Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Manneskja ársins 2019

Mannlíf gefur les­endum sínum kost á að taka þátt í vali á mann­eskju árs­ins 2019 með net­kosn­ingu á man.is.

Manneskja ársins 2019
|Haukur Örn Birg­is­son

Valið stendur á milli ein­stak­linga sem hafa skarað fram úr á liðnu ári og verið áber­andi í umræð­unni.

Kosning fer fram til hádegis mánu­dag­inn 6. jan­úar hér á vefnum og hver IP tala getur kosið einu sinni.

Nið­ur­stöð­urnar verða birtar í fyrsta tölu­blaði Mannlífs sem kemur út föstu­dag­inn 10. jan­úar.

Eft­ir­taldir ein­stak­lingar koma til greina og er þeim raðað í staf­rófs­röð:

Guðrún Ögmunds­dóttir Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Guðrún Ögmunds­dóttir bar­áttu­kona og fyrrum þing­maður
Guðrún lést að morgni gaml­árs­dag, 69 ára að aldri, eftir bar­áttu við krabba­mein sem hún greind­ist með ára­mótin 2018-9. Guðrún, sem barð­ist alla tíð ötul­lega fyrir rétt­indum minni­hluta­hópa og þeirra sem minna mega sín, sagði í við­tali við Mannlíf að hún væri full þakk­lætis og stolt af því sem áunn­ist hefði. Þrátt fyrir að hafa verið sæmd fálka­orð­unni og heið­urs­merki Sam­tak­anna ´78 í fyrra sagði hún stærstu við­ur­kenn­ing­una vera að skjól­stæð­ingar hennar litu á hana sem eina úr þeirra hópi.

Haraldur Þor­leifs­son Mynd / Aðsend

Haraldur Þor­leifs­son stofn­andi Ueno
Haraldur Þor­leifs­son stofn­aði fyrir fimm árum staf­ræna hönn­un­ar­fyr­ir­tækið Ueno, sem í dag er með 65 starfs­menn á Íslandi og í Banda­ríkj­unum. Fyr­ir­tækið er í stöð­ugum vexti og segir Haraldur fyr­ir­séð að fyr­ir­tækið muni halda áfram að stækka og þró­ast. Haraldur sem er fæddur og upp­al­inn í Vest­ur­bænum hefur vegna með­fædds vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dóms notað hjóla­stól frá því hann var 25 ára, en hann lætur sjúk­dóm­inn ekki stöðva sig.

Gunnar Karl Ólafsson
James McDaniel Mynd / Aldís Páls­dóttir
Sveinn Rúnar Ein­ars­son

Gunnar Karl Ólafsson, James McDaniel og Sveinn Rúnar Ein­ars­son
Gunnar Karl, James og Sveinn Rúnar stigu fram í við­tali við Mannlíf og lýstu reynslu sinni eftir nauðgun og kyn­ferð­is­legt ofbeldi. Sögðu þeir sögur sínar til að opna umræð­una um kyn­ferð­is­legt ofbeldi gagn­vart karl­mönnum, auka skiln­ing á þeim málum og benda á að hversu nauð­syn­legt er að leita sér aðstoðar ef ein­stak­lingar verða fyrir slíku ofbeldi

Haukur Örn Birg­is­son Mynd / Hallur Karlsson

Haukur Örn Birg­is­son
Haukur Örn Birg­is­son hæsta­rétt­ar­lög­maður og for­maður Golf­sam­band Íslands opn­aði sig um sára lífs­reynslu sína, en hann og Guðríður Magndís Guð­munds­dóttir, sam­býl­is­kona hans, eign­uð­ust and­vana tví­bura eftir 22 vikna með­göngu. Pistill sem Haukur Örn skrif­aði í Frétta­blaðið og við­tal í Mannlíf vöktu mikil við­brögð, en Haukur Örn sagð­ist ekki vanur að bera til­finn­ingar sínar á torg með þessum hætti.

Hildur Guðna­dóttir Mynd / EPA

Hildur Guðna­dóttir tón­skáld
Hildur Guðna­dóttir tón­list­ar­kona og tón­skáld. Sem kunn­ugt er hefur Hildur hlotið fjölda verð­launa og til­nefn­inga á árinu fyrir tón­list sína í kvik­mynd­inni Joker og þátt­unum margróm­uðu Chernobyl. Hún lenti meðal ann­ars á lista yfir lista­menn sem eiga mögu­leika á til­nefn­ingu til Ósk­arsverð­launa fyrir tón­list­ina í Joker, vann Hollywood Music in Media verð­launin í flokknum besta frum­samda tón­listin fyrir sömu tón­list og er til­nefnd til Golden Globe verð­laun­anna fyrir tón­list­ina í mynd­inni. Er þá fátt upp talið. Hefur Hildur þannig náð að stilla sér upp í röð með fremstu kvik­mynda­tón­skáldum í heimi á árinu 2019 og vekur enn mikla athygli á nýju ári.

Hrafn­hildur Gunn­ars­dóttir Mynd / Hallur Karlsson

Hrafn­hildur Gunn­ars­dóttir kvik­mynda­gerð­ar­kona
Kvik­mynda­gerð­ar­konan Hrafn­hildur Gunn­ars­dóttir frum­sýndi á árinu þætti sína Svona fólk. Þætt­irnir eru afrakstur 27 ára við­leitni Hrafn­hildar til að skrá­setja og varð­veita sam­tíma­heim­ildir um bar­áttu homma og lesbía; erf­ið­leik­ana, átökin og sigr­ana. Um leið eru þeir áhuga­verð heim­ild um þær miklu breyt­ingar og fram­farir sem hafa orðið í íslensku sam­fé­lagi síð­ustu ára­tugi. Þætt­irnir hafa því ótví­rætt sögu- og menn­ing­ar­legt gildi fyrir þjóð­ina.

María Rut og Ingileif Mynd / Facebook

Ingileif Frið­riks­dóttir og María Rut Krist­jáns­dóttir akti­vistar
Hjónin Ingileif Frið­riks­dóttir, fjöl­miðla­kona og María Rut Krist­jáns­dóttir, aðstoð­ar­maður Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur for­manns Við­reisnar, hafa um ára­bil haldið úti hinum vin­sæla fræðslu­vett­vangi Hinseg­in­leik­anum. Hinseg­in­leik­inn hefur í gegnum tíð­ina tekið á sig ýmsar ólíkar myndir, verið á sam­fé­lags­miðlum (rás á Snapchat og Instagram), orðið að vin­sælum sjón­varps­þætti, fyr­ir­lestra­stöð og hlað­varpss­eríu og þannig átt þátt í að fræða ung­menni um hinsegin veru­leika, veita þeim fleiri hinsegin fyr­ir­myndir og brjóta niður staðalí­myndir.

Haga­skóli

Nemendur í Haga­skóla
Amíra Snærós Jabali, Elín Richter, Sindri Bjarka­son og og skóla­systk­ini þeirra börð­ust hetju­lega fyrir því að skóla­systir þeirra, Zainab Safari og fjöl­skyldu hennar, yrðu ekki vísað úr landi. Íslensk stjórn­völd höfðu í tvígang hafnað því að taka mál fjöl­skyld­unnar til efn­is­legrar með­ferðar og þar með að skoða mögu­leik­ann á því að þau ættu þess kost að setj­ast að hér á landi. Skóla­systk­inin neit­uðu að gef­ast upp og fjöl­skyldan fékk að lokum dval­ar­leyfi.

Sig­ur­þóra Bergs­dóttir Mynd / Aldís Páls­dóttir

Sig­ur­þóra Bergs­dóttir fram­kvæmda­stjóri
Sig­ur­þóra Bergs­dóttir setti á árinu á lagg­irnar stuðn­ings­setur fyrir ungt fólk, Headspace. Sig­ur­þóra missti son sinn Berg Snæ Sig­ur­þórs­son, sem svipti sig lífi fyrir þremur árum í kjöl­far kyn­ferð­is­of­beldis. Sig­ur­þóra átti frum­kvæði að stofnun stuðn­ings­set­urs­ins með það að mark­miði að auka þjón­ustu við ungt fólk sem dettur á milli kerfa í sam­fé­lag­inu og á erfitt með að finna heild­stæða þjón­ustu, og stuðla þannig að því að ungt fólk í vanda fái aðstoð fyrr.

Slysa­varna­fé­lagið Lands­björg
Sjálf­boða­liðar slysa­varna­fé­lags­ins Lands­bjargar eru ávallt boðnir og búnir til að aðstoða fólk í neyð. Félagið er þver­skurður af íslensku þjóð­inni og innan raða þess eru ein­stak­lingar af öllum kynjum, úr öllum starfs­stéttum, alls staðar á land­inu. Félagar Lands­bjargar stóðu vakt­ina í óveðr­inu sem geis­aði yfir landið í des­em­ber, sem og í leitum að ein­stak­lingum bæði í lok árs og byrjun árs­ins 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi