Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Mislingar greinast á höfuðborgarsvæðinu

Full­orð­inn ein­stak­lingur búsettur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, greind­ist með misl­inga fyrir nokkrum dögum. Hann hafði verið á ferða­lagi í Úkraínu í júní­mán­uði og hefur ekki skjal­festa bólu­setn­ingu gegn misl­ingum.

Mislingar greinast á höfuðborgarsvæðinu
Mynd/Pixabay

Frá þessu er greint á vef Land­læknis

Sjúk­lingnum heils­ast vel eftir atvikum og ekki er vitað um fleiri smit á þess­ari stundu. Misl­inga­far­aldur hefur verið í gangi í Úkraínu á und­an­förnum árum og fyrstu tvo mán­uði árins 2019 greindust þar rúm­lega 25.000 ein­stak­lingar með misl­inga.

Í tengslum við þetta til­felli er unnið skv. áætl­unum sem not­aðar voru í misl­inga­far­aldr­inum hér á landi í febr­úar/mars sl. Haft hefur verið sam­band við þá ein­stak­linga sem kunna að hafa smit­ast af þessum ein­stak­lingi og við­hafðar við­eig­andi ráð­staf­anir eftir atvikum sem geta falist í sótt­kví, bólu­setn­ingu eða blóð­prófum. Einnig hefur heil­brigð­is­þjón­ustan verið upp­lýst og aðilar beðnir um að vera á varð­bergi gagn­vart hugs­an­legum misl­inga­til­fellum.

Ekki er búist við að far­aldur sé í upp­sigl­ingu þó stöku misl­inga­til­felli geti sést til við­bótar. Þátttaka í misl­inga­bólu­setn­ingu er hér ágæt sem á að koma í veg fyrir frek­ari útbreiðslu. Um 95% ein­stak­linga á aldr­inum tveggja til 18 ára hafa verið bólu­settir gegn misl­ingum og rúm­lega 50% ein­stak­linga á aldr­inum eins til tveggja ára. Þess ber að geta að mælt er með fyrstu bólu­setn­ingu við 18 mán­aða aldur. Þátttaka í bólu­setn­ingu ein­stak­linga eldri en 18 ára er ekki þekkt því mið­lægar upp­lýs­ingar í þessum ald­urs­hópi liggja ekki fyrir.

Almenn bólu­setn­ing gegn misl­ingum hófst hér á landi 1976 og talið er að flestir fæddir fyrir 1970 hafi fengið misl­inga og þurfi því ekki bólu­setn­ingu. Sótt­varna­læknir hvetur alla sem hyggja á ferða­lag til landa þar sem misl­ingar geisa að huga vel að bólu­setn­ingum áður en ferð er hafin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi