Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

,,Nei, ég get ekki látið þetta flakka“

Eyrún Ósk Jóns­dóttir hefur gefið út níu bækur, skrifað leik­rit og kvik­mynda­hand­rit og vinnur nú að skáld­sögu og leik­riti þar sem fjallað er um með­virkni. Fjár­mögnun er á Karolina Fund undir nafn­inu Requiem. Við báðum Eyrúnu að deila með okkur nokkrum skemmti­legum stað­reyndum um sjálfa sig.

,,Nei, ég get ekki látið þetta flakka“

1. Ég er mik­ill ofur­hetju­að­dá­andi og er með lítið ofur­hetju­safn inni á bað­her­bergi hjá mér. Ég hef horft á allar Marvel-mynd­irnar nokkrum sinnum, bæði í þeirri röð sem þær komu út, og í þeirri tíma­röð sem þær ger­ast. Ég hágrét yfir Endgame og hróp­aði upp yfir mig í bíói: ,,Já, ég vissi það!“ þegar Captain America tók Mjölni upp, svo fólk sneri sér við í sætum sínum til að gá hver væri eig­in­lega með þessi læti. Þegar sonur minn var yngri átti ég í alvöru erfitt með það þegar hann lét Ironman eða Spiderman leika við Superman eða Batman, því aug­ljós­lega eru þeir ekki til í sama veru­leika. Ég á mér draum um að skrifa ein­hvern tíma ofur­hetju­sögu og á örugg­lega eftir að láta verða að því ein­hvern tíma.

2. Ég hef gefið út níu bækur, skrifað leik­rit og kvik­mynda­hand­rit og í hverri og ein­ustu bók og leik­riti er að finna ein­hverjar dagsannar sögur úr mínu lífi, sem ég hef laumað inn sem skáld­skap. Stundum hef ég hugsað með mér: nei, ég get ekki látið þetta flakka, þetta er of per­sónu­legt og of satt, en svo hef ég látið það flakka og aldrei hefur neinn spurt mig hvort þær sögur væru sannar.

3. Ég iðka búdd­isma dag­lega. Ég er alin upp í búdda­trú og hef alltaf verið trúuð. Ég kyrja búddíska mön­tru, Nam mjóhó renge kjó, á hverjum degi og er með búddískt alt­ari inni í borð­stofu hjá mér. Ég tek virkan þátt í starfi búddista­sam­tak­anna SGI, þá sér­stak­lega í starfi þeirra í þágu frið­ar­mála. Ég hef tekið þátt í und­ir­bún­ingi Frið­ar­göng­unnar á Þor­láks­messu og kertafleyt­ing­unnar á Tjörn­inni í minn­ingu Hírósíma og Nagasakí, með sam­starfs­hópi frið­ar­hreyf­ing­anna í ein­hver tutt­ugu ár og hef skrifað mikið um frið­ar­mál og bann við kjarn­orku­vopnum. Nýjasta ljóða­bókin mín mun fjalla að stórum hluta um frið­ar­mál, ást og kær­leika.

4. Ég og kær­asti minn höfum ásett okkur að prófa allar sund­laugar lands­ins. Í fyrra­sumar keyrðum við meira en 700 kíló­metra upp á hálendið og gengum svo aðra 10 kíló­metra bara til þess að fara í sund í heitri laug sem heitir Strúts­laug. Síðan keyrðum við aftur í sjö tíma til þess að fara í sund í Kross­neslaug á Vest­fjörðum. Þegar við vorum í sundi birt­ust nokkrir háhyrn­ingar og léku sér í sjónum rétt fyrir framan okkur. Kærast­inn minn tekur svo myndir af sund­laug­unum sem við höfum farið í og heldur úti sér­stökum Instagram-reikn­ingi bara utan um sund­ferð­irnar.

„Ég er með nokkrar furðu­legar fób­íur. Ég er skít­hrædd við dúkkur og trúða.“

5. Ég er með nokkrar furðu­legar fób­íur. Ég er skít­hrædd við dúkkur og trúða. Ég á mjög erfitt með að ein­hver beini að mér leik­fanga­byssu og ég er líka veð­ur­hrædd. Þá hef aldrei getað gist ein neins staðar. Ég er myrk­fælin og sef með svefn­grímu því áður en ég fór að gera það vakn­aði ég stundum um miðja nótt og taldi mig sjá ein­hverjar verur í svefn­drung­anum og vakn­aði iðu­lega öskr­andi. Síðan ég fór að sofa með svefn­grímu er ég hætt að vakna öskr­andi og sef nú alla nótt­ina. Þegar ég flutti fyrst ein í eigin íbúð var ég fljót að fá mér hund til að verja mig gegn draugum og skrímslum. Þetta var að vísu pínu­lít­ill „pommi“ (pomer­anian) en hann gerði sitt gagn í bar­átt­unni við fjörugt ímynd­un­ar­afl mitt.

6. Í vor samdi ég skáld­sögu sem ég stefni á að gefa út snemma á næsta ári og sam­hliða henni leik­rit um sama efni: „Guðrún vaknar í eigin jarð­ar­för en kann ekki við að trufla með því að láta vita að hún sé á lífi.“ Hér er ég að skoða með­virkni ofan í kjöl­inn og hefur það verið áhuga­vert ferli því með­virkni er eitt­hvað sem ég þekki vel sjálf. Þetta er dálítið svartur húmor, leik­ritið er svo­lítið absúrd á köflum en um leið mjög per­sónu­legt og til­finn­inga­þrungið. Nú erum við á fulla að æfa en ég leik hlut­verk Guðrúnar, og leik­stjóri er Hildur Kristín Thorsten­sen. Við munum við frum­sýna 31. ágúst og erum að klára loka­fjár­mögnun fyrir verk­efnið á Karolina Fund en þar er hægt að kaupa miða og er allur stuðn­ingur vel þeg­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi