Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dómur í frönsku sakamáli gegn Björgólfi birtur í árslok – sagður höfuðpaur í svikamyllu beint að eldri borgurum

„Við dæmum ekki fólk fyrir það sem það veit heldur það sem það gerir,“ sagði Félix de Belloy, verj­andi Björg­ólfs Guð­munds­sonar, fyrr­ver­andi eig­anda og stjórn­ar­for­manns Lands­bank­ans, í frönsku saka­máli þar sem Björgólfur er sagður höf­uð­paur svika­myllu er teng­ist lánas­starfs­semi bank­ans til líf­eyr­is­þega víða um Evrópu. Vörn sak­born­inga fór fram í París í vik­unni. Mannlíf var á staðnum.

Dómur í frönsku sakamáli gegn Björgólfi birtur í árslok – sagður höfuðpaur í svikamyllu beint að eldri borgurum
Mynd / Rakel Ósk

Stór hluti þeirra sem telja sig svikin eru líf­eyr­is­þegar en lánin voru sér­stak­lega kynnt fyrir eldra fólki sem átti skuld­lausar og verð­mætar eignir sökum ald­urs en ekki endi­lega háar tekjur. Málið er fyrir dóm­stólum í Frakk­landi sökum þess að stór hópur lán­taka eru þar í landi. Áður höfðu þau reynt að fá málið unnið í Lúx­em­borg en ekki tek­ist. Í gögnum máls­ins kom fram að tæp­lega fimm­tíu þeirra sem hófu að sækja rétt sinn í kjöl­far hruns bank­ans hafa lát­ist.

Belloy gerði grín af mál­flutn­ingi sak­sókn­ara sem hann sagði gefa til kynna að Björgólfur sé íll­skeyttur banka­maður, eins­konar kol­krabbi, all­staðar nálægður en þó hvergi. Hann sagði lánin sem hér er um að ræða lít­inn hluta af lánum bank­ans í Lúx­em­borg og að sá banki sé aðeins lít­ill hluti af banka­sam­stæð­unni.

Í varn­ar­ræðu Belloy mátti heyra kunn­ug­legt stef frá Íslandi. Belloy gaf til kynna að hér væri rétt­ar­morð í upp­sigl­ingu rekið áfram af ref­siglöðum, póli­tískum – jafn­vel pop­ul­ískum – sak­sókn­ara sem ætli sér að sefa almenn­ing með því að dæma banka­mann.

Félix de Belloy, verj­andi Björg­ólfs Guð­munds­sonar, í saka­máli gegn honum í Frakk­landi. MYND: Moral Senti­ments/Atli Þór Fanndal

Undirritaði falska ársreikninga

Björgólfur var for­maður banka­ráðs Lands­bank­ans og skrif­aði undir árs­reikn­inga hans. Í gögnum máls­ins er vitnað til skýrslu Rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um aðdrag­anda og orsakir falls íslensku bank­anna 2008. Í henni kemur fram leið­rétt CAD-hlut­fall Lands­bank­ans sem er á skjön við árs­skýrslu bank­ans. CAD stendur fyrir Capital Adequacy Directive og er á ein­földu máli leið til að meta fjár­mögnun banka. Samkvæmt reglum á þeim tíma sem hér ræðir þurfti hlut­fallið að vera 8,0% af eignum hið minnsta. Hins vegar kemur fram í Rann­sókn­ar­skýrsl­unni að hið opin­bera hlut­fall sem birt­ist í skýrslum bank­ans hafi verið hærra en það var í raun. Í lok ágúst árið 2007 sagði bank­inn það 11.60% en sam­kvæmt leið­rétt­ingu í Rann­sókn­ar­skýrsl­unni er hlut­fallið 7,86%. Verj­endur hinna ákærðu sök­uðu Evu Joly um að hafa skáldað töl­urnar. Þær er þó að finna í skýrsl­unni í bindi þrjú, kafla níu, mynd níu á bls. 20.

Eva Joly er lög­maður lán­taka Lands­bank­ans í Lúx­em­borg. MYND: Moral Senti­ments/Atli Þór Fanndal

Niðurstaða í árslok

Mál­flutn­ingi er nú lokið en nið­ur­stöðu er að vænta í lok árs. Björgólfur er ásamt öðrum sak­born­ingum sak­aður um blekk­ingar og svik. Franskur sak­sókn­ari fer fram á fimm ára fang­elsi yfir Björgólfi Guð­munds­syni og €375 þús­und í sekt. Það er hámarks­refs­ing. Málið er afar flókið og þús­undir blað­síðna af skýrslum og sönn­unum hafa verið lagðar fram í mál­inu. Mannlíf ræddi meðal ann­ars við starfs­fólk Palais de Justice, þar sem rétt­ar­höldin fara fram, og fékk þær upp­lýs­ingar að sjaldan sæist slíkt magn gagna og í þessu máli. Það væri þó að sjálf­sögðu ekki án for­dæma.

Verði Björgólfur dæmdur yrði hann eini stjórn­ar­for­maður og eig­andi banka í heim­inum dæmdur í fang­elsi vegna banka­krís­unnar 2008. Á Íslandi var Ólafur Ólafsson, einn stærsti hlut­hafi Kaup­þings, dæmdur í Al-Thani mál­inu vegna mark­aðs­mis­notk­unar. Ólíkt Björgólfi var Ólafur þó ekki stjórn­ar­maður banka heldur aðeins stór hlut­hafi.

Björgólfur er sagður höf­uð­paur máls­ins sökum stöðu sinnar sem for­maður banka­ráðs og stærsti eig­andi bank­ans fyrir hrun. Ásamt syni sínum Björgólfi Thor Björg­ólfs­syni átti hann form­lega um 40% í bank­anum. Í reynd var hlut­fallið nær 50% vegna eigna­halds bank­ans í eigin bréfum í gegnum aflands­fé­lög.

Dóm­sal­ur­inn í Palais de Justice þar sem varnir fóru fram í mál­inu. MYND: Moral Senti­ments/Atli Þór Fanndal

Franskir dómstólar mikið sjónarspil miðað við þá íslensku

Franskir dóm­stólar geta verið mikið sjón­ar­spil í sam­an­burði við þá íslensku. Lögmenn setja gjarnan á svið mikið leik­rit með end­ur­tekn­ingum, ýktum handa­hreyf­ingum og hlut­verkum. Það á að sjálf­sögðu við í þessu máli og raunar sér­stak­lega. Það vakti athygli í aðal­með­ferð máls­ins þegar Björgólfur gekk út úr dóm­sal ásamt lög­mönnum sínum þvert á skipan dóm­ara. Belloy gerði mikið úr meintum ofsóknum sakskókn­ara sem hann sagði ekki hafa fært sönnun á vit­neskju né sekt Björg­ólfs. Ekki hafi tek­ist að sýna fram á að hann hafi haft vit­neskju um lánin. Hvað þá að hann hafi gerst sekur um brot á lögum. „En hverju svarar sak­sókn­ari?“ spurði Belloy dóm­ar­ann. „Mér finnst ekki lík­legt að Björgólfur hafi ekki haft vit­neskju um lánin.“ Þetta sagði verj­andi Björg­ólfs slá­andi yfir­lýs­ingu frá sak­sókn­ara og við­ur­kenn­ingu á hve veikur grunnur sak­sóknin er. Málið hafi nú verið tíu ár fyrir dóm­stólum, fimm ár í rann­sókn og tæpar níu vikur í máls­með­ferð en þrátt fyrir það hafi ekk­ert tek­ist að sanna.

Í þeim skjölum sem sak­sókn­ari lagði fram í mál­inu er Björgólfi líkt við Bernie Maddof, frægan Banda­rískan svindl­ara, sem hlaut hámarks­dóm árið 2009 fyrir þátt í Ponzi svindli. Ásamt Björgólfi eru fyrir dóm­stólnum þeir Gunnar Thorodd­sen, fyrr­ver­andi yfir­maður Lands­bank­ans í Lúx­em­borg. Olle Lindfors, Thorben Jensen, Morten Nielsen og Vincent Failly, starfs­menn bank­ans.

Herjað á lífeyrisþega með miklar eignir en tiltölulega lága innkomu

Málið snýr að lán­veit­ingum Lands­bank­ans í Lúx­em­borg til eldri borg­ara vik­urnar fyrir og í kringum fall íslensku bank­anna. Þannig má finna færslur tengdar lán­unum frá 10. októ­ber 2008. Lánin voru veitt í gegnum Lands­bank­ann í Lúx­em­borg og beindust fyrst og fremst að eldri borg­urum með nokkrar eignir sem mátti veð­setja. Bankinn virð­ist hafa lofað fólki háar fjár­hæðir að láni sem að stærstum hlut var ætlað til stýr­ingar hjá bank­anum. Gefið var til kynna að fjár­fest­ingar bank­ans myndu halda í við vexti lána.

Í stuttu máli voru lánin sett upp sem 100% lán með hús­næði sem veð. Lántakar fengu hluta láns­ins í pen­ingum en stærstur hluti var færður í stýr­ingu hjá bank­anum. Algengt var að 25% hluti lán­anna hafi verið greiddur út en 75% farið í stýr­ingu hjá bank­anum. Kærendur segja að þeim hafi verið seld lán sem áttu að standa undir vaxta­greiðslum. Bankinn virð­ist um leið hafa tekið féð og fjár­fest í bank­anum sjálfum í stað þess að dreifa áhætt­unni. Dæmi er um lán­taka þar sem 80% fjár­fest­ing­ar­innar var í íslenskum bréfum. Þegar Lands­bank­inn féll urðu bréfin verð­laus en lánin sótt af hörku af þrota­búi bank­ans í Lúx­em­borg. Sóknin fjallar því um þætti eins og vill­andi upp­lýs­inga­gjöf og svo vinnu­brögð bank­ans sjálfs við að fjár­festa féinu.

Fimm ára fang­elsi
Sak­sókn­ari í Frakk­landi segir stjórn­endur bank­ans hafa selt fólki Ponzi-svindl. Það er að segja lofað ávöxtun á fjár­fest­ingu sem ekki var mögu­legt að ná með eðli­legum hætti. Þess í stað er fé frá nýjum fjár­festum – sem lofað er gríð­ar­legri ávöxtun – nýtt til að greiða þeim sem fyrir eru. Hér er þó um lána­starf­semi að ræða sem nýtt er til fjár­festa. Margir lán­tak­enda lentu í vand­ræðum með lána­greiðslur þegar ljóst varð að ávöxtun stóð ekki undir greiðslum líkt og þau telja að lof­orð hafi verið gefin um.

Málið er saka­mál og því sótt af sak­sókn­ara en með aðkomu brota­þola. Sóknin fer fram á fimm ára fang­elsi. Hámarks­refs­ingu sam­kvæmt frönskum lögum. Auk þess er gerð krafa um €375.000 í sekt­ar­greiðslur.

Lögmaður, leik­ari og rit­höf­undur
Lögmaður Björg­ólfs, Felix De Belloy er til­tölu­lega þekktur í Frakk­landi. Belloy sér­hæfir sig í hvít­flibba­glæpum og á vef fyr­ir­tækis hans Boken er tekið sér­stak­lega fram að hann sé iðu­lega verj­andi stjórn­ar­manna banka og fyr­ir­tækja í slíkum málum. Starf hans í þágu Lands­bank­ans í Lúx­em­borg er eitt þeirra mála sem talin er honum til tekna við að verja hátt setta banka­menn í kjöl­far efna­hags­hruns­ins.

Auk þess að vera lög­maður er hann rit­höf­undur sem gefið hefur út þrjár skáld­sögur hjá Robert Laffont útgáf­unni. Belloy er einn þeirra sem skrif­aði og las sjón­varps­þætt­ina Óð saga lag (La Folle Histoire des Lois ) sem sýndir voru á Public Sénat sem er líkt og Alþing­is­rásin með dag­skrár­gerð tengda þing­inu og útsend­ingu 24 tíma sól­ar­hrings.

Árið 2006 var hann einn stofn­enda Proxité sam­tak­anna. Proxité skóla­sam­tök sem starfa með ungu fólki í við­kvæmri stöðu. Hann var meðal stofn­enda Broken Avocats árið 2009 og hefur starfað þar frá upp­hafi.

Blaða­maður Mannlífs fylgd­ist með málsvörn­inni í París og ræddi við máls­að­ila. Verjandi Björg­ólfs Félix de Belloy sá ekki ástæðu til að ræða við fjöl­miðla og vís­aði til varn­ar­ræðu sinnar. Björgólfur var ekki við­staddur vörn og ekki var rætt við hann við vinnslu þessar fréttar, aðeins er byggt á máls­gögnum. Nánar verður fjallað um málið á næst­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hrunið

InnlentHrunið

Segir Margréti leik­stjóra ekk­ert vita um málið: „Þetta er bara sóða­skapur“

Atli Þór Fanndal segir að leik­stjóri Baráttan um Ísland viti „greini­lega ekk­ert um þessi mál,“ en hún blæs á gagn­rýni á heim­ild­ar­mynd­inni. Mikil óánægja gætir á sam­fé­lags­miðlum vegna heim­ild­ar­mynd­ar­innar Baráttan um Íslands sem sýnd var í tveimur pörtum á RÚV á dög­unum, í til­efni af 15 ára afmæli Hrunsins. Gagn­rýnin bein­ist helst að efn­is­tökum mynd­ar­innar, að of mikil áhersla hafi...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi