Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stjarna úr Game of Thrones gerist sendill í Belfast

Stjarna úr Game of Thrones gerist sendill í Belfast

Michael Condron, sem lék næt­ur­vörð­inn Bowen Marsh í sjón­varps­þátt­unum Game of Thrones, hefur heldur betur skipt um hlut­verk og vinnur nú sem send­ill í heim­send­ingum fyrir kjör­búð­ina Asda í Belfast. Og hann seg­ist vera svo hrif­inn af þeirri vinnu að hann sé að hugsa um að vinna við það áfram með­fram leik­list­inni eftir að kór­óna­veiru­far­aldr­inum lýkur.

„Hver ein­asta mann­eskja hefur hlut­verki að gegna á þessum tímum,“ segir leik­ar­inn í við­tali við vef­síð­una Belfast Life. „Fólk ætti núna virki­lega að kunna að meta þá erf­iðu vinnu sem aðrir sinna – ég held að fólk hafi oft gengið að þeim sem vinna í kjör­búðum sem sjálf­sögðum hlut.“

Condron seg­ist hafa verið með þó nokkur leik­list­ar­verk­efni á dag­skránni þegar far­ald­ur­inn skall á en þeim hafi öllum verið frestað og því hafi hann haft svig­rúm til að hjálpa til á þessum erf­iðu tímum. Vinur hans hafi sagt honum að það vant­aði sendla hjá Asda, hann hafi sótt um og fengið starfið. „Þessi vinna þýðir að ég get ennþá verið í sam­skiptum við fólk eins og ég gerði í leik­hús­inu,“ segir hann. „Það hefur haldið geð­heilsu minni í lagi og það er ekk­ert að breyt­ast.“

„Þessi vinna þýðir að ég get ennþá verið í sam­skiptum við fólk eins og ég gerði í leik­hús­inu.“
Michael Condron, sem lék næt­ur­vörð­inn Bowen Marsh í sjón­varps­þátt­unum Game of Thrones.

Leik­ar­inn segir fólkið sem hann færir vör­urnar upp til hópa vera ynd­is­legt fólk og hann njóti þess virki­lega að spjalla við það. Sumir þekki hann og spyrji for­viða hvort hann sé ekki „gaur­inn sem er í sjón­varp­inu“ en aðal­lega sé hann samt bara sá sem færir þeim sem ekki kom­ast í búð lífsnær­ingu í útgöngu­bann­inu.

Hann segir jafn­framt að þessi reynsla hafi gert það að verkum að hann hafi kynnst alls kyns karakt­erum sem hann hefði ekki kynnst ann­ars. „Og í gegnum þá reynslu að vinna fyrir Asda held ég að ég sé kom­inn með efni til að skrifa leik­rit!“ segir Condron. „Mér hefur tek­ist að finna fjöl­marga karakt­era og þeir eru allir stór­kost­legir!“

Persóna Condrons, Bowen Marsh, kom fyrir í tíu þáttum af Game of Thrones og var meðal ann­ars einn þeirra sem leiddi upp­reisn­ina gegn Jon Snow, sem áhorf­endur þátt­anna minn­ast með hryll­ingi. Fyrir þá upp­reisn var hann síðan hengdur og þar með úr sög­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife