Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hallgerður sýnir ljósmyndir teknar eftir að dóttir hennar fæddist andvana

Hall­gerður Hall­gríms­dóttir mynd­list­ar­maður hefur opnað sýn­ing­una Dauða­djúpar sprungur í gall­er­í­inu Ramskram á Njáls­götu. Þar sýnir hún ljós­myndir sem hún tók fyrstu mán­uð­ina eftir að dóttir hennar fædd­ist and­vana. Margar mynd­anna seg­ist hún ekki muna eftir að hafa tekið, henni hafi liðið eins og hún væri inni í sorg­ar­hjúp sem aðskildi hana frá ver­öld­inni.

Hallgerður sýnir ljósmyndir teknar eftir að dóttir hennar fæddist andvana
Auk ljós­mynd­anna verður Hall­gerður með sér­stætt hljóð­verk sem bygg­ist á því sem fóstrið heyrir inni í móð­ur­líf­inu. Hún segir það hluta af því að skapa þægi­legt and­rúms­loft á sýn­ing­unni.

Auk ljós­mynd­anna er Hall­gerður með sér­stætt hljóð­verk á sýn­ing­unni.

„Hljóð­verkið byggir á því sem fóstrið heyrir inni í móð­ur­líf­inu. „White noise“ og hjart­sláttur móð­ur­innar og ein­hvers konar vatns­hljóð. Hljóð sem oft eru notuð til að róa nýfædd börn þar sem hljóð­heim­ur­inn er allt annar utan móð­ur­lífs­ins. Það er líka hluti af því að skapa þægi­legt and­rúms­loft í gall­er­í­inu og um leið að draga hulur fyrir þannig að áhorf­endur geti ekki séð allar mynd­irnar í einu heldur þurfi að dansa um rýmið.“

„Mér finnst að und­an­farna ára­tugi hafi það ekki endi­lega þótt mjög kúl eða flott að gera mynd­list sem ger­ist inni á heim­il­inu eða segja per­sónu­legar sögur, úr þessum kven­læga heimi sem inni­heldur óléttur og móð­ur­hlut­verkið og allt það.“

Þótt ljós­mynd­unin sé aðal­mið­ill Hall­gerðar hefur hún þó unnið list í aðra miðla, meðal ann­ars skrifað ljóð og texta. Er það að blanda saman mynd­list og skrifum arfur frá föður hennar, Hall­grími Helga­syni, rit­höf­undi og mynd­list­ar­manni?

„Mér finnst ljós­myndun mjög heill­andi en mér finnst líka nauð­syn­legt að víkka hana aðeins út stundum, ann­að­hvort með texta eða hljóð­heimi. Hug­myndin á alltaf að ráða og sköp­unin þarf að fylgja henni. Ég hef farið kráku­stíga að mynd­list­inni, lærði upp­haf­lega fata­hönnun og vann svo í mörg ár sem blaða­maður þannig að ég hef oft­ast séð fyrir mér með skriftum og hver veit nema ég eigi eftir að gera meira af því að skrifa skáld­skap, það blundar alltaf í mér. Fyrst þú nefnir pabba þá hef ég einmitt verið að sjá það betur og betur hvað ég hef átt gott að búa að því að eiga pabba sem er lista­maður. Að hafa alltaf vitað að það sé val­mögu­leiki. Margir eru hræddir við að demba sér út í list­sköpun en fyrir mér var þetta alltaf ein­falt, maður gat alveg eins orðið mynd­list­ar­lista­maður og píp­ari, þótt það sé reyndar aðeins meiri haus­verkur að sjá fyrir sér sem mynd­list­ar­maður. En það er mjög margt fólk í báðum ættum sem vinnur fyrir sér með list og mað­ur­inn minn er sviðs­lista­maður þannig að ég hef alltaf meira og minna hrærst í heimi list­ar­innar.“

Sýningin Dauða­djúpar sprungur var opnuð laug­ar­dag­inn 22. febr­úar og stendur til 22. mars, en vænt­an­legir sýn­ing­ar­gestir þurfa að hafa í huga að gall­erí Ramskram er ein­ungis opið um helgar.

Lestu við­talið í heild sinni í Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi