Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Listamaðurinn og dómstóll götunnar

Listamaðurinn og dómstóll götunnar
||

Tekur þú undir þegar þú heyrir I Believe I Can Fly með R. Kelly í útvarp­inu? Ertu búin/n að horfa á Usual Suspects í fimmta sinn? Færðu sam­visku­bit yfir að hugsa hlý­lega til The Cosby Show? Velkomin/n í hóp­inn.

Fyrir nokkru stóð ég langa stund með störu á nýupp­settar bóka­hill­urnar. Þær svign­uðu undan magn­inu og það lá fyrir að grisja. Sumar bækur var auð­velt að láta fara, aðrar erf­ið­ara. Og þarna lá hún, mitt í einum bunk­anum, síð­asta og erf­ið­asta ákvörð­unin: Annie Hall eftir Woody Allen. Kannastu við þetta? Að vera með kveikt á útvarp­inu og fá pínu sting í mag­ann þegar Thriller fer af stað? Að bölva því inni í þér að Kevin Spacey fékk ekki að klára House of Cards og skamm­ast þín um leið?

Menn hafa lengi freistað þess að svara spurn­ing­unni: Er hægt að skilja list­ina frá lista­mann­inum? En hún hefur ef til vill aldrei verið jafn­á­leitin og í kjöl­far #meto-bylt­ing­ar­innar. Hver stjarnan á fætur annarri hefur verið látin svara til saka fyrir dóm­stól almenn­ings­á­lits­ins síð­ustu miss­erin. Fyr­ir­bærið hefur verið kallað „call-out culture“ eða „cancel culture“; „útskúf­un­ar­menn­ing“ á íslensku. Fyr­ir­bærið má eflaust rekja til margra þátta, m.a. þeirrar stað­reyndar að þau mál sem um ræðir rata allt of sjaldan til hefð­bund­inna dóm­stóla. Gerendur úr afþrey­ing­ar­iðn­að­inum eru sjaldn­ast látnir svara til saka og sæta ábyrgð. En svo blöskrar fólki ein­fald­lega, og útskúf­un­ar­menn­ingin; að neita að horfa á myndir eftir Roman Polanski eða hlæja að Louis C.K., eru ein leið til að láta van­þóknun sína í ljós.

En hvar á að draga mörkin?

„Er nóg að vera ömur­leg mann­eskja?“ spyr t.d. Arnar Eggert Thorodd­sen, aðjúnkt í félags­fræði við Háskóla Íslands, en hann verður meðal frum­mæl­enda á mál­þingi Sið­menntar sem haldið verður kl. 14 í dag undir yfir­skrift­inni „Má njóta níð­inga?“ Arnar Eggert segir svarið hafa verið já í denn en staðan sé önnur í dag. „Þetta er til­tölu­lega nýlegt fyr­ir­bæri, það er ein­hver við­horfs­breyt­ing sem veldur þessu. Tökum bara Michael Jackson sem dæmi; maður heyrir hann sjaldnar í útvarp­inu. Hann hefur verið tek­inn úr jöfn­unni, finnst mér ein­hvern veg­inn.“

Arnar Eggert Thorodd­sen.

 „Það er engin stemn­ing fyrir honum lengur“

Jackson hefur, eins og frægt er orðið, verið ásak­aður um barn­a­níð gegn ungum drengjum. Arnar Eggert tekur annað frægt dæmi, fyrr­nefndan Woody Allen, sem hefur bæði verið sak­aður um að hafa misnsotað barn­unga dóttur sína og gagn­rýndur fyrir að hefja ást­ar­sam­band við tví­tuga dóttur Miu Farrow þegar hann var sjálfur 56 ára. Allen kynnt­ist Soon Yi þegar hann hóf sam­band við Farrow árið 1980. Soon Yi var þá 10 ára.

Arnar Eggert segir fólk skipt­ast í tvær fylk­ingar þegar kemur að því að svara spurn­ing­unni um aðskilnað list­ar­innar og lista­manns­ins en fólk gangi mis­langt í því að snið­ganga þá sem þeim þykja hafa mis­boðið almennu sið­ferði. „Ég finn þetta með Woody Allen, það er engin stemn­ing fyrir honum lengur. Ef ég stend í hóp og fer að vitna í Woody Allen fæ ég bara svip­inn. Þetta er dálítið athygl­is­verð breyt­ing. En þetta er rosa­lega flókið mál því síðan þurfum við að fara að tala um hverjir eru þá inni og hverjir úti. Fá menn séns ef þeir eru rosa­góðir lista­menn? Hvað gerð­ist ef það kæm­ist upp að Steven Spi­el­berg væri raðnauð­gari?“

„Ég get alveg horft á mynd­irnar hans en … það er að fjara undan honum.“

Þetta er eitt af þeim vanda­málum sem blasir við þegar rætt er um útskúf­un­ar­menn­ing­una. Skiptir máli hversu alvar­lega þú braust af þér? Ef við erum sam­mála um að útskúfa þeim sem nauðga, hvað þá með þá sem beita heim­il­is­of­beldi? Skiptir máli hvort þú gengur einu sinni í skrokk á maka þínum eða hvort þú gerir það ítrekað? Ætlum við að hætta að horfa á myndir með frægum leik­ara af því að hann hefur verið ásak­aður um kyn­ferð­is­of­beldi, eða eigum við að bíða þar til hann hefur hlotið dóm?

 Að neyta er að verð­launa

Það er fátt auð­veld­ara en að finna dæmi um lista­menn sem sýndu af sér vafa­sama hegðun en njóta enn þá stöðu og virð­ingar. Caravaggio var morð­ingi, Bruckner var með tán­ings­stúlkur á heil­anum. Picasso, Burroughs og Lennon fóru allir illa með kon­urnar sínar. Jerry Lee Lewis, Elvis Presley, David Bowie og Jimmy Page voru þekktir fyrir að hafa verið með stúlkum á aldr­inum 13 til 15 ára. Ja, verið með? Í dag kall­ast þetta barn­a­níð. Arnar Eggert játar því að enn í dag virð­ist sumir sleppa á meðan aðrir eru for­dæmdir.

En hvað finnst honum sjálfum? Er hægt að aðskilja list­ina frá lista­mann­inum? „Sumir segja já, sumir segja nei,“ svarar hann hugs­andi. „Akkúrat á þessum tíma­punkti veit ég það ekki og mér finnst þetta sér­kenni­legt. En ég við­ur­kenni að eins og með Woody Allen, þá er eitt­hvað að breyt­ast innra með mér gagn­vart honum. Ég get alveg horft á mynd­irnar hans en … það er að fjara undan honum.“ Hann ítrekar að málið sé flókið, enda bæði hugur og hjarta sem ráða för, ef svo má að orði kom­ast. „Þegar þú færð upp­lýs­ingar um ein­hvern mann þá ferðu að hugsa en svo heyrir þú lag, og lag er lag, og á ein­hvern hátt er hægt að njóta þess fyrir það sem það er. En þegar þú færð for­sögu þá gætir þú misst lyst­ina á að hlusta … eða ekki.“

Þeir sem hafa talað fyrir því að neyt­endur láti lista­menn og aðra í afþrey­ing­ar­iðn­að­inum gjalda fyrir mis­gjörðir sínar hafa m.a. vakið athygli á því að með því að njóta og neyta list­ar­innar séum við að verð­launa lista­mann­inn. Tökum Mel Gibson sem dæmi, sem bæði hefur orðið upp­vís að heim­il­is­of­beldi og gyð­inga­hatri. Ef við ákveðum engu að síður að fara á nýj­ustu mynd­ina hans stuðlum við bæði að vel­gengni hennar og hans. Hann fær e.t.v. pró­sentur af miða­sölu og hlut­verk í annarri mynd á grund­velli vel­gengni þess­arar myndar. Til við­bótar við þau skila­boð að gjörðir hans hafa engar afleið­ingar.

„Svo er þetta nátt­úr­lega stundum bara hrein glæpa­mennska.“

Þá er ekki hægt að horfa fram hjá því að í sumum til­vikum er vel­gengnin bók­staf­lega ástæða þess að menn eru í stöðu til að brjóta af sér. Þar má nefna sem dæmi kvik­mynda­fram­leið­and­ann Harvey Weinstein og gam­an­leik­ar­ann Bill Cosby, sem báðir nýttu sér valda­stöðu sína til að brjóta gegn konum og kom­ast upp með það. Lokka þær með gylli­boðum um frægð og frama og nota „miða­sölu­á­góð­ann“ til að borga þeim fyrir að þegja.

 Umræðan sem slík sendir skila­boð

Arnar Eggert segir að jafn­vel þótt menn verði seint á eitt sáttir um útskúf­un­ar­menn­ing­una sé mik­il­vægt að taka sam­talið. „Það þarf að tala um þetta. Ég sem fræði­maður fer ekki á einn vagn­inn eða hinn. Sumir eru grjót­harðir en það er eng­inn mæli­kvarði á þetta heldur. Ef ein­hver ætlar að vera heil­agur í þessu þá getur þú alltaf spurt hann: Jæja, af hverju ertu þá að hlusta á þennan?“ segir hann og bendir á þá stað­reynd að eng­inn er algóður og erfitt að draga lín­una í sand­inn.

Hann segir umræð­una sem slíka þó senda ákveðin skila­boð. „Það er mik­il­væg­ast að lista­menn­irnir finni að það sem þú gerir hafi afleið­ingar. Það er hall­æris­legt að segja að maður ætli að fara að ala fólk upp en ég held að karl­menn sér­stak­lega séu að kom­ast að því að það sem þú komst upp með fyrir 50 árum sé bara ekki í boði lengur. Svo er þetta nátt­úr­lega stundum bara hrein glæpa­mennska.“

Málþing Sið­menntar fer fram í húsa­kynnum Garð­yrkju­fé­lags Íslands, Síðumúla 1.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi