Franski hönnuðurinn Sonia Rykiel stofnaði tískuhúsið í mái árið 1968 og var yfirhönnuður til ársins 1995. Merkið naut mikilla vinsælda á sínum tíma.
Yfirhönnuður merkisins, Julie de Libran, sagði upp starfi sínu í mars á þessu ári. Reksturinn hefur gengið illa undanfarin ár og í ljós kom að tískuhúsið færi í þrot þegar ekki tókst að finna fjárfesta.
Sonia lést fyrir tveimur árum, þá 86 ára, eftir baráttu við parkinson sjúkdóminn. Hún var oft sögð drottning prjónsins.

Rendur voru einkennismerki Soniu Rykiel, hér má sjá Audrey Hepburn í peysu frá Soniu Rykiel.við































Athugasemdir