Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Mitt áhugamál er mannleg hegðun“

Ingvar Jónsson ein­beitti sér ungur að árum að tón­list­inni og kann­ast margir við hann frá fyrri tíð sem söngv­ara hljóm­sveit­ar­innar Papa. Í dag er hann mark­þjálfi í eigin fyr­ir­tæki, Profectus, gefur út bækur og semur kennslu­efni og er á leið til Indlands þar sem hann mun taka við við­ur­kenn­ingu sem einn af 101 áhrifa­mestu mark­þjálfum á heims­vísu.

„Mitt áhugamál er mannleg hegðun“
|Nýja bókin|Sögusvið bók­ar­innar Hver ertu og hvað viltu?

„Ég minn­ist þessa náunga, en ég sakna hans ekki,“ segir Ingvar um tón­list­ar­mann­inn. „Það sem gerð­ist í raun var að ég var að flýta mér út í lífið, flýta mér að verða sjálf­stæður og skap­andi. Ég fór út í rekstur, og þar var aðeins óhreint mjöl í poka­horn­inu, ég fór fjár­hags­lega illa út úr því dæmi og það tók mig tíu ár að greiða úr þeirri flækju.“

Hugur Ingvars hafði alltaf staðið til að mennta sig meira, og það gerði hann, fór fyrst í grunn­nám í háskóla og síðar í háskóla­nám. „Ég sótti um og komst inn í Við­skipta­há­skól­ann í Kaup­manna­höfn (Copenhagen Business School), þar sem 40 voru valdir inn af fjölda umsækj­enda.

Námið í CBS var mjög dýrt en sér­staða skól­ans felst í því að hann kennir mark­þjálfun sem hluta af kennsl­unni, þar sem okkur var kennt að leggja tölu­verða áherslu á okkur sjálf og einnig unnum við þrjú saman allt náms­árið, þar sem við mark­þjálf­uðum hvert annað í gegnum námið. Þessi hug­mynda­fræði fang­aði mig algjör­lega og í dag er fátt sem vex eins hratt bæði í eft­ir­spurn og áliti og mark­þjálfun.“

Valinn einn af bestu markþjálfum heims

Ingvar er á leið til Indlands í febr­úar á stærstu mannauðs­ráð­stefnu í heimi. Þar mun hann taka á móti við­ur­kenn­ingu sem einn af 101 bestu mark­þjálfum heims, auk þess sem hann mun flytja 30 mín­útna erindi sem heitir How To Lead Like A Viking, eða Hvernig á að leiða líkt og vík­ingur.

„Þetta er fyrsta alþjóð­lega við­ur­kenn­ingin, og ég veit ekki hver mælti með að ég hlyti hana,“ segir Ingvar sem henti fyrsta tölvu­póst­inum um við­ur­kenn­ing­una og boð á ráð­stefn­una þar sem hann taldi að um rusl­póst væri að ræða. „Mig grunar að vinir mínir í Suður-Afríku hafi mælt með mér, en þar hef ég unnið með fræð­ingum á sviði mark­þjálf­unar. Árið 2015 kom einnig út bók eftir mig á Indlandi um leið­toga­færni og mark­þjálfun. Sú bók var gefin út af Sage sem er stór bóka­út­gef­andi og slík útbreiðsla hjálpar til.“

Ingvar hefur þegar gefið út fjórar bækur, tvær hér heima sem báðar eru í þýð­ingu fyrir erlendan markað, og tvær bækur á ensku, fyrr­nefnda bók og aðra kennslu­bók á ensku. Næg verk­efni eru einnig fram undan.

„Ég er með næstu tíu ár nokkurn veg­inn ákveðin. Og þótt ég sé einn hér þá er ég með teymi með mér, ég er með starfs­mann á Írlandi og Jim Ridge, teikn­ara í Kanada, sem mynd­skreytti Hver ertu og hvað viltu?“ segir Ingvar sem er byrj­aður á tveimur öðrum bókum, annarri þeirra með Ridge.

Í apríl hefst síðan kennsla erlendis undir merkjum Profectus, og verður byrjað í Suður-Afríku, Bret­landi og Kanada. Fram undan er því mark­aðs­setn­ing og kynn­ing á þeirri kennslu. „Í Brasilíu er einnig verið að for­rita kennslu­kerfi og þar verða allar myndir hand­teikn­aðar af Jim, sem gerir efnið ein­stakt,“ segir Ingvar, sem síð­ast en ekki síst er á leið í dokt­ors­nám í mark­þjálfun, en þegar hann er spurður um í hvaða landi hann stefnir á nám verður hann nokkuð leynd­ar­dóms­fullur og segir nokkra staði koma til greina.

„Það er í raun ekk­ert sem þú gerir sem góður mark­þjálfi getur ekki hjálpað þér að gera betur.“

Markþjálfunin ekki bara atvinna

„Ég er mark­þjálfi,“ segir Ingvar og vísar þar til þess að mark­þjálfunin er ekki bara atvinna hans, heldur einnig hluti af því hver hann er.

En getur hver sem er lært mark­þjálfun, kennt hana og miðlað henni áfram? „Í grunn­inn já, en vissu­lega er fólk mis­jafn­lega inn­stillt og mis­jafn­lega langt komið með skiln­ing á sjálfu sér og öðrum. Mark­þjálfun er hörku­vinna og góð mark­þjálfun á sér ekki stað inni á þæg­inda­svæði mark­þjálfa og mark­þega. Ég hef margoft upp­lifað að sitja með fólki sem upp­götvar innri kraft, kraft sem er fal­inn undir niðri vegna ein­hvers ótta, ótt­ans við að mis­takast, ótt­ans við álit ann­arra eða slíkt. Það er ógn­ar­kraftur sem liggur fal­inn á bak við ótt­ann, og margir sem halda að þeir séu ekki nógu klárir, ekki nógu mennt­aðir eða annað slíkt. Margir lifa jafn­vel enn eftir kröfum löngu lát­inna for­eldra,“ segir Ingvar.

Nýjasta bók Ingvars, Hver ertu og hvað viltu verða? og til­urð hennar er gott dæmi um kraft­inn sem við búum yfir. Ingvar var búinn að skrifa um einn þriðja af bók­inni þegar hann komst ekki lengra. „Ég var alveg kom­inn á það að hringja í Forlagið og segja þeim að það yrði ekk­ert af þess­ari bók. En eina nótt­ina vakn­aði ég hins vegar með sögu­sviðið í koll­inum, eða sögu­svið bók­ar­innar,“ segir Ingvar, sem henti í raun öllu því sem þegar var komið á blað og byrj­aði að nýju að skrifa. „Það sem var komið varð að einum kafla í bók­inni og þarna fann ég kraft­inn til að klára að skrifa bók­ina.

Nýja bókin

Mark­þjálfun er miklu áhrifa­rík­ara nám en fólk órar fyrir og mun dýpra farið í hluti en það telur þegar það les sér til um hvað mark­þjálfun er. Það er í raun ekk­ert sem þú gerir sem góður mark­þjálfi getur ekki hjálpað þér að gera betur,“ segir Ingvar aðspurður um hvort allir geti notið góðs af mark­þjálfun, hvar sem þeir eru staddir hvað vinnu og nám varðar.

Það er ekki úr vegi að spyrja í lokin hvort Ingvar búi yfir fleiri tímum í sól­ar­hringnum en aðrir. „Alls ekki, ég er hins vegar fær í að stjórna tíma mínum. Ég set mér þriggja til fjög­urra mán­aða plan sem ég end­ur­skoða síðan, ég er skipu­lagður og fók­user­aður og nýti tím­ann 100%. Ég byrja flesta daga klukkan sex í rækt­inni og er mættur til vinnu klukkan 7.30 þar sem ég er til fjögur eða fimm. Ég skil síðan á milli vinnu og einka­lífs, enda þarf að sinna öllum hlut­verkum. Ég er hins vegar mark­þjálfi og mitt áhuga­mál er mann­leg hegðun og því kemur alveg fyrir að ég lesi fræði­greinar heima á kvöldin.

Það sem ég vil leggja áherslu á er að ham­ingja hvers og eins liggur í sjálfs­þekk­ingu hans. Því betur sem þú þekkir þig, því fleiri neistar kvikna. Neistar sem breyt­ast í bál og þannig verður maður óstöðv­andi og ekki aftur snúið.“

Sögusvið bók­ar­innar Hver ertu og hvað viltu?
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi