Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kapphlaupið hafið fyrir alvöru

Kapphlaupið hafið fyrir alvöru
||Mynd / Hvíta húsið

Pete Buttigieg fór með sigur af hólmi í for­kosn­ingum demókrata í Iowa en fæstir telja með­byr­inn nægan til að skila honum í Hvíta húsið. Baráttan hefur staðið um hug­myndir en nú spyrja menn sig: hver er lík­leg­astur til að fella drek­ann?

Hann nam við Harvard og síðar Oxford sem Rhodes-styrk­þegi. Hann starf­aði fyrir for­seta­fram­boð John Kerry árið 2004 og síðar hjá ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæk­inu McKinsey & Company í þrjú ár. Aðeins 29 ára var hann kjör­inn borg­ar­stjóri í heimabæ sínum South Bend en var í vara­liði sjó­hers­ins á sama tíma og sendur til Afganistan árið 2014.

„Hann“ er Pete Buttigieg, sem fór með sigur af hólmi í for­vali demókrata í Iowa á mánu­dag. Í árs­byrjun 2015 var hann borg­ar­stjóri smá­bæjar í Indiana, ein­hleypur og „inni í skápnum“. Sama ár kom hann út og var skömmu síðar end­ur­kjör­inn með 80% atkvæða. Nú, fjórum árum síðar, er hann meðal fremstu manna í for­vali demókrata fyrir for­seta­kosn­ing­arnar 2020 og ferð­ast um landið í fylgd eig­in­manns síns, Chasten Buttigieg, áður Glezman.

Þegar 97% umdæma höfðu skilað nið­ur­stöðum í for­kosn­ing­unum í Iowa í gær skipt­ist fylgið þannig: Buttigieg 26,2%, Bernie Sanders 26,1%, Elizabeth Warren 18,2%, Joseph R. Biden Jr. 15,8% og Amy Klobuchar 12,2%. Nið­ur­stöður voru lengi að skila sér vegna galla í smá­forriti sem notað var í kosn­ing­unum og þykir hið mesta klúður og hin vand­ræða­leg­asta upp­á­koma fyrir demókrata.

Langur og grýttur vegur

„Að segja honum að dag­inn sem hann til­kynnir um fram­boð sitt til for­seta, þá fylgist eig­in­maður hans með … hefði hann trúað mér?“ sagði Buttigieg eitt sinn um ímyndað sam­tal við sjálfan sig á tán­ings­aldri. Hann átti sér snemma drauma um póli­tískan frama en átti í innri bar­áttu vegna kyn­hneigðar sinnar, sem hann bældi raunar svo vel niðri að lengi vel átti hann erfitt með að sam­sama sig rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks og fór á stefnu­mót með konum til að villa um fyrir fólk­inu í kringum sig.

Þegar Buttigieg steig fyrst fram á sjón­ar­sviðið sem for­seta­efni sam­an­stóð fram­boð hans af fjórum starfs­mönnum og tómum kosn­inga­kistum. Honum tókst hins vegar að kom­ast í hóp fremstu manna með því að leggja áherslu á sér­stöðu sína; hann er með­al­hófs­maður, lang­yngstur meðal for­seta­efn­anna og þykir, a.m.k. meðal stuðn­ings­manna sinna, ferskur blær sem á mögu­leika á því að sam­eina demókrata og koma Donald Trump úr Hvíta hús­inu. Barack Obama árs­ins 2020, segja sumir um mann­inn með erf­iða eft­ir­nafnið.

Hvað varðar sig­ur­inn í Iowa ber hins vegar að hafa í huga að Buttigieg lagði mikið upp úr því að ganga vel í rík­inu en veg­ur­inn til Washington er langur og grýttur. Skoð­ana­kann­anir benda t.d. til þess að aðeins um helm­ingur Banda­ríkja­manna sé reiðu­bú­inn til að kjósa sam­kyn­hneigðan for­seta. Þá nýtur Buttigieg tak­mark­aðra vin­sælda meðal svartra en kjör­sókn þeirra og atkvæði munu skipta sköpum í for­seta­kosn­ing­unum í nóv­em­ber.

Mynd / Hvíta húsið

Bentu á þann sem að þér þykir … líklegastur til að sigra Trump

Stuðn­ingur svartra kjós­enda er raunar ein ástæða þess að margir telja víst að Joe Biden, fyrr­ver­andi vara­for­seti, verði sá sem demókratar velji til að taka slag­inn við Trump, þrátt fyrir slakt gengi í Iowa. Biden og millj­arða­mær­ing­ur­inn Michael Bloomberg eru á svip­aðri línu og Buttigieg þegar kemur að mál­efn­unum; þeir eru sam­mála um að taka upp bak­grunns­skoðun við kaup á skot­vopnum, fæð­ing­ar­or­lof, hátekju­skatt og gera end­ur­bætur á dóms­kerf­inu. Þeir vilja hins vegar ekki ganga jafn­langt og Sanders og Warren þegar kemur að almann­trygg­inga­kerf­inu og yfir­haln­ingu fjár­mála­kerf­is­ins, svo dæmi séu tekin.

Þeirri spurn­ingu hvort fram­boð Pete Buttigieg náði hápunkt­inum í Iowa verður mögu­lega svarað í New Hamps­hire. Þar fer fram próf­kjör 11. febr­úar nk. og þar munu spek­úlantar fylgj­ast með því hvor hefur betur, Biden eða Buttigieg. Ef Buttigieg kemur betur út, verður hann mögu­lega hinn val­kost­ur­inn við hlið­ina á Bernie Sanders en það verður þó að telj­ast ólík­legt. Samkvæmt New York Times leiðir Biden á lands­vísu með 27% fylgi á meðan Sanders mælist með 24%, Warren með 14%, Bloomberg með 8% og Buttigieg með 7%.

„Ég held að kjós­endur séu sífellt meira að hugsa til þess,“ sagði Buttigieg í við­tali á dög­unum um mögu­leika for­seta­efn­anna á móti Donald Trump. For­kosn­ing­arnar snú­ast nefni­lega ekki bara um að velja á milli ólíkra hug­mynda heldur einnig að veðja á þann sem getur mögu­lega fellt drek­ann. Og þar eru menn ekki endi­lega sam­mála. Einn maður var þó ekki í nokkrum vafa um yfir­burði sína á mánu­dag: „Ég er sig­ur­veg­ar­inn,“ sagði Trump eftir for­valið í Iowa og vís­aði þar bæði til kosn­inga­f­íaskós demókrata og þess 97% fylgis sem hann hlaut í for­kosn­ingum repúblik­ana í rík­inu. Hann kann að hafa haft rétt fyrir sér en tím­inn mun leiða í ljós hvort það verður nið­ur­staðan í nóv­em­ber.

Fjallað er um málið í helg­ar­blað­inu Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta