Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Druslugangan bjargaði lífi mínu“

Druslu­gangan verður gengin í níunda sinn hér á landi næst­kom­andi laug­ar­dag til að vekja athygli á kyn­ferð­is­of­beldi og færa ábyrgð kyn­ferð­is­af­brota frá þolendum yfir á ger­endur. Druslu­gangan sýnir brota­þolum kyn­ferð­is­of­beldis sam­stöðu og krefj­ast betra rétt­ar­kerfis og bætts sam­fé­lags. Eva Sig­urð­ar­dóttir er hluti af skipu­lags­teymi Druslu­göng­unnar.

„Druslugangan bjargaði lífi mínu“
Eva Sig­urð­ar­dóttir. Mynd/Aðsend|Með auk­inni umræðu og sýni­leika vinnum við jafnt og þétt að því að útrýma ofbeldi úr sam­fé­lag­inu.||Brota­þolar eiga greið­ari leið að úrræðum og þeim er frekar trúað. Mik­il­vægi þess að skila skömminni til ger­enda hefur fengið meira vægi og sam­fé­lags­um­ræðan orðin þolenda­vænni.

„Í raun­inni er áherslan að minna á það að við getum öll orðið fyrir ofbeldi óháð kyni, upp­runa, aldri, sam­fé­lags­hópi, stétt og svo fram­vegis. Meg­in­inn­tak Druslu­göng­unnar er að kyn­ferð­is­of­beldi á aldrei rétt á sér og að ábyrgðin er alltaf ger­and­ans. Með auk­inni umræðu og sýni­leika vinnum við jafnt og þétt að því að útrýma ofbeldi úr sam­fé­lag­inu,“ segir Eva. „Við erum að sjá í kjöl­far auk­innar umræðu um kyn­ferð­is­of­beldi að varð­hundar feðra­veld­is­ins hafa risið upp á aft­ur­fæt­urna og berj­ast með kjafti og klóm. Þess vegna er svo mik­il­vægt að slaka ekki á í bar­átt­unni og halda áfram að berj­ast gegn nauðg­un­ar­menn­ingu og feðra­veld­inu.“

„Með auk­inni umræðu og sýni­leika vinnum við jafnt og þétt að því að útrýma ofbeldi úr sam­fé­lag­inu.“ Mynd/Berglaug Petra

„Allir geta orðið fyrir ofbeldi“
Skipu­lögð dag­skrá er öll kvöld vik­unnar fyrir göng­una, Eva segir að mæt­ingin hafi verið góð og áhuga­verðar umræður hafa skap­ast. „Í fyrra byrj­uðum við með fræðslu­kvöld með það að leið­ar­ljósi að ná til fleiri sam­fé­lags­hópa en ein­ungis íslenskra hvítra milli­stétt­ar­kvenna. Aðrir hópar sam­fé­lags­ins hafa svo­lítið orðið útundan í umræð­unni. Við sáum það í #metoo-bylt­ing­unni að allir geta orðið fyrir ofbeldi og það er mik­il­vægt að raddir úr öllum kimum sam­fé­lags­ins fái að heyr­ast. Við vildum halda þess­ari vinnu áfram í ár og viljum fók­usa á lausnir á þessu mikla sam­fé­lags­meini sem ofbeldi er.“
Pepp­kvöldið svo­kall­aða verður á sínum stað líkt og síð­ustu ár. Í ár verður það í Gamla Bíói í kvöld 24. júlí klukkan 20. „Á mánu­dag­inn sýndum við mynd­ina The Bystander Moment í sam­starfi við Ofbeld­is­for­varn­ar­skól­ann. Á þriðju­dag­inn héldum við pall­borð um ungt fólk og kyn­ferð­is­of­beldi með áherslu á lausnir. Á morgun kemur Sigrún Braga­dóttir og fjallar um hann­yrða­pönk og stýrir skilta­gerð. Fyrir nú utan Pepp­kvöldið í kvöld og göng­una sjálfa á laug­ar­dag­inn.“

„Brota­þolar eiga greið­ari leið að úrræðum og þeim er frekar trúað. Mik­il­vægi þess að skila skömminni til ger­enda hefur fengið meira vægi og sam­fé­lags­um­ræðan orðin þolenda­vænni.“ Mynd/Berglaug Petra

„Tölum saman, ekki nauðga“
Eva segir að Druslu­gangan skipti gríð­ar­lega miklu máli. Hún sé mik­il­vægt vopn í bar­átt­unni gegn þöggun, druslu­skömmun og kyn­ferð­is­of­beldi. „Fleiri og fleiri stíga fram og segja frá því ofbeldi sem þau urðu fyrir og eru þannig lík­legri til að leita sér hjálpar og vinna úr ofbeld­inu. Um leið og við sjáum að við erum ekki ein að vinna úr áfalli verður vinnan auð­veld­ari og saman erum við sterk­ari. Druslu­gangan hefur fyrst og fremst skilað sér í auk­inni umræðu og bættu við­horfi sam­fé­lags­ins til þolenda kyn­ferð­is­of­beldis. Brota­þolar eiga greið­ari leið að úrræðum og þeim er frekar trúað. Mik­il­vægi þess að skila skömminni til ger­enda hefur fengið meira vægi og sam­fé­lags­um­ræðan orðin þolenda­vænni.
Fyrir mig og eflaust marga aðra bjarg­aði Druslu­gangan lífi mínu. Ég skil­aði skömminni. Teymið sem ég vinn með að skipu­lagn­ing­unni, og allar þessar druslur sem mæta, standa þétt við bakið á mér og öðrum þolendum ofbeldis og þannig erum við sterk­ari. Saman.“

Fleiri og fleiri stíga fram og segja frá því ofbeldi sem þau urðu fyrir og eru þannig lík­legri til að leita sér hjálpar og vinna úr ofbeld­inu.

Eva seg­ist von­ast eftir því að gangan verði fjöl­menn á laug­ar­dag­inn. „Þetta hafa verið mörg þús­und manns sem hafa mætt síð­ustu ár og ég vona að enn fleiri mæti í ár. Fólk gleymir oft að slag­ur­inn er ekki búinn og að við þurfum að halda áfram. Mik­il­vægi þess að mæta og sýna sam­stöðu og krefj­ast breyt­inga er gríð­ar­legt. Og ég vil hvetja fólk til þess að mæta, hvort sem það verður í göng­una hér í Reykja­vík eða á Akureyri, Húsavík eða Borg­ar­firði Eystri. Allir and­stæð­ingar nauðg­un­ar­menn­ingar og druslu­skömm­unar eru vel­komnir. Stundum virð­ist bar­áttan óyf­ir­stíg­an­leg enn í krafti fjöld­ans færum við fjöll. Verum druslur. Tölum saman, ekki nauðga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi