Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

16 ára og fyrst kvenna til að ganga hringinn í kringum landið

Hin 16 ára gamla Eva Bryndís Ágústs­dóttir er nú komin til Borg­ar­ness í göngu sinni hring­inn í kringum landið og þar með búin að ganga um 1300 kíló­metra síðan hún lagði af stað úr Hafn­ar­firði þann 16. júní síð­ast­lið­inn. Til­gangur göng­unnar er að safna fé fyrir Barna­spít­al­ann en bróðir Evu er lang­veikur og því verið við­loð­andi spít­al­ann frá fæð­ingu.

16 ára og fyrst kvenna til að ganga hringinn í kringum landið
Mynd/Aðsend|Eva segir að það sé frá­bært að upp­lifa landið á þennan hátt og hún hafi séð margar leyndar perlur.|Eva segir að það sé frá­bært að upp­lifa landið á þennan hátt og hún hafi séð margar leyndar perlur. |Móðir Evu Bryn­dísar fylgir henni alla leið­ina og þær eru með fína hvíld­ar­að­stöðu í bílnum.|Veðrið hefur leikið við Evu Bryndísi á leið­inni. Hér er hún við Jök­ulsár­lón.

„Mig hefur alltaf dreymt um að gera eitt­hvað „klikkað“ og í des­em­ber síð­ast­liðnum sá ég mynd­skeið af manni sem synti í kringum Bretland. Það fannst mér ótrú­legt og hugs­aði með mér að synda sjálf í kringum mitt eigið land en ég átt­aði mig strax á því hversu léleg hug­mynd það væri. En hvað með að ganga, hugs­aði ég svo með mér. Mér finnst gaman að ganga og hef alltaf verið mikið á ferð­inni, það væri því miklu betri hug­mynd en að synda,“ segir Eva þegar hún er spurð hvernig hug­myndin að því að ganga hring­inn í kringum landið kvikn­aði. Eva verður 17 ára á þessu ári og býr í Hafn­ar­firði ásamt for­eldrum sínum og systk­inum.

„Að alast upp með lang­veiku systk­ini er erfitt, ég fékk aldrei athygl­ina sem ég þurfti.“

„Ég er að safna fyrir Barna­spít­al­ann því Brynjar bróðir minn er lang­veikur, með hjarta­galla og hefur þegið aðstoð frá Barna­spít­al­anum allt sitt líf. Þessi pen­ingur er hugs­aður sem þakk­ar­gjöf frá okkur fjöl­skyld­unni fyrir allt það sem spít­al­inn hefur gert fyrir Brynjar og okkur. Að alast upp með lang­veiku systk­ini er erfitt, ég fékk aldrei athygl­ina sem ég þurfti en vissi að for­eldrar mínir höfðu nægar áhyggjur og ég vildi alltaf gera þeim lífið létt­ara. Þessi hugs­un­ar­háttur hefur fest við mig og mig langar alltaf að gera líf ann­arra létt­ara og skemmti­legra ef ég get,“ segir Eva ein­læg og ljóst að þarna er á ferð­inni þrosk­aður og jákvæður ein­stak­lingur sem segir hlut­ina eins og þeir eru, án bit­urðar eða eft­ir­sjár.

Veðrið hefur leikið við Evu Bryndísi á leið­inni. Hér er hún við Jök­ulsár­lón. Mynd/Aðsend

Fengið góðan stuðn­ing
Eva hefur alltaf haft gaman af því að ganga og þáði sjaldan sem krakki far með for­eldrum sínum á æfingar eða í skól­ann auk þess sem hún hefur æft íþróttir frá unga aldri. „Ég hafði því góðan grunn þegar ég ákvað að hella mér út í þetta verk­efni. Áður en ég lagði af stað gekk ég mikið og fékk líka sem styrk, áskrift hjá WorldClass og not­aði tækin þeirra. Svo fékk ég regn­föt frá Did­rikson og þrjú pör af skóm frá Víking sem hefur hjálpað ótrú­lega mikið,“ segir Eva. Hún segir að for­eldrar hennar hafi haft nokkrar efa­semdir um ferða­lagið í upp­hafi enda sé hún ung þannig að hún skilji þau alveg. „En þegar þau sáu hversu ákveðin ég var átt­uðu þau sig á að ef ein­hver gæti þetta þá væri það ég. Vinir mínir hafa líka sýnt mér stuðn­ing og ég er afar þakk­lát fyrir það. Margir af þeim hafa viljað ganga smá­spotta með mér sem er gaman. Hún elsku mamma mín hefur svo fylgt mér alla leið sem er alveg ótrú­legt. Ég trúi ekki hversu þol­in­móð hún er að bíða eftir mér og ganga með mér þegar hún vill. Hún á virki­lega skilið medalíu.“

Móðir Evu Bryn­dísar fylgir henni alla leið­ina og þær eru með fína hvíld­ar­að­stöðu í bílnum. Mynd/Aðsend

Margir bjóða henni far
Ferða­lagið hefur gengið vonum framar og Eva er nú komin alla leið í Borg­ar­nes. Hún hefur að með­al­tali gengið 35 kíló­metra á hverjum degi, tók einn hvíld­ar­dag þar sem hún gekk aðeins 12 kíló­metra en bætti það upp stuttu síðar með því að fara 46 kíló­metra einn dag­inn.
„Ég hef verið ótrú­lega heppin með veður og af þessum 38 dögum sem ég hef gengið hafa aðeins verið þrír rign­ing­ar­dagar. Ég var farin að hugsa að ég væri ekki á Íslandi. Ekkert óvænt hefur komið upp á en mér finnst afar skemmti­legt hversu margir hafa stoppað, oft­ast túristar, og boðið mér far. En ég útskýri bara að ég sé að ganga hring­inn, held reyndar að sumir skilji ekki hversu langt það er. Það er dásam­legt að skoða landið okkar með þessum hætti og sjá alla fal­legu stað­ina sem ég vissi ekk­ert af. Ég er búin að sjá fullt af fögrum fossum sem ég vissi ekki um og við mamma upp­götv­uðum til dæmis heitu laug­ina Fosslaug í Skaga­firði. Hún er við hlið­ina á Reykja­fossi og þarna er afar fal­legt,“ segir Eva sem svarar neit­andi þegar hún er spurð hvort þetta hafi ekki verið erfitt. „En sumt hefur verið svo­lítið leið­in­legt. Það hefur tekið á fyrir mig, 16 ára stelpuna sem elskar að tala, að ganga ein í 9-10 klukku­stundir. En ég þrauka og stundum ganga ein­hverjir með mér, fjöl­skylda, vinir eða ókunn­ugir, sem ég er afar þakk­lát yfir. Það hefur eig­in­lega komið mér á óvart að ég gæti þetta – gæti gengið 35 kíló­metra á dag í rúm­lega mánuð, og það meiðsla­laus sem er mikil lukka.“

Eva segir að það sé frá­bært að upp­lifa landið á þennan hátt og hún hafi séð margar leyndar perlur.

Klárar fyrr en áætlað var
Upp­haf­lega var gengið út frá því að gangan tæki 50 daga en Eva er á undan áætlun og ætti því að ljúka hringnum um eða rétt eftir helg­ina. Gönguna mun hún enda þar sem hún hófst, við Hafn­ar­fjarð­ar­kirkju. Hún verður þá yngst allra og fyrsta konan til að ganga hring­inn í kringum landið. Söfnunin verður síðan opin í nokkra daga í við­bót og þegar henni er lokið mun Eva afhenda Barna­spít­l­anum pen­ing­ana.

Hvað á svo að gera að göng­unni lok­inni? „Góð spurn­ing. Ætla lík­lega bara að fara að vinna og afla mér ein­hverra pen­inga þar sem ég fórn­aði megn­inu af sum­ar­vinn­unni fyrir ferð­ina,“ segir þessi jákvæða og kraft­mikla stúlka að lokum.

Hægt er að fylgj­ast með Evu á Facebook, Instagram og á Snapchat undir nafn­inu: Ark­ar­inn­Eva. Hún er með áheita­reikn­ing sem hún segir að sé alveg lok­aður og ein­ungis bank­inn geti tekið út af, allt söfn­un­arfé renni óskipt til Barna­spít­al­ans.
Banka­reikn­ingur: 0545-14-001153. Kennitala: 290802-2290.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi