Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Segja sálfræðiþjónustu ekki eiga að vera lúxus sem aðeins ákveðinn hópur getur nýtt

Sál­fræð­inga­fé­lag Íslands hefur skrifað opið bréf til Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra þar sem skorað er á ráð­herra að setja í for­gang að sál­fræði­þjón­usta verði gerð að almennum rétt­indum. Félagið segir að það sé þjóð­inni hag­kvæmt að fjár­festa í geð­heil­brigði.

Í bréf­inu segir að ljóst sé að áhrif COVID-19 á lýð­heilsu og geð­heil­brigði lands­manna verði mikil. Í bréf­inu segir að langt og strangt upp­bygg­ing­ar­ferli sé fram undan hvað geð­heil­brigði varðar vegna far­ald­urs­ins.

„Aðgengi að sál­fræði­þjón­ustu er því miður enn of tak­markað og fólk sem glímir við geð­rænan vanda þarf oft að bíða of lengi eftir þjón­ustu og standa sjálf straum af miklum kostn­aði,“ segir meðal ann­ars í bréf­inu.

Þar segir einnig að það séu gleði­tíð­indi að fjölgað verði stöðu­gildum sál­fræð­inga á fyrstu línu stofn­unum eins og á Heilsu­gæsl­unni. „Þrátt fyrir að það sé skref í rétta átt ótt­umst við að það eitt og sér dugi ekki til.“

Fyrir Alþingi liggur nú frum­varp Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur um breyt­ingar á lögum um Sjúkra­trygg­ingar. Markmið frum­varps­ins er að tryggja að sál­fræði­þjón­usta falli undir greiðslu­þátt­töku­kerfi Sjúkra­trygg­inga og þannig veitt á sömu for­sendum og önnur heil­brigð­is­þjón­usta. Sál­fræð­inga­fé­lag Íslands hefur sent inn umsögn um frum­varpið mælt með því að það verði sam­þykkt.

„Tryggjum öllum, óháð efna­hag, aðgengi að við­eig­andi geð­heil­brigð­is­þjón­ustu.“

„Sál­fræð­inga­fé­lag Íslands skorar á alla þing­menn og heil­brigð­is­ráð­herra að setja afgreiðslu máls­ins í for­gang,“ segir í bréf­inu.

Sál­fræð­inga­fé­lag Íslands segir að geð­heil­brigð­is­þjón­usta eigi ekki að vera lúxus sem aðeins efn­aðir geti nýtt sér. „Tryggjum öllum, óháð efna­hag, aðgengi að við­eig­andi geð­heil­brigð­is­þjón­ustu. Það eru almenn rétt­indi og ættu ekki að telj­ast til for­rétt­inda. Fjár­fest­ing í mannauði og geð­heil­brigði er þjóð­inni hag­kvæm þegar litið er til lengri tíma,“ segir einnig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi