Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Óskrifuð regla að tala ekki um fósturmissi“

Hall­gerður Hall­gríms­dóttir mynd­list­ar­maður heldur nú sýn­ing­una Dauða­djúpar sprungur í gall­er­í­inu Ramskram á Njáls­götu. Þar sýnir hún ljós­myndir sem hún tók fyrstu mán­uð­ina eftir að dóttir hennar fædd­ist and­vana. Margar mynd­anna seg­ist hún ekki muna eftir að hafa tekið, henni hafi liðið eins og hún væri inni í sorg­ar­hjúp sem aðskildi hana frá ver­öld­inni.

„Óskrifuð regla að tala ekki um fósturmissi“
Auk ljós­mynd­anna verður Hall­gerður með sér­stætt hljóð­verk sem bygg­ist á því sem fóstrið heyrir inni í móð­ur­líf­inu. Hún segir það hluta af því að skapa þægi­legt and­rúms­loft á sýn­ing­unni.

„Ég fór upp á fæð­ing­ar­deild í sept­em­ber 2015 og hélt bara að ég væri að fara að fæða barnið mitt, sem ég gerði reyndar, en þegar ég var komin þangað fannst eng­inn hjart­sláttur hjá barn­inu,“ segir Hall­gerður um þá reynslu sem liggur að baki mynd­unum. „Þetta var stærsta áfall lífs míns og þegar ég kom heim af spít­al­anum vissi ég ekk­ert hvað ég ætti að gera. Eitt af því sem ég gerði þegar ég vakn­aði eftir fyrstu nótt­ina heima var að taka upp mynda­vél­ina og taka sjálfs­mynd, sem verður á sýn­ing­unni, og næstu mán­uði á eftir eigraði ég mikið um hverfið þar sem ég bjó og var nýflutt í. Ég fór líka mikið í bílt­úra með mann­inum mínum og væfl­að­ist bara eitt­hvað um. Ég var alls ekki með það í huga að vinna verk á þeim tíma, en svo fóru áteknu film­urnar að stafl­ast upp í ísskápnum og þegar ég tók eftir því fram­kall­aði ég film­urnar og fór að skoða mynd­irnar. Þá breytt­ist mín leið til að taka myndir pínu­lítið. Maður tekur myndir öðru­vísi þegar maður hefur ekk­ert ákveðið mark­mið í huga og ég mundi ekki einu sinni eftir því að hafa tekið margar af þessum myndum sem voru á filmunum.“

„Mér finnst að und­an­farna ára­tugi hafi það ekki endi­lega þótt mjög kúl eða flott að gera mynd­list sem ger­ist inni á heim­il­inu eða segja per­sónu­legar sögur, úr þessum kven­læga heimi sem inni­heldur óléttur og móð­ur­hlut­verkið og allt það.“

Sorgin dró hulu yfir allt

Hall­gerður segir í kynn­ingu á sýn­ing­unni að hún hafi að ein­hverju leyti notað mynda­vél­ina sem hlíf gegn þeim til­finn­ingum sem hún upp­lifði á þessum tíma.

„Já, kannski,“ við­ur­kennir hún. „Ég held að mynda­vélin fangi að ein­hverju leyti það sem er að brjót­ast um í und­ir­með­vit­und­inni. Þannig að mynd­irnar fanga líka sál­ar­á­stand ljós­mynd­ar­ans. Sumir segja að allar myndir sem ljós­mynd­arar taka séu sjálfs­myndir. Mér fannst á þessum tíma vera ótrú­lega mikil fjar­lægð milli mín og heims­ins. Mér leið eins og sorgin drægi hulu yfir allt, eins og ég væri föst í sömu sporum og tím­inn liði ekki fyrir mig heldur bara fyrir aðra. Upplifði þetta dálítið eins og dag­arnir væru seig­fljót­andi, svona eins og þegar mann dreymir að ein­hver sé að elta mann og maður reynir að hlaupa en tekst það ekki. Þetta ástand varði í um það bil ár og mynda­vélin var á milli mín og heims­ins.“

Spurð hvað fleira hún hafi gert til þess að reyna að vinna úr sorg­inni segir Hall­gerður að hún og eig­in­maður hennar, Sigurður Arent, hafi meðal ann­ars verið í stuðn­ings­hópi sem Land­spít­al­inn stendur fyrir fyrir fólk í þess­ari stöðu.

„Það er skipu­lagt þannig að nokkrum mán­uðum eftir áfallið er fólki boðið að koma og taka þátt í hóp­vinnu með öðrum sem hafa misst barn á með­göngu,“ útskýrir hún. „Þar ræðir fag­fólk við hóp­inn og mér fannst rosa­lega gott að sækja þessa þerapíu. Ég hitti líka sál­fræð­ing á Land­spít­al­anum sem sér­hæfir sig á þessu sviði og það var mjög hjálp­legt. Við svona áfall fer maður dálítið að end­ur­meta lífið, þannig að mað­ur­inn minn hætti í vinn­unni og við fórum í ferða­lag saman og náðum að end­ur­hugsa það hvað okkur finnst mik­il­vægt í líf­inu og hvernig við vildum verja tíma okkar.“

Trúði ekki að allt hefði gengið vel

Hall­gerður segir ekk­ert hafa bent til þess að neitt væri að fyrr en hún var komin á fæð­ing­ar­deild­ina með hríðir. „Ekki neitt,“ segir hún. „Ég var sko spræk­asta ólétta kona norðan Alpa­fjalla og ég reyni að kom­ast hjá því að tala um þetta við óléttar konur, þó að í lang­flestum til­fellum fari allt vel. Ég reyni stundum að kom­ast hjá því að nefna að mínar með­göngur hafi verið tvær af því að ég á bara eina dóttur sem er á lífi.“

Seinni dóttir Hall­gerðar fædd­ist rúmu ári eftir fyrri fæð­ing­una, var hún ekki skelf­ingu lostin alla með­göng­una?

„Jú, eða ég held að rétta svarið sé að ég var mjög hrædd,“ segir hún. „En ég sagði öllum að ég hefði það fínt og væri ekk­ert stressuð og ég held meira að segja að ég hafi trúað því sjálf, sem var auð­vitað ekki rétt. Ég held það hafi tekið mig um það bil viku að með­taka það að hún hefði komið í heim­inn heil á húfi. Ég gat bara ekki áttað mig á því að þetta hefði tek­ist. Í und­ir­með­vit­und­inni átti ég kannski alltaf von á því að það myndi ekki ganga. Það var hræði­leg líðan, en ég veit ekki hvernig mér hefði átt að líða öðru­vísi. Stundum verður maður bara að sætta sig við að það séu tíma­bil í líf­inu þar sem manni leið kannski ekki vel og það er svo und­ar­legt að stundum skilur maður ekki hversu langt niðri maður var og hversu illa manni leið fyrr en maður kemur upp úr dýp­inu og er farið að líða betur.“

En jafnar fólk sig nokkurn tím­ann full­kom­lega á því að hafa misst barnið sitt?

„Nei, og ég er ekk­ert viss um að ég vilji jafna mig full­kom­lega,“ segir Hall­gerður ákveðin. „Mér finnst ein­hvern veg­inn að Dýrleif, frum­burð­ur­inn minn, hafi breytt lífi mínu og breytt mér þótt ég hafi aldrei fengið að horfast í augu við hana. Og mér finnst að hún eigi að hafa gert það. Mér fynd­ist eig­in­lega sorg­legra ef hún hefði ekk­ert skilið eftir sig, þannig að maður lifir með sorg­inni og það er stundum ljúfsárt.“

„Við svona áfall fer maður dálítið að end­ur­meta lífið…“

Gott að hafa afsökun fyrir að tala um missinn

Það að fara að vinna í þessum myndum og setja saman sýn­ingu hlýtur að hafa kippt þér aftur í þennan tíma að ein­hverju leyti? „Já, ég var einmitt að hugsa um það þegar ég fór að skrifa kynn­ing­ar­text­ann fyrir sýn­ing­una,“ segir Hall­gerður. „Þetta er erfitt en þetta er gott. Ég hugs­aði; nú sit ég hér uppi í sófa með tár á kinn en ég valdi það sjálf að vera í þeirri stöðu að þurfa að setj­ast niður og skrifa þennan texta. Það er samt gott að hafa afsökun til þess að tala um hana og þessa reynslu vegna þess að hún hverfur aldrei.“

Margir sem hafa misst barn hafa talað um hvað öðru fólki virð­ist finn­ast erfitt að tala um það sem hefur gerst. Hall­gerður seg­ist skilja það vel.

„Fólk veit nátt­úr­lega bara ekk­ert hvað það á að segja,“ segir hún og brosir. „Og það er mjög skilj­an­legt. Ég hefði heldur ekk­ert vitað hvað ég ætti að segja við konu í þessum aðstæðum ef ég væri hinum megin borðs­ins. Ég finn það sjálf að ég er orðin miklu betri í því að eiga sam­skipti við fólk sem missir ein­hvern nákom­inn. Mér finnst ég hafa lært rosa­lega mikið af þessu en ég get svo sem ekk­ert gefið nein ráð um það hvað fólk á að segja, það er oft bara gott að fólk segi að það sé til staðar og segi ‚ég sam­hrygg­ist‘ þótt manni finn­ist það voða­lega klaufa­legt orða­lag á íslensk­unni. Þegar maður heyrir þessi orð í þess­ari stöðu er það samt svo fal­legt. Það þýðir bara að fólk upp­lifi sam­kennd með manni, eða ég tók því alla­vega þannig og fannst gott að heyra það. En svo vill maður stundum heldur ekk­ert sjálfur vera að tala um þetta. Stundum er maður bara í partíi og vill fá að hafa gaman.“

Hall­gerður Hall­gríms­dóttir Mynd / Unnur Magna

Óskrifuð regla að tala ekki um fósturmissi

Hall­gerður segir þau hjónin alltaf hafa verið mjög opin­ská um það sem kom fyrir, hafi sent frá sér Facebook-status um miss­inn og það hafi komið henni á óvart hvað margir höfðu sam­band til að ræða eigin upp­lifun eftir það.

„Það voru svo margir sem komu til mín og sögð­ust hafa lent í því sama fyrir kannski þrjá­tíu árum og höfðu aldrei beint talað um það,“ útskýrir hún. „Ég held þetta hafi verið svo mikið tabú svo lengi. Og þá er ég bæði að tala um fóst­ur­missi og and­vana fæð­ingar. Ég held að við séum komin svo­lítið lengra í dag og þetta þurfi ekki að vera feim­ins­mál lengur. Mér finnst samt skrýtið að fóst­ur­missir fyrir tólftu viku með­göngu sé enn þá eitt­hvað sem fólk á bara að eiga eitt með sjálfu sér. Það er alltaf talað um að maður eigi ekki að segja neinum frá ólétt­unni fyrr en eftir tólf vikna són­ar­inn og ég skil það alveg. En mér finnst samt athygl­is­vert að það sé pínu­lítið ætl­ast til þess að það sé bara einka­mál ef eitt­hvað kemur fyrir á þeim tíma og við eigum bara að halda áfram að mæta í vinn­una eins og ekk­ert hafi ískorist.

„Mig lang­aði að skapa ein­hvers konar vett­vang til þess að tala um þessa hluti.“

Ég er ekki viss um að það henti endi­lega öllum. Auðvitað verður fólk bara að hafa þetta eins og það vill en þetta er samt ein­hvers konar óskrifuð regla í sam­fé­lag­inu enn þá. Eitt af því sem mér fannst gott við að vinna þetta verk er að þótt þetta sé mjög per­sónu­legt verk og fjalli algjör­lega um mína upp­lifun þá er ég líka að reyna að búa til verk sem fólk getur kannski sam­samað sig með þótt það hafi ekki lent í nákvæm­lega því sama og ég. Mig lang­aði að skapa ein­hvers konar vett­vang til þess að tala um þessa hluti. Mér finnst að und­an­farna ára­tugi hafi það ekki endi­lega þótt mjög kúl eða flott að gera mynd­list sem ger­ist inni á heim­il­inu eða segja per­sónu­legar sögur, úr þessum kven­læga heimi sem inni­heldur óléttur og móð­ur­hlut­verkið og allt það. En mér finnst það reyndar líka vera að breyt­ast og mér finnst mik­il­vægt að reyna að taka þátt í því, þótt það hafi ekki verið hug­myndin upp­runa­lega. Og þótt sögu­lega hafi heim­ilið verið ríki kvenn­anna þá er það í dag allra og sorgin við að missa barn allra for­eldra, sama hvaða kyns þeir eru. Planið er að fylla rýmið af bleikum tjöldum og reyna að gera það pínu­lítið kven­legra. Þessi bleiki litur gæti ann­að­hvort verið antík­bleiki lit­ur­inn heima hjá ömmu en hann gæti líka verið svona inn­an­píku­bleikur og vísað til móð­ur­lífs­ins.“

Hall­gerður Hall­gríms­dóttir Mynd / Unnur Magna

Alltaf valkostur að verða listamaður

Auk ljós­mynd­anna verður Hall­gerður með sér­stætt hljóð­verk á sýn­ing­unni.

„Hljóð­verkið byggir á því sem fóstrið heyrir inni í móð­ur­líf­inu. „White noise“ og hjart­sláttur móð­ur­innar og ein­hvers konar vatns­hljóð. Hljóð sem oft eru notuð til að róa nýfædd börn þar sem hljóð­heim­ur­inn er allt annar utan móð­ur­lífs­ins. Það er líka hluti af því að skapa þægi­legt and­rúms­loft í gall­er­í­inu og um leið að draga hulur fyrir þannig að áhorf­endur geti ekki séð allar mynd­irnar í einu heldur þurfi að dansa um rýmið.“

Þótt ljós­mynd­unin sé aðal­mið­ill Hall­gerðar hefur hún þó unnið list í aðra miðla, meðal ann­ars skrifað ljóð og texta. Er það að blanda saman mynd­list og skrifum arfur frá föður hennar, Hall­grími Helga­syni, rit­höf­undi og mynd­list­ar­manni?

„Mér finnst ljós­myndun mjög heill­andi en mér finnst líka nauð­syn­legt að víkka hana aðeins út stundum, ann­að­hvort með texta eða hljóð­heimi. Hug­myndin á alltaf að ráða og sköp­unin þarf að fylgja henni. Ég hef farið kráku­stíga að mynd­list­inni, lærði upp­haf­lega fata­hönnun og vann svo í mörg ár sem blaða­maður þannig að ég hef oft­ast séð fyrir mér með skriftum og hver veit nema ég eigi eftir að gera meira af því að skrifa skáld­skap, það blundar alltaf í mér. Fyrst þú nefnir pabba þá hef ég einmitt verið að sjá það betur og betur hvað ég hef átt gott að búa að því að eiga pabba sem er lista­maður. Að hafa alltaf vitað að það sé val­mögu­leiki. Margir eru hræddir við að demba sér út í list­sköpun en fyrir mér var þetta alltaf ein­falt, maður gat alveg eins orðið mynd­list­ar­lista­maður og píp­ari, þótt það sé reyndar aðeins meiri haus­verkur að sjá fyrir sér sem mynd­list­ar­maður. En það er mjög margt fólk í báðum ættum sem vinnur fyrir sér með list og mað­ur­inn minn er sviðs­lista­maður þannig að ég hef alltaf meira og minna hrærst í heimi list­ar­innar.“

Sýningin Dauða­djúpar sprungur stendur frá laug­ar­deg­inum 22. febr­úar og til 22. mars, en vænt­an­legir sýn­ing­ar­gestir þurfa að hafa í huga að gall­erí Ramskram er ein­ungis opið um helgar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi