Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sandra Líf jarðsungin í dag: „Ein fallegasta sál sem ég hef kynnst“

Sandra Líf Long verður jarð­sungin í dag frá Dóm­kirkj­unni í Reykja­vík. Í ljósi aðstæðna í þjóð­fé­lag­inu verður aðeins nán­asta fjöl­skylda við útför­ina. Sandra Líf fannst látin 14. apríl í fjör­unni á Álfta­nesi, eftir að hennar hafði verið leitað í þrjá daga, en ekk­ert hafði til hennar spurst frá skír­degi, 9. apríl.

Sandra Líf var 26 ára, ein­hleyp og barn­laus. Hún skilur eftir sig for­eldra, stjúp­for­eldra, og tvo hálf­systk­ini. Sandra Líf fædd­ist í Reykja­vík 2. nóv­em­ber 1993. Hún lauk grunn­skóla­námi frá Linda­skóla í Kópavogi, og flutti eftir grunn­skóla­próf með móður sinni til Malmö í Svíþjóð, þar lauk hún stúd­ents­prófi frá Bladins Gymnasium International School í júní 2011. Árin 2013- 2014 stund­aði Sandra Líf nám við Háskól­ann í Malmö (Produktion Leder).

Sandra Líf flutti aftur til Íslands í jan­úar 2017 og um haustið hóf hún nám í þjóð­fræði við Háskóla Íslands. Meðfram námi vann hún sem þjónn og vakt­stjóri á Jamie’s Italian við Aust­ur­völl, og síðar á veit­inga­staðnum Krydd í Hafn­ar­firði. Sandra Líf starf­aði einnig við afgreiðslu­störf í versl­un­inni Álfagull í Hafn­ar­firði.

Sigga Heimis iðn­hönn­uður minn­ist Söndru Lífar með mik­illi hlýju í minn­ing­ar­grein í Morg­un­blað­inu í dag, en þær kynnt­ust fyrir mörgum árum í Svíþjóð þegar börn Siggu voru lítil.

„Hún kom inn í líf okkar eins og hlýr og glaður storm­sveipur og heill­aði okkur öll upp úr skónum. Hún var ein­stak­lega ljúf og blíð og með ein­dæmum dug­leg. Sandra var ein­stök með börnin og þau biðu spennt eftir að fá tíma með henni,“ segir Sigga.

„Sandra var ótrú­lega skemmti­leg og lif­andi, átti marga vini og ynd­is­lega fjöl­skyldu. Það var alltaf líf í kringum hana enda útgeisl­unin ein­stök og hún hugs­aði vel um fólkið sitt. Hún naut sín í nám­inu og stóð sig ótrú­lega vel. Samhliða því vann hún fulla vinnu og ég dáð­ist oft að því hvað hún náði að halda utan um þetta allt auk þess að aðstoða mig við börnin. Það er ekki á allra færi og hún stóð sig gíf­ur­lega vel sem sýnir hvað hún var öflug og sterk. Það er ótrú­lega verð­mætt að eiga að fólk sem elskar börnin okkar og sýnir þeim hlýju og skiln­ing. Fáir treysta sér til að sjá um auma og skerta ein­stak­linga en það sýnir ein­stakt hjarta­lag og góð­mennsku. Sandra víl­aði ekki fyrir sér að sjá um öll börn, skert eða heil­brigð, og reynd­ist hún honum Baltasar mínum ein­stök stoð og stytta. Því gleymi ég aldrei. Og aldrei mun ég gleyma þessum ynd­is­lega engli sem er ein fal­leg­asta sál sem ég hef kynnst.“

Mannlíf vottar fjöl­skyldu og ást­vinum Söndru Lífar inni­lega samúð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi