átak sé nauð­syn­legt í þessum fræðum og þar þyrfti að byrja strax á leik­skól­unum.

„Ég veit það með vissu að í mörgum leik­skólum er litlu stelp­unum kennt að þurrka sér þannig að þær fara með papp­ír­inn á milli fóta og þerra pissið. Ef við komum þessu strax í ferli, frá því stelpur byrja að þurrka sér sjálfar, eftir að þær eru búnar að pissa, þá held ég að við gætum sparað mikið í sýkla­lyfja­notkun. Ég er sann­færð eftir þessa eft­ir­fylgni mína síð­ast­liðin tvö ár að sýk­ing­ar­hætta yrði miklu minni ef við myndum kenna stelpum og konum að þurrka sér rétt,“ segir Anna. 

Ef við komum þessu strax í ferli, frá því stelpur byrja að þurrka sér sjálfar, eftir að þær eru búnar að pissa, þá held ég að við gætum sparað mikið í sýkla­lyfja­notkun.

Konur sem breyttu skeini­að­ferð hættu að fá sýk­ingar
Hún hefur verið með konur í heima­þjón­ustu eftir barns­burð sem hafa verið á sýkla­lyfjum nokkrum sinnum á ári vegna sýk­inga í þvag­færum og fékk að fylgja nokkrum þeirra eftir þegar þær breyttu um aðferðir við að þurrka sér eftir að þær voru búnar að pissa.

„Það kom mér bara ekk­ert á óvart að þvag­færa­sýk­ing­arnar sem kon­urnar fengu nokkrum sinnum á ári höfðu bara ekki komið aftur eftir að þær breyttu um aðferð við að þurrka sér eftir þvag­lát. Auðvitað er það líka þekkt að kyn­líf er einn þáttur í e-coli-sýk­ingum í þvag­færum en ég held að ég geti full­yrt að ef konur passi upp á hvernig þær þurrki sér þá muni sýkla­lyfja­notkun vegna þvag­færa­sýk­inga snar­minnka. Því vil ég endi­lega skapa umræðu um þetta,“ segir Anna.

Hún bætir þó við að lokum að auð­vitað séu alltaf ein­hverjar sem sleppi þó þær hafi alltaf þurrkað sér fram á við. „En eg tel þær bara heppnar að hafa ekki sýkst. Við erum mis­með­tæki­legar fyrir sýk­ingum og ef við fáum fyrstu sýk­ing­una, vilja gjarnan fleiri fylgja i kjöl­farið. Allar konur ættu að hafa þetta í huga ef þær hafa ein­hvern tím­ann fengið þvag­færa­sýk­ingu.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi