Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þessar þjóðir voru með og á móti tillögu Íslands í Mannréttindaráðinu

Mann­réttinda­ráð Sam­ein­uðu þjóð­anna sam­þykkti í morgun til­lögu Íslands um stöðu mann­rétt­inda­mála á Fil­ips­eyjum. Fil­ipsey­ingar eru allt annað en sáttir við nið­ur­stöð­una.

Þessar þjóðir voru með og á móti tillögu Íslands í Mannréttindaráðinu
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son Mynd / Alþingi

Með sam­þykkt­inni lýsir Mann­réttinda­ráðið form­lega yfir áhyggjum af stöðu mála á Fil­ips­eyjum og hvetur stjórn­völd þar í landi til að stöðva aftökur á fólki án dóms og laga. Þá er biðlað til stjórn­valda á Fil­ips­eyjum um að sýna skrif­stofu mann­rétt­inda­full­trúa Sam­ein­uðu þjóð­anna og öðrum stofn­unum SÞ sam­starfsvilja.

Þúsundir óbreyttra borg­ara hafa verið teknir af lífi, margir hverjir án dóms og laga, eftir að Rodrigo Duterte var kjör­inn for­seti. Stríð gegn fíkni­efnum voru eitt hans helsta kosn­inga­mál en aðferðir hans hafa verið harð­lega gagn­rýndar af mann­rétt­inda­sam­tökum um allan heim. Hafa borist fregnir af dauða­sveitum sem ganga húsa á milli og taka fólk af lífi, gildir þá einu hvort um ræðir fíkni­efna­sala eða veika fíkla.

Stjórn­völd á Fil­ips­eyjum hafa brugð­ist ókvæða við til­lögu Íslands og sagði utan­rík­is­ráð­herr­ann að Ísland og þau ríki sem fylktu sér að baki til­lög­unni væru með þessu að ganga í lið með eit­ur­lyfja­sölum. Gagn­rýnin hélt áfram að lok­inni atkvæða­greiðsl­unni og sak­aði full­trúi Fil­ips­eyja í ráð­inu þær þjóðir sem studdu til­lög­una um hræsni og sagði að þessu myndi fylgja afleið­ingar. Að sama skapi hefur Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra, fagnað sam­þykkt til­lög­unnar. Ástand mann­rétt­inda­mála á Fil­ips­eyjum fari stig­versn­andi og full ástæða sé til að grípa í taumana.

Tillagan var sam­þykkt með 18 atkvæðum gegn 14 en 15 ríki sátu hjá. Auk Íslands studdu eft­ir­far­andi þjóðir til­lög­una: Argent­ína, Ástralía, Aust­ur­ríki, Bahamas, Bretland, Búlgaría, Danmörk, Króatía, Fiji, Ítalía, Mexíkó, Perú, Slóvakía, Spánn, Tékkland, Úkraína og Úrúgvæ.

Þau ríki sem greiddu atkvæði gegn til­lög­unni voru: Angóla, Barein, Kamerún, Katar, Kína, Kúba, Egypta­land, Erítrea, Ung­verja­land, Indland, Írak, Fil­ips­eyjar, Sádí Arabía og Sómalía.

Þessi ríki sátu hjá við atkvæða­greiðsl­una: Afganistan, Bangla­dess, Brasilía, Búrkína Fasó, Chile, lýð­veldið Kongó, Japan, Nepal, Nígería, Pakistan, Rúanda, Senegal, Suður Afríka, Tógó og Túnis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi