Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sex ára Youtube-stjarna kaupir fasteign fyrir milljarð

Sex ára Youtube-stjarna kaupir fasteign fyrir milljarð
Youtube-stjarnan Boram.

Fasteignakaup sex ára suður-kóreskrar Youtube-stjörnu hafa vakið heimsathygli, en kaupverðið nam hvorki meira né minna en einum milljarða króna.

Hin korn­unga Boram er með 30 milljón fylgj­endur á Youtube og hefur frægð hennar gefið afar vel í aðra hönd. Tekjur hennar renna í fjöl­skyldu­fyr­ir­tækið Boram Family sem stýrt er af for­eldrum hennar. CNN greinir frá því að fyr­ir­tækið hafi nýverið fjár­fest í fimm hæða húsi í hinu róm­aða Gangnam-hverfi í Seúl og var kaup­verðið 9,5 millj­arðar won, eða sem nemur 975 millj­ónum króna.

Boram heldur úti tveimur stöðvum á Youtube. Annars vegar stöð þar sem hún fer yfir og gefur leik­föngum ein­kunn og eru fylgj­endur hennar þar 13,6 millj­ónir. Hins vegar heldur hún úti sér­stöku vid­eo­bloggi þar sem hún sýnir alls kyns upp­á­tæki. Vin­sælasta klippan hennar hefur fengið yfir 376 milljón áhorf. Mynd­bandið er sex og hálf mín­úta að lengd og sýnir Boram og vini hennar borða núðlur.

En sum mynd­böndin sem hún hefur birt eru umdeild og hafa gras­rót­ar­sam­tök lýst því yfir að þau kunni að hafa slæm áhrif á þroska ungra barna. Þannig sýnir eitt mynd­band Boram stela pen­inga úr veski föður síns og keyra bíl á götum úti. Samtökin Save the Children hafa meira að segja kært mynd­bönd hennar til lög­reglu og voru for­eldrar hennar skikk­aðir á nám­skeið um barna­mis­notkun.

Barna­mynd­bönd á Youtube eru risa­stór iðn­aður og hafa barna­stjörnur sprottið upp eins og gorkúlur. Tekju­hæsta barna­stjarnan er hinn 7 ára Ryan Kaji, en tekjur hans í fyrra voru metnar á 22 millj­ónir doll­ara. Hann er með tæp­lega 21 milljón fylgj­enda.

Tekj­urnar koma af aug­lýs­ingum sem sýndar eru áður en mynd­böndin hefj­ast og frá stór­fyr­ir­tækjum sem borga stjörn­unum fyrir að fjalla um eða sýna vörur þeirra. Vin­sældir þess­ara Youtube-barna hafa vakið upp áhyggjur af því að barn­a­níð­ingar noti mynd­böndin til að kom­ast í tæri við börn og til að sporna við þessu ákvað Youtube að loka fyrir ummæli við mynd­bönd sem skarta börnum.   

Hér að neðan má horfa á vin­sælasta mynd­band Boram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi