Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Dóttir mín breytti mér þótt ég fengi aldrei að horfast í augu við hana“

Hall­gerður Hall­gríms­dóttir mynd­list­ar­maður opnar á morgun sýn­ing­una Dauða­djúpar sprungur í gall­er­í­inu Ramskram á Njáls­götu. Þar sýnir hún ljós­myndir sem hún tók fyrstu mán­uð­ina eftir að dóttir hennar fædd­ist and­vana. Margar mynd­anna seg­ist hún ekki muna eftir að hafa tekið, henni hafi liðið eins og hún væri inni í sorg­ar­hjúp sem aðskildi hana frá ver­öld­inni.

„Dóttir mín breytti mér þótt ég fengi aldrei að horfast í augu við hana“
Hall­gerður Hall­gríms­dóttir

„Ég fór upp á fæð­ing­ar­deild í sept­em­ber 2015 og hélt bara að ég væri að fara að fæða barnið mitt, sem ég gerði reyndar, en þegar ég var komin þangað fannst eng­inn hjart­sláttur hjá barn­inu,“ segir Hall­gerður um þá reynslu sem liggur að baki mynd­unum. „Þetta var stærsta áfall lífs míns og þegar ég kom heim af spít­al­anum vissi ég ekk­ert hvað ég ætti að gera. Eitt af því sem ég gerði þegar ég vakn­aði eftir fyrstu nótt­ina heima var að taka upp mynda­vél­ina og taka sjálfs­mynd, sem verður á sýn­ing­unni, og næstu mán­uði á eftir eigraði ég mikið um hverfið þar sem ég bjó og var nýflutt í. Ég fór líka mikið í bílt­úra með mann­inum mínum og væfl­að­ist bara eitt­hvað um. Ég var alls ekki með það í huga að vinna verk á þeim tíma, en svo fóru áteknu film­urnar að stafl­ast upp í ísskápnum og þegar ég tók eftir því fram­kall­aði ég film­urnar og fór að skoða mynd­irnar. Þá breytt­ist mín leið til að taka myndir pínu­lítið. Maður tekur myndir öðru­vísi þegar maður hefur ekk­ert ákveðið mark­mið í huga og ég mundi ekki einu sinni eftir því að hafa tekið margar af þessum myndum sem voru á filmunum.“

„Við svona áfall fer maður dálítið að end­ur­meta lífið, þannig að mað­ur­inn minn hætti í vinn­unni og við fórum í ferða­lag saman og náðum að end­ur­hugsa það hvað okkur finnst mik­il­vægt í líf­inu og hvernig við vildum verja tíma okkar.“

Sorgin dró hulu yfir allt

Hall­gerður segir í kynn­ingu á sýn­ing­unni að hún hafi að ein­hverju leyti notað mynda­vél­ina sem hlíf gegn þeim til­finn­ingum sem hún upp­lifði á þessum tíma.

„Já, kannski,“ við­ur­kennir hún. „Ég held að mynda­vélin fangi að ein­hverju leyti það sem er að brjót­ast um í und­ir­með­vit­und­inni. Þannig að mynd­irnar fanga líka sál­ar­á­stand ljós­mynd­ar­ans. Sumir segja að allar myndir sem ljós­mynd­arar taka séu sjálfs­myndir. Mér fannst á þessum tíma vera ótrú­lega mikil fjar­lægð milli mín og heims­ins. Mér leið eins og sorgin drægi hulu yfir allt, eins og ég væri föst í sömu sporum og tím­inn liði ekki fyrir mig heldur bara fyrir aðra. Upplifði þetta dálítið eins og dag­arnir væru seig­fljót­andi, svona eins og þegar mann dreymir að ein­hver sé að elta mann og maður reynir að hlaupa en tekst það ekki. Þetta ástand varði í um það bil ár og mynda­vélin var á milli mín og heims­ins.“

Spurð hvað fleira hún hafi gert til þess að reyna að vinna úr sorg­inni segir Hall­gerður að hún og eig­in­maður hennar, Sigurður Arent, hafi meðal ann­ars verið í stuðn­ings­hópi sem Land­spít­al­inn stendur fyrir fyrir fólk í þess­ari stöðu.

„Það er skipu­lagt þannig að nokkrum mán­uðum eftir áfallið er fólki boðið að koma og taka þátt í hóp­vinnu með öðrum sem hafa misst barn á með­göngu,“ útskýrir hún. „Þar ræðir fag­fólk við hóp­inn og mér fannst rosa­lega gott að sækja þessa þerapíu. Ég hitti líka sál­fræð­ing á Land­spít­al­anum sem sér­hæfir sig á þessu sviði og það var mjög hjálp­legt. Við svona áfall fer maður dálítið að end­ur­meta lífið, þannig að mað­ur­inn minn hætti í vinn­unni og við fórum í ferða­lag saman og náðum að end­ur­hugsa það hvað okkur finnst mik­il­vægt í líf­inu og hvernig við vildum verja tíma okkar.“

Lestu við­talið í heild sinni í Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi