Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þingmenn kalla eftir vandaðri vinnubrögðum fjölmiðla í kjölfar andláts Caroline Flack

Breskir stjórn­mála­menn hafa for­dæmt vinnu­brögð fjöl­miðla eftir að sjón­varps­konan Caroline Flack, sem var þekkt­ust sem stjórn­andi þátt­anna Love Island, tók sitt eigið líf á laug­ar­dag­inn.

Um helg­ina var greint frá því að Flack hefði fund­ist látin í íbúð sinni í London. Flack var í fyrra ákærð fyrir lík­ams­árás þar sem hún var sögð hafa beitt kærasta sinn ofbeldi og m.a. lamið hann með lampa þar sem hann lá sof­andi. Flack beið rétt­ar­halda en kær­asti hennar, Lewis Burton, hafn­aði því að hún hafi beitt hann ofbeldi.

Breskir fjöl­miðlar fjöll­uðu mikið um málið og þótti umfjöllun þeirra oft óvægin og ósann­gjörn.

Nokkrir stjórn­mála­menn hafa nú kallað eftir betri fjöl­miðlaum­fjöllun og hvetja fólk til að vanda sig þegar kemur að umræðu á sam­fé­lags­miðlum. The Guardian fjallar um málið.

Segir fjölmiðla bera ábyrgð

Keir Starmer, þing­maður Verka­manna­flokks­ins, gagn­rýnir umfjöllun fjöl­miðla og skað­lega umræðu sem skap­að­ist á sam­fé­lags­miðlum um mál Flack. Hann segir and­lát Flack hafa komið fólki í opna skjöldu en bendir á að fjöl­miðlar beri ákveðna ábyrgð. Hann kallar núna eftir vand­aðri fjöl­miðlaum­fjöllun.

Þing­konan Lisa Nandy segir von­laust að engin lög né reglur gildi á sam­fé­lags­miðlum. Nandy líkir sam­fé­lags­miðlum við villta vestrið þar sem allt er látið við­gang­ast. Nandy gefur í skyn að umfjöllun á sam­fé­lags­miðlum hafi orðið Flack ofviða.

Grant Shapps sam­göngu­ráð­herra Bret­lands, tekur undir. Sömu­leiðis þing­konan Daisy Cooper, hún segir mál Flack sýna og sanna hversu mikil áhrif fjöl­miðlaum­fjöllun gefur haft á fólk.

Matt Hancock, heil­brigð­is­ráð­herra Bret­lands, sagði á Twitter að hann væri miður sín yfir and­láti Flack. Hann sagði að sam­fé­lagið í heild sinni þyrfti að leggja meiri áherslu á að hlúa að því fólki sem á um sárt að binda.

Kate Osamor skrif­aði einnig færslu á Twitter um málið. Hún sagði ein­elti fjöl­miðla gagn­vart Flack hafa verið mis­kunn­ar­laust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife