Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Amma heldur verndarhendi yfir mér“

„Amma heldur verndarhendi yfir mér“
Helgi Björns­son Mynd / Hallur Karlsson

„Rætur mínar liggja í Aðal­stræt­inu á Ísafirði. Ég átti heima í Aðal­stræti 26 frá fæð­ingu og til 13 ára ald­urs. Húsið stendur við Silf­ur­torg, á bak við gamla Útvegs­bank­ann og Gamla bak­aríið. Maður lá gjarnan á gluggum bak­arís­ins og fékk vín­ar­brauð og snúða með móð­ur­mjólk­inni,“ segir tón­list­ar­mað­ur­inn og söngv­ar­inn Helgi Björns, um æsku­slóð­irnar á Ísafirði.

Helgi hefur feng­ist við ýmis­legt um ævina en hæst ber feril hans sem leik­ara, rokk­stjörnu og dæg­ur­laga­söngv­ara. Rúmlega sex­tugur stendur Helgi þessa dag­ana á einum af mörgum hátindum fer­ils síns, kannski þeim hæsta. Lands­menn hafa hóp­ast að sjón­varps­tækj­unum und­an­farin laug­ar­dags­kvöld til að horfa á Heima með Helga Björns í Sjón­varpi Símans. Þátt­ur­inn hóf göngu sína þegar sam­komu­bann vegna kór­ónu­veirunnar hófst. Það sem upp­haf­lega átti að vera streymi fyrir afmark­aðan hóp á Netinu reynd­ist verða einn allra­vin­sæl­asti sjón­varps­þáttur allra tíma. Það verður úr að Helgi kemur í við­tal við Mannlíf. Við hitt­umst á veit­inga­staðnum Hafinu við höfn­ina í Reykja­vík. Það er glamp­andi sól og vor í lofti. Við sitjum úti. Fáir eru á ferli en flestir sem ganga hjá heilsa Helga. Þrjár mið­aldra konur snar­stoppa þegar þær sjá Helga. Þær heilsa snerti­laust. Aðdáunin leynir sér ekki. „Takk fyrir þætt­ina þína, Helgi, segir sú fram­færn­asta og hinar taka undir. „Dásam­legt að horfa á laug­ar­dags­kvöldum.“ Margir þakka honum fyrir að hafa lyft þjóð­inni upp úr ömur­leika veirunnar sem lamar heims­byggð­ina.

Bakarar grýttir!

Helgi er með­vit­aður um upp­runa sinn sem Vest­firð­ingur. Þangað leitar hug­ur­inn gjarnan og hann fer reglu­lega vestur til að heim­sækja átt­hag­ana. Hann rifjar upp tím­ann á bak við bak­aríið þegar hann og félagar hans fengu bakk­elsi gef­ins út um glugga. „Bak­ar­arnir voru alltaf með opna glugga vegna hit­ans. Stundum áttum við krakk­arnir til að hrekkja þá. Bakaríið sjálft var í kjall­ar­anum og glugg­a­rnir í götu­hæð. Ég man eftir vetrum sem maður henti snjó­boltum inn um glugg­ann. Þetta lá svo vel við höggi þegar sá gáll­inn var á okkur. Fyrst og fremst gerðum við þetta til gam­ans og bak­ar­arnir skemmtu sér líka. En þeir náðu sér eitt sinn niður á okkur. Þetta var á bollu­dag­inn, við mættir á glugg­ann til að sníkja bollur, nýbúnir að smella á þá snjó­boltum. Bak­ar­arnir tóku okkur vel: „Strákar, við ætlum að gefa ykkur Berlín­ar­bollur“. Þessi teg­und af bollum er kúlu­laga með dálitlu af sultu í miðj­unni. En í þetta sinn voru þeir búnir að troð­fylla boll­urnar af sultu. Um leið og maður beit í boll­una sprakk sultan yfir allt and­litið. Þeir höfðu náð fram hefndum. En þetta voru vinir mínir og seinna vann ég með þeim sem bak­ara­sveinn,“ segir Helgi.

Sprelligosi

For­eldrar Helga eru María Gísla­dóttir, fyrr­ver­andi leik­skóla­kenn­ari og Björn Helgason, fyrr­ver­andi mál­ara­meist­ari, æsku­lýðs­full­trúi, skíða­kappi og lands­liðs­maður í knatt­spyrnu. Helgi ólst upp í fimm systk­ina hópi.

„Móð­ur­amma mín kom austan af Héraði. Ég á því ættir að austan og svo af Snæfjalla­strönd og Ströndum. Pabbi og mamma stóðu stundum fyrir kvöld­vökum heima. Þá sömdum við krakk­arnir stutt atriði og lékum hvert fyrir annað. Ég var svo­lít­ill sprelli­gosi og hafði gaman af þessu. Ungur var ég byrj­aður að leika með Litla leikklúbbnum sem ann­að­ist skemmt­anir  17. júní og á öðrum tylli­dögum. Þar komst ég á bragðið með leik­list­ina.“

Eig­in­kona Helga er Vilborg Hall­dórs­dóttir, far­ar­stjóri og leik­kona. Vilborg hefur átt sinn þátt í Heima með Helga. Hún hefur lagt til hluti í sviðs­mynd­ina þar sem þátt­ur­inn var tek­inn upp í Hlégarði. Í flestum útsend­ingum hefur hún flutt fal­leg ljóð. Þau Helgi hafa átt sam­leið lengi, eða allt síðan Helgi hasl­aði sér völl sem söngv­ari. „Við Vilborg kynnt­umst á Ísafirði. Hún kom þangað sem barna­kenn­ari, nýút­skrifuð sem stúd­ent frá MR. Ég var þá bak­ara­sveinn í Gamla bak­arí­inu. Við urðum ást­fangin og höfum síðan verið saman.“

Teiknibólur og píanó

Helgi á að baki stór­kost­legan feril sem tón­list­ar­maður. Sú spurn­ing vaknar hvert tón­list­ar­legt upp­eldi hans hafi verið. „Starf Ragnars H. Ragnars við tón­list­ar­kennslu á Ísafirði skipti miklu máli og varð örugg­lega til þess að ég fór þessa leið að gera tón­list að stórum hluta að ævi­starfi mínu. Þegar ég byrj­aði í barna­skóla var alltaf söng­tími tvisvar í viku. Þá var heil kennslu­stund lögð undir það að æfa söng. Í 50 mín­útur var sungið af hjart­ans lyst. Við sungum lög á borð við Blessuð sértu sum­ar­sól. Þessir söng­tímar skil­uðu sér auð­vitað inn í barns­sál­ina. Ef ein­hver strengur var til staðar þá skil­aði þetta sér. For­eldrar mínir höfðu gaman af tón­list en voru þó ekki mikið að iðka hana. Pabbi var þó í Sunnu­kórnum. Amma, Bergrín Jóns­dóttir, bjó í sama húsi og við, hinum megin við gang­inn. Ég man eftir því að hafa verið inni í stofu hjá henni og leitað að stöðvum á útvarps­tæk­inu hennar. Þá var ég fimm eða sex ára. Bítl­arnir voru þá stærstir og ég heill­að­ist af þeim. Seinna fór ég að safna hljóm­plötum. Hörður Ing­ólfs­son, æsku­vinur minn, var með mér í þessu. Við fórum fljót­lega að hamra á píanó og flytja lög sem við fengum dálæti á. Þetta átti við mig. Við komum fram sem dúett þegar við vorum ung­lingar og vorum meira að segja með frum­samin lög sem þótti merki­legt á þeim tíma. Eitt sinn vorum við með atriði á árs­há­tíð Gagn­fræða­skól­ans sem haldin var í Félags­heim­il­inu í Hnífsdal. Þetta var atriði þar sem hann spil­aði á píanó og ég söng. Til að fá meira sánd í píanóið festum við teikni­bólur framan á alla hamrana á píanó­inu. Þá var það ekki lengur mjúkur púð­inn sem sló á streng­inn heldur kom raf­magnað sánd. Hljóðið var eins­konar klang og miklu öfl­ugra en ann­ars. En það vildi svo illa til að Ragnar H. var með kór­inn strax á eftir okkar atriði. Það var mikið stress að plokka allar teikni­bólurnar úr áður en Ragnar kæmi á svið með kór­inn. Við vissum að hann hefði orðið ævar­eiður ef þessi gjall­andi hljóð bær­ust frá hljóð­fær­inu. Við náðum sem betur fór að fjar­lægja teikni­bólurnar,“ segir Helgi.

Rabbi var fyrirmynd

Þegar Helgi var að alast upp á Ísafirði var hljóm­sveitin BG og Ingi­björg fyr­ir­ferð­ar­mikil. Söng­konan Ingi­björg Guð­munds­dóttir varð lands­fræg og sann­kölluð stjarna eftir að lagið Þín innsta þrá, sló í gegn. Helstu fyr­ir­mynd Helga á þessum árum var þó að finna í því sem Rafn heit­inn Jónsson og félagar voru að gera. „BG og Ingi­björg voru stór á þessum árum. Ég hafði þó meiri fyr­ir­mynd í því sem Rabbi og félagar í hljóm­sveit­inni Náð og seinna í Ýr voru að gera. Und­an­fari Ýrar var Dans­hljóm­sveit Vest­fjarða. Ég kom fram með þeirri hljóm­sveit.“

Mynd / Hallur Karlsson

Leik­listin heill­aði Helga. Það varð til þess að hann fór í Leik­list­ar­skóla Íslands árið 1979 sem þá var nýstofn­aður. „Eftir að ég hóf nám við skól­ann vorum við nem­end­urnir í fram­komu­banni, það voru reglur skól­ans á þeim tíma. Mér var þá boðið að koma vestur og syngja með hljóm­sveit en ég varð að afþakka. Ég útskrif­að­ist vorið 1983. Þá hringdi Rabbi og bauð mér að koma sem söngv­ara í Grafík. Ég hafði sól­ar­hring til að ákveða það en svo var ball um næstu helgi. Á sama tíma var ég að byrja að leika í Atóm­stöð­inni, mínu fyrsta hlut­verki í kvik­mynd. Ég sló til og þetta sumar var ég allar helgar að syngja með Grafík, víða um Vest­firði. Við vorum kannski á Flateyri á föstu­dags­kvöldi og Hnífsdal á laug­ar­degi. Það var brjálað að gera, alltaf fullt. Í miðri viku var ég svo í Reykja­vík að leika með Gunnari Eyj­ólfs­syni og fleirum í Atóm­stöð­inni. Við í Grafík vorum með tals­vert af frum­sömdu efni. En á böll­unum spil­uðum við blöndu af okkar eigin lögum og ann­arra.“

Gæsin á rúðunni

Helgi var þjóð­þekktur sem söngv­ari með hljóm­sveit­inni Grafík sem sló í gegn á lands­vísu. Rafn Jónsson var trommu­leik­ari. Auk hans voru þar Vilberg Vigg­ós­son, Rúnar Þórisson og Örn Jónsson. Áður en Helgi kom inn í hljóm­sveit­ina hafði lagið Vídeó náð vin­sældum. Grafík með Helga inn­an­borðs gaf út plöt­una Get ég tekið cjéns. Fyrsta lagið af henni sem náði vin­sældum var Húsið er að gráta. Textinn er ljóð eftir Vilborgu, konu Helga. „Vilborg hafði fengið íbúð í Hafn­ar­stræti 33. Hún hafði límt fugla á rúð­una sem börnin í skól­anum höfðu klippt út og gefið henni. Þessir fuglar koma við sögu í ljóð­inu um Húsið sem var að gráta. Gæsin flýgur á rúð­unni, er inn­blásið af þessum myndum. Hún samdi ljóðið árið 1978. Fimm árum seinna, þegar við unnum að Get ég tekið cjéns, var ég að grúska í ljóð­unum hennar og fann þetta ljóð sem mér fannst til­valið sem texti. Við í hljóm­sveit­inni sömdum lagið saman og þetta smellpass­aði. Ég samdi meló­dí­una en svo varð lagið til í spuna. Á fyrstu plöt­unni sem ég gerði með þeim sló Húsið er að gráta, í gegn og Þúsund sinnum segðu já. Lagið Sextán varð líka mjög vin­sælt. Platan sló algjör­lega í gegn.“

Land míns föður

Helgi var í Grafík í þrjú ár, frá 1983 til 1986. Á þeim tíma var hljóm­sveitin gríð­ar­lega vin­sæl.

„Við gerðum tvær plötur saman og fórum í tón­leika­ferðir bæði inn­an­lands og erlendis. Þetta var mikið ævin­týri og mikið að gera. Meðfram þessu var ég alltaf að leika. Veturinn 1985 var ég í leik­sýn­ingu sem hét Land míns föður. Sýningin sló ræki­lega í gegn og varð algjört kassa­stykki, eins og það var kallað í gamla daga. Þar var vísað til þess að það var gott fyrir pen­inga­kass­ann. Það var leikið sex kvöld í viku. Ég var bund­inn yfir þessu allan vet­ur­inn 1985-1986 og þá komst ekk­ert annað að og hljóm­sveitin gat ekk­ert gert á meðan. Þetta hafði þó þau áhrif að félagar mínir í Grafík fóru að hugsa eitt­hvað annað. Það urðu þarna ákveðin skil. Um sum­arið spil­uðum við eitt­hvað en svo fórum við hver í sína átt­ina.“

Síðan skein sól

Eftir að Helgi hætti með Grafík fór hann meira inn í leik­húsið. Land míns föður hélt áfram og svo tók Djöfla­eyjan rís við. En tón­listin tog­aði í Helga. Árið 1987 ákvað hann að stofna nýja hljóm­sveit. Síðan skein sól, leit dags­ins ljós. „Fyrsta platan okkar kom 1988. Sá eini sem kom úr Grafík var Jakob Smári. Hann var á sínum tíma í Tappa tík­arrassi en ég hafði fengið hann í Grafík í stuttan tíma. Hann hætti þar á sama tíma og ég og kom svo með mér í Sólina. Annar félagi hans úr Tappa tík­arrassi kom líka með. Það var Eyjólfur Jóhanns­son, sem ásamt Jakobi, Eyþóri Arnalds og Björk skip­uðu Tappann. Pétur Grét­ars­son, sem hafði verið með mér í Land míns föður, var einnig með okkur. Þar varð hug­myndin að Síðan skein sól reyndar til þegar við Pétur ræddum um að gera eitt­hvað saman. Við náðum fljót­lega vin­sældum með lögum á borð við Geta pabbar ekki grátið, Ég verð að fá að skjóta þig og Halló ég elska þig.“  Síðan skein sól náði miklum vin­sældum og hvert lagið af öðru rataði í efstu sæti vin­sælda­list­anna. Sem fyrr var Helgi í leik­hús­inu með tón­list­inni. „Við höfðum mikið að gera við að spila á tón­leikum og böllum. Á end­anum ákvað ég að gefa leik­hús­inu frí og ein­beita mér að tón­list­inni.“

Mikill Stónsari

Helgi þótti hafa líf­lega sviðs­fram­komu. Hann átti það til í hita leiks­ins að stökkva upp á magn­ara og þeyt­ast um sviðið. Helga hefur stundum verið líkt við Mick Jagger, söngv­ara Rolling Stones. Hann seg­ist vissu­lega hafa orðið fyrir áhrifum frá kapp­anum sem hann hafi þó ekki hitt nema í mýflugu­mynd. „Ég var mik­ill Stónsari á sínum tíma. Sam­lík­ingin við Jagger var kannski ekki síst vegna þess að ég var svo­lítið fyr­ir­ferð­ar­mik­ill á svið­inu. Ég átti það til að vera hopp­andi út um allt og klifr­andi upp á hátal­ara­stæður og upp á þak. Það var kannski kveikjan að þeirri sam­lík­ingu.“ Þótt Síðan skein sól tæki mestan tíma Helga þá var leik­listin gjarnan stutt undan. Árið 1992 bauðst honum hlut­verk í Fröken Jelenu. „Þetta leik­rit fékk gríð­ar­lega aðsókn. Þarna urðu til leik­arar sem áttu eftir að marka sín spor í leik­list­inni. Ingvar E. Sig­urðs­son og Baltasar Kormákur eru á meðal þeirra sem síðan hafa verið áber­andi. En þarna var áhug­inn á að meika það í útlöndum kom­inn svo ég gaf þetta frá mér og við héldum til London í von um frægð og frama.“

Blankir í London

Helgi og félagar í Síðan skein sól voru í London næstu tvo árin. Það reynd­ist vera djúpt á frægð­inni en hljóm­sveitin fékk þá skamm­stöfun sem síðan hefur verið nafn hennar, SSSól. „Þetta var erf­iður tími og lítið um pen­inga. En við tókum samt upp heila plötu, sem aldrei kom út, The lost Tape. Nafn hljóm­sveit­ar­innar vafð­ist fyrir Bretum. Enski upp­töku­mað­ur­inn átti í mesta basli með að merkja upp­tök­urnar með nafn­inu. Hann gat ekki skrifað það og end­aði með því að skrifa SSSól. Þannig breytt­ist nafnið sjálf­krafa og var­an­lega. Við spil­uðum út um alla London á mörgum flott­ustu klúbb­unum. Jakob Frímann Magn­ús­son tón­list­ar­maður var á þessum tíma menn­ing­ar­full­trúi við íslenska sendi­ráðið og hjálp­aði okkur í hví­vetna. Við fengum samn­ing og ýmis verk­efni. En svo urðu menn þreyttir á baslinu og höfðu ekki úthald í að halda áfram blankir. Heima á Íslandi voru fjöl­skyldur og við gáf­umst upp og fórum heim, þar sem pen­ing­arnir biðu okkar.“

„Þeir segja sumir að ég sé miklu betri leik­ari en söngv­ari.“

SSSól naut mik­illar vel­gengni á Íslandi. Hljóm­sveitin var bókuð lang­flestar helgar, bæði föstu­daga og laug­ar­daga. „Við spil­uðum á þessum árum allt að 46 helgum á ári fyrir 1995. Við vorum stöðugt með rút­una okkar klára. Rót­ar­arnir voru þrír og við fórum um allt land til að spila. Þegar mér bauðst hlut­verk í Rocky Horror sem sett var upp í Loft­kast­al­anum. Ég hef alla tíð verið við­loð­andi leik­list­ina en mest í sjón­varps­þáttum og kvik­myndum. Flestir þekkja mig sem söngv­ar­ann en svo eru hinir sem þekkja mig sem leik­ara. Þeir segja sumir að ég sé miklu betri leik­ari en söngv­ari. Sjálfur hef ég jafn­gaman að hvoru­tveggja.“

Hátindur frægðar

Helgi stendur á hátindi frægðar sinnar á Íslandi. Þættir hans, Heima með Helga, í Sjón­varpi Símans, hafa heillað stærstan hluta þjóð­ar­innar á tímum kór­ónu­veirunnar. Helgi gerir þó lítið úr frægð­inni og er ekki upp­tek­inn af því að njóta aðdá­unar. „Þetta heitir meira að vera þekktur hérna á Íslandi. Það fer svo eftir því hvað er að ger­ast hversu þekktur maður er á ákveðnum tíma­bilum.

„Ég er ekk­ert merki­legri en hver annar.“

Fyrstu árin fann maður svo­lítið fyrir þessu en svo hættir maður að velta þessu fyrir sér. Þetta þvælist ekk­ert fyrir mér í dag.“ Helgi seg­ist vera með­vit­aður um að láta ekki frægð rugla sig í rím­inu. Hann vill hafa jarð­sam­bandið í lagi. „Ég hef passað mig á því að vera á jörð­inni með svona hluti. Þetta fer í haus­inn á sumum og menn geta auð­veld­lega gleymt sér og talið sig vera öðrum merki­legri. Maður fær á sig aðdáun og getur þá auð­veld­lega villst af leið. Ég hef séð þannig dæmi. Ég er ekk­ert merki­legri en hver annar. Munurinn er sá einn að fleiri vita hver ég er í ljósi starfs­ins.“

Gott að eldast

Helgi á að baki fjöl­mörg lög sem hafa náð hylli lands­manna. Hann við­ur­kennir að það sé ánægju­legt að fólk kunni lögin hans og syngi þau. „Það kitlar hégóma­girnd­ina. Ég er eins og næsti maður að því leyti.“

Sáttur Helgi sér ekki eftir neinu. Það er ekki háttur hans að rýna stöðugt í bak­sýn­is­speg­il­inn.

Helgi er 62 ára. Hann seg­ist vera sáttur við að eld­ast. „Það er gaman að öllum aldri og ánægju­legt að fá að eld­ast. Það hafa öll tíma­bil ævi manns sinn sjarma. Nú er ég þar á lífs­leið­inni að ég á að baki mikla reynslu og veit aðeins meira. Núorðið þarf meira til að taka mann úr jafn­vægi. Ég bjóst svo sem aldrei við að ná þessum aldri. Maður hugs­aði aldrei svo langt.“ Helgi kvíðir engu með vax­andi aldri. Hann seg­ist með­vit­aður um upp­haf og endi lífs­ins. „Það er ákveðin sálu­hjálp í því að hugsa þetta sem svo að það sé ekki allt búið við dauð­ann. Vonandi er partí hinum megin. Fólk á auð­veld­ara með að sætta sig við hlut­ina ef það trúir að dauð­inn sé dyr inn í aðra vídd. Mér fannst aðdá­un­ar­vert hvernig George Harrison, sem lagði mikið upp úr ind­verskri speki, und­ir­bjó sig áður en hann dó. Hann gekk út frá því að við dauð­ann héldi hann áfram inn í annað líf.“ Helgi seg­ist hlusta á fólk sem telur sig hafa lifað áður eða trúir á líf eftir dauð­ann. Hann segir úti­lokað að þræta fyrir þá hluti og er for­vit­inn. Hann er ekki trú­aður á þann hátt sem íslenska þjóð­kirkjan boðar. „Mér finnst kirkjan vera búin að missa fót­anna. Hún skilur ekki hlut­verk sitt og fylgir ekki tíð­ar­and­anum. Ég trúi fyrst og fremst á lífið og það fal­lega í líf­inu, kær­leik­ann og hið góða í mann­inum. Ég veit ekki hvað tekur við þegar þetta endar. Ég hef lengi átt mér þá von að það taki eitt­hvað nýtt við hinum megin. Ég veit ekki hvað tekur við en þetta er spurn­ing um það hvert orkan sem maður hýsir í lík­am­anum fer þegar búið er að grafa hann. Sjálfur vil ég helst láta brenna mig, indíána­brennu, frekar en að láta grafa mig.“

Hugmynd frá Ítalíu

Heima með Helga hefur runnið sitt skeið á enda um leið og slakað hefur verið á sam­komu­bann­inu. Síðasti þátt­ur­inn var um liðna helgi. Hug­mynd­ina að þætt­inum fékk Helgi frá ítölskum vinum sínum. „Kveikjan að þessu varð vegna þess að við Vilborg bjuggum á Ítalíu. Þar eign­uð­umst við marga góða vini sem við höldum enn sam­bandi við. Þegar vírus­inn fór af stað á , á undan því sem var hér, sáum við við­brögðin þar í gegnum Facebook. Fólk fór út á svalir og söng. Svo var fólkið farið að streyma beint úr stofum sínum og jafn­vel margir tón­list­ar­menn að koma fram í einu, hver á sínum stað. Vilborg, sem er altalandi á ítölsku, sýndi mér þetta. Þá hugs­aði ég með mér að auð­vitað ætti maður að gera eitt­hvað skemmti­legt í þessa veru. Þegar stefndi í sam­komu­bann og að öllum við­burðum, sem ég hafði verið ráð­inn til yrði frestað, ákvað ég að setja í gang við­burð. Ég hafði sam­band við Pálma Guð­munds­son, sjón­varps­stjóra Símans, og kynnti hug­mynd­ina um að vera með tón­leika í beinni útsend­ingu undir for­merk­inu heima. Honum leist strax vel á þetta. Hann var þó aðeins hik­andi við að taka skrefið. Loks sagði ég við hann að við ætl­uðum að setja þetta í gang næsta laug­ar­dag og myndum streyma þessu. Það var allt klárt. Ég var með hljóm­sveit­ina og búinn að redda staðnum og græjum. Þá hrökk Pálmi í gang og sagð­ist vera með. „Ég elti þig,“ sagði hann og við vorum með Símann með okkur frá byrjun sem gerði þetta allt miklu stærra en ef um ein­falt streymi á Facebook hefði verið að ræða.“ Hljóm­sveitin Helgi Björns og Reiðmenn vind­anna héldu uppi fjöri næstu sjö laug­ar­dags­kvöld á Símanum og þjóðin horfði.

Óvæntar vinsældir

Reið­menn­irnir hafa fylgt Helga und­an­farin ár. Upphaf þess má rekja til hesta­mennsku sem Vilborg og Helgi hafa stundað af brenn­andi áhuga. „Við hjónin höfum verið með hesta und­an­farin 20 ár. Þetta er okkar stærsta áhuga­mál. Við höfum farið í margar ferðir á hverju sumri. Und­an­farið höfum við ræktað folöld. Viðar Hall­dórs­son, frændi minn í Kára­gerði, hefur leyft okkur að hafa hest­ana hjá sér. Það var hesta­mennskan sem leiddi til þess að ég gerði fyrstu Reið­manna­plöt­una. Á ferðum okkar höfðum við sungið mörg lög sem tengj­ast hestum á kvöld­vökum. Ég hugs­aði oft með mér að það væri gaman að koma ein­hverjum reið­lögum á plötu. Loksins ákvað ég að láta verða af þessu. Ég valdi lög og hóaði saman hljóð­færa­leik­urum. Svo var allt spilað inn í einu. Það tók aðeins viku að klára plöt­una. Ég hafði ekki miklar vænt­ingar um sölu. Ég fór með plöt­una á Landsmót hesta­manna á Hellu árið 2008. Það kom mér því gletti­lega á óvart þegar hún seld­ist í miklu upp­lagi og sló algjör­lega í gegn. Það varð til þess að ég gerði þrjár plötur til við­bótar. Þegar ég vann að fyrstu Reið­manna­plöt­unni þá fékk ég með mér hljóð­færa­leik­ara í verk­efnið. Það hafa þó ekki verið sömu menn frá upp­hafi. Nafnið var til­komið vegna þess að þetta voru reið­manna­söngvar. Hug­myndin er komin til af lagi Doors, Riders on the Storm.“

Áfallalítið líf

„Ég hef haft það að leið­ar­ljósi í líf­inu að líta sem sjaldn­ast um öxl.“

Helgi hefur lifað áfalla­litlu lífi. Lífs­háski var ein­hver en hann nennir ekki að eyða púðri í að tala um það. Hann seg­ist oft hafa verið hepp­inn að sleppa við áföll og trúir því að hann njóti verndar Berg­rínar, ömmu sinnar. „Amma heldur vernd­ar­hendi yfir mér. Ég tók það mjög nærri mér þegar hún dó á jóla­dag árið 1972. Daginn eftir fór ég inn í her­bergið hennar, lagð­ist í rúmið hennar og lok­aði aug­unum. Þá fann ég sterkt fyrir nær­veru hennar og hún hefur fylgt mér síðan. Ég hef haft það að leið­ar­ljósi í líf­inu að líta sem sjaldn­ast um öxl. Ég á til dæmis ekki plöt­urnar mínar eða myndir frá ferl­inum. Ég vil ekki að dást að ein­hverju sem ég gerði í for­tíð­inni. Þá mun ég hefta nýsköp­un­ina. Það er mikið atriði að horfa fram á veg­inn og end­ur­nýja sjálfan mig fremur en að stöðva ferlið. Ég sé ekki eftir neinu í líf­inu.“

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi