Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Búinn að afplána mitt í pólitíkinni“

Bræðslan, sem hefur fest sig í sessi sem einn af helstu tón­list­ar­við­burðum árs­ins, hófst í þess­ari viku en þetta er í fimmt­ánda sinn sem hún fer fram á Borg­ar­firði eystra. Fjöldi skemmti­krafta kemur fram á Bræðsl­unni. Þar á meðal hljóm­sveitin Doctor Spock sem stígur á stokk í kvöld og seg­ist for­sprakk­inn Óttarr Proppé hlakka til að trylla lýð­inn.

„Búinn að afplána mitt í pólitíkinni“
Doctor Spock spilar á Bræðsl­unni í kvöld. Spurður hvort eitt­hvað spenn­andi sé á döf­inni hjá sveit­inni segir Óttarr alltaf nóg á döf­inni

„Það leggst mjög vel í mig,“ segir Óttar, spurður hvernig legg­ist í hann að troða upp. „Spockinn er svona skepna sem er mjög gott að viðra og virkar aldrei betur enn á nýjum slóðum og aðeins öðru­vísi. Við höfum alltof lítið spilað síð­ustu árin og er farið að klæja í þennan sirkus.“

Að hans sögn er þetta í fyrsta sinn sem bandið kemur fram á Bræðsl­unni. „Við höfum spilað í hjól­hýsi í Vest­manna­eyjum, á fót­bolta­velli í Færeyjum og aftan í flutn­inga­bíl á Hólms­heiði en þetta verður eitt­hvað alveg nýtt. Það hefur alltaf verið æðis­leg til­finn­ing að ímynda sér að manni yrði boðið að spila þarna og sjá fyrir sér dýrð­ina. Loks ræt­ist gam­all draumur,“ segir hann og tekur fram að hann hafi ekki einu sinni komið á Bræðsl­una sem tón­leika­gestur. „Ég hef hins vegar einu sinni komið til Borg­ar­fjarðar áður og þetta er ein­hver fal­leg­asti staður á land­inu,“ bætir hann við. „Þá hitti ég ein­hverja krakka og spurði hvort það væri hægt að kaupa kaffi. „Nei, amma er ekki heima,” svör­uðu þau. Við vonum bara að amman verði á staðnum núna,“ segir hann kím­inn. „Treystum reyndar á það því kaffi­laus verður Spockinn ansi hastur læf.“

„ ég er búinn að afplána mitt í póli­tík­inni og þjóna mínum til­gangi þar og er svo glaður með að hafa end­ur­heimt kenni­töl­una mína að ég læt hana ekki svo glatt af hendi aftur.“

Und­an­farið hefur lítið farið fyrir Doctor Spock og aðspurður út í það segir Óttar að það sé þetta helst að með­lim­irnir hafi elst og lítið sem ekk­ert selst. „Það er lang­besta staðan fyrir hljóm­sveit, autt blað. Okkur klæjar mikið að spila meira og semja,“ segir hann en sveitin sendi síð­ast frá sér nýja plötu í fyrra. „Við héldum upp á það að ég slapp úr póli­tík­inni og ráðu­neyt­inu í fyrra með því að taka upp plöt­una Leður. Við höfum alltof lítið fylgt henni eftir þannig að við tökum slatta af því efni í kvöld. Það er ann­ars orðið svo langt síðan við vorum hvað aktíf­astir að þegar við tökum gam­alt efni verður það eig­in­lega nýtt við remb­ing­inn við að rifja það up. Síðan semjum við alltaf eitt­hvað á svið­inu. Það er nýtt efni sem eng­inn sér fyrir nema að það verður örugg­lega allt eignað Sálinni hans Jóns míns að gömlum Spock-sið. Við ættum auð­vitað að vera að kynna lögin af vænt­an­legri plötu en það verður aðeins að bíða.“

Þannig að ný plata er í vinnslu? „Við erum búnir að borga fyrir stúd­íóið þannig að fljót­lega pöntum við tíma og förum svo að semja lög.“

Vonar að konurnar taki við í pólitíkinni

En hvað ertu ann­ars búinn að vera að bralla fyrir utan tón­list­ina? „Ég er kom­inn aftur í bóka­brans­ann og er versl­un­ar­stjí­ori í Bóksölu stúd­enta á Háskóla­torgi,“ segir hann. „Það er góður vinnu­staður og ynd­is­legur bransi. Bækur laða að sér gott fólk, spek­úlanta og hæfi­lega mikið af furðu­fuglum. Hér hittir maður alla og allskyns og lærir eitt­hvað nýtt á hverjum degi.“ Hann segir að í bóka­búð afsann­ist því það bull að það sé ekk­ert nýtt undir sól­inni. Það sé alltaf eitt­hvað nýtt undir þeirri stjörnu.

Þig langar ekk­ert aftur í póli­tík­ina? „Nei veistu, ég er búinn að afplána mitt í póli­tík­inni og þjóna mínum til­gangi þar og er svo glaður með að hafa end­ur­heimt kenni­töl­una mína að ég læt hana ekki svo glatt af hendi aftur. Það er komið nóg af gul­hærðum vit­les­ingum í póli­tík. Ég vil gera mitt til þess að bæta ekki í þá flóru,“ segir hann, greini­lega dauð­lif­andi feg­inn að vera laus. „Ég vona eig­in­lega að stelp­urnar taki við þessu á sem flestum sviðum. Það væri lang­mest vit.“

Mætir vel undirbúinn á svæðið

Fyrir utan að vinna í Bók­söl­unni og að tón­list­inni seg­ist Óttarr síðan alltaf vera að vinna að ein­hverju sem teng­ist listum. „Að minnsta kosti óbeint ef ekki beint. Eftir ráð­herramara­þonið og allt tíma­leysi síð­ustu árin var orðið ansi djúpt á manni,“ segir hann. „Þessi miss­erin fara kraft­arnir mest í að safni í sarp­inn svo maður hafi ein­hverju að gjósa. Ég finn að það er far­inn að aukast þrýst­ing­ur­inn og mæl­ast meiri leiðni í mér með hverjum deg­inum.“

Talið berst þá aftur að fyr­ir­hug­uðum tón­leikum sveit­ar­innar í kvöld og segir Óttar með­limi hennar mæta vel und­ir­búnir á svæðið. „Það eina sem er óákveðið er hvernig við verj­umst lund­anum á svið­inu. Okkur skilst að það sé allt vað­andi í lunda þarna og hann lað­ast sér­stak­lega að blíðum tónum og fal­legum klæðum eins og kría að hávöxnum og sköll­óttum. Við munum ann­að­hvort spila í lunda­heldum grímum, höf­uð­búrum og/eða með mjög barða­stóra hatta til að rugla fug­inn í rím­inu. Þetta getur ekki klikkað,“ segir hann léttur í lund.

Eitthvað sem þú vilt segja í lokin við vænt­an­lega tón­leika­gesti kvölds­ins í kvöld? „Þeir sem eru með óska­lög geta lagt beint inn á okkur í Spari­sjóði Garða­bæjar og nágrennis eða hent gull­molum á sviðið. Við munum síðan árita lík­ams­parta beint eftir tón­leik­ana og sitja fyrir með smá­börnum á flug­vell­inum á Egils­stöðum 20 mín­útur fyrir brott­för á sunnu­dag­inn. Ást og fiður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi