Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Mælir eindregið með prjónaskap –„Ég er að reyna að vera poppstjarna en núna er ég bara prjónakona“

Mælir eindregið með prjónaskap –„Ég er að reyna að vera poppstjarna en núna er ég bara prjónakona“
|

Ekki er langt síðan tón­list­ar­konan Salka Sól Eyfeld byrj­aði að prófa sig áfram í prjóna­skap en núna hefur hún náð góðum tökum á prjóni og hefur meira að segja hannað prjóna­upp­skriftir í sam­starfi við Stroff.is. Hún segir alla geta lært að prjóna.

Salka Sól kenndi sjálfri sér að prjóna og mælir með að fólk sem hafi áhuga á að læra að prjóna geri slíkt hið sama, sér­stak­lega á tímum sem þessum þar sem fólk þarf að halda sig heima í auknum mæli.

„Ég kunni að gera slétt og brugðið síðan úr grunn­skóla en ekk­ert annað. En ég komst fljótt að því að þessi grunnur kemur manni mjög langt,“ segir Salka Sól.

„Ég prjón­aði húf­una og það var eins og leik­skólakrakki hefði gert hana.“

Hún hlær þegar hún segir frá fyrsta stykk­inu sem hún prjón­aði. „Ég fann upp­skrift að húfu sem mér sýnd­ist vera ein­föld. Ég prjón­aði húf­una og það var eins og leik­skólakrakki hefði gert hana. En svo gerði ég hana aftur og vand­aði mig meira og þá sá ég strax mik­inn mun.“

Fyrsta húfan sem Salka prjón­aði.

Símanotkunin dróst mikið saman

Salka Sól segir seg­ist hafa hugsað með sér að hún þyrfti að læra að prjóna þegar hún var barns­haf­andi. Dóttir hennar og eig­in­manns hennar, Arnars Freys, kom í heim­inn í lok des­em­ber. Á meðan Salka beið eftir dótt­ur­inni prjón­aði hún föt á hana. „Mér fannst ég vera að tengj­ast ófæddu barn­inu með því að prjóna á það,“ útskýrir Salka. „Ég fékk svo algjört æði þegar ég byrj­aði. Mér finnst svo róandi að hafa eitt­hvað í hönd­unum og ég næ að slaka algjör­lega á þegar ég er að prjóna.“

Salka segir prjóna­mennsku vera mikla hug­leiðslu fyrir sig.

Hún segir síma­notkun sína og notkun á sam­fé­lags­miðlum hafa minnkað mikið eftir að hún byrj­aði að prjóna. „Það var ótrú­lega frelsandi að taka sér pásu frá sam­fé­lags­miðlum og frétta­miðlum og ein­beita sér að prjóni þegar ég var ólétt,“ segir Salka. Hún segir prjóna­mennsku vera mikla hug­leiðslu fyrir sig.

Ekki hræðast mistök

Salka mælir með að allir þeir sem hafi áhuga á að læra að prjóna prófi sig áfram. Beðin um að gefa góð ráð til þeirra sem vilja kenna sér að prjóna bendir Salka á kennslu­mynd­bönd á YouTube.

Sjálf studd­ist hún við kennslu­mynd­bönd á Netinu þegar hún var að fikra sig áfram í prjóni. Hún bendir þá á að í Ameríku sé öðru­vísi tækni kennd heldur en sú sem er kennd í grunn­skólum hér á landi og víðar um Evrópu. Hún mælir því með að fólk hafi það í huga þegar það skoðar kennslu­mynd­bönd.

Una krakka­peysa úr lín­unni sem Salka hann­aði í sam­starfi við Stroff.

Þá mælir Salka með því að hræð­ast ekki að gera mis­tök. Salka seg­ist hafa lært mikið af sínum mis­tökum í prjóni. „Ég lærði bara á því að prófa mig áfram og gera hlut­ina aftur ef mér mistókst,“ segir hún.

Annað ráð sem Salka gefur er að lesa yfir prjóna­upp­skrift­ina áður en haf­ist er handa en að ein­beita sér svo að því að klára eitt skref í einu. Smátt og smátt smellur stykkið saman í hönd­unum, að sögn Sölku.

„Það er svo gaman að klára verk.“

Hvað varðar upp­skrift­irnar sem Salka hann­aði í sam­starfi við Stroff.is segir hún að línan inni­haldi bæði ung­barna- og krakkalínu. Þær eru ýmist fyrir byrj­endur og lengra komna. „Krakkalínan er aðeins meira „beg­inner fri­endly“,“ segir Salka.

Hægt er að skoða upp­skrift­irnar á heima­síðu Stroff.is.

Umhverfisvænna og skemmtilegra

Hún segir góða til­finn­ingu að klára prjóna­flík. „Það er svo gaman að klára verk. Maður hugsar líka oft betur um prjóna­flík en það sem maður kaupir úti í búð. Það er svo mikil neyslu­hyggja í kringum börn þannig að það er gott að hægja aðeins á neysl­unni og taka sér tíma í að skapa eitt­hvað sjálfur. Það er bæði umhverf­is­vænna og skemmti­legra að vita hver bjó til flík­ina sem þú eða barnið þitt klæð­ist.“ Hún segir að þess vegna þyki henni mjög auð­velt að mæla með að fólk byrji að prjóna.

Salka mælir með að byrj­endur prófi t.d. að prjóna svona eyrna­band.

„Ég er alveg hand­viss um að allir geti lært að prjóna sem hafa áhuga á því,“ segir Salka Sól sem hefur kennt nokkrum vin­konum að prjóna síðan hún kenndi sjálfri sér réttu hand­tökin. Spurð út í hvort hún hafi kennt mann­inum sínum að prjóna hlær hún og svarar neit­andi. „Nei, áhug­inn þarf að vera til staðar. En honum finnst gaman að velja lit­ina með mér.“

Spurð út í næstu skref segir Salka að hún ætli bráðum að prófa að prjóna peysu á bróður sinn og svo Unu-peysu á sjálfa sig.

Hún bætir við að hún ætli svo að halda áfram að prófa nýj­ungar í prjóna­skap. „Ég er að reyna að vera popp­stjarna en núna er ég bara prjóna­kona,“ segir hún og hlær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi