Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þeir sem minnst hafa óttast að stíga út fyrir rammann

Þeir sem minnst hafa óttast að stíga út fyrir rammann

Beiðnum um aðstoð vegna kostn­aðar við ferm­ingar barna fer ekki fjölg­andi, að sögn for­svarskvenna Hjálp­ar­starfs kirkj­unnar og Mæðra­styrks­nefndar, en leitað er leiða til að gera aðstoð­ina fjöl­breytt­ari og umhverf­is­vænni. Þær segj­ast þó merkja að fólk hafi minni fjár­ráð nú en und­an­farin ár.

„Við höfum verið að reyna að fá fólk til að stíga aðeins út fyrir rammann og minnka kostnað og sóun í ferm­ing­ar­veislu­haldi,“ útskýrir Vilborg Odds­dóttir, félags­ráð­gjafi hjá Hjálp­ar­starfi kirkj­unnar. „Ferm­ing­ar­föt eru til dæmis mjög oft notuð bara einu sinni, sér­stak­lega af strák­unum, og við erum með mikið af nán­ast ónot­uðum jakka­fötum sem henta ferm­ing­ar­drengjum og fólk getur fengið hjá okkur. Sömu sögu er að segja af því skrauti sem notað er í ferm­ing­ar­veislum, það er bara nýtt þennan eina dag og aldrei meir. Það fær­ist stöðugt í vöxt að fólk komi með skrautið til okkar strax eftir ferm­ing­una og við bjóðum öðrum sem halda þurfa ferm­ing­ar­veislur að koma og velja sér það skraut sem þeim hentar. Þannig reynum við að vekja fólk til meiri með­vit­undar um end­ur­nýt­ingu og minnka sóun­ina sem oft fylgir svona veislum.“

Sjálfsmynd fátækasta fólksins skekkt

Vilborg útskýrir að Hjálp­ar­starf kirkj­unnar aðstoði fólk á þeim stöðum þar sem Mæra­styrks­nefnd er ekki með starf­semi, oft í sam­starfi við Kven­fé­lög á stöð­unum, Rauða kross­inn og prest­ana sem vísi fólki, sem á í fjár­hags­erf­ið­leikum, til Hjálp­ar­starfs­ins. Hún segir beiðnum um aðstoð vegna ferm­inga ekki fara fjölg­andi, þær hafi nokkurn veg­inn staðið í stað í nokkur ár og felist til dæmis í fata­gjöfum, inn­eign­ar­kortum í mat­vöru­versl­unum eða inn­eign­ar­kortum í fata­versl­unum. Hún segir Hjálp­ar­starfið kapp­kosta að aðstoða alla sem til þess leita, en þeir sem illa séu staddir fjár­hags­lega kynoki sér oft við því að leita hjálpar.

„Annað sem ein­kennir þá sem minnst hafa milli hand­anna er að þeir eru hræddir við að stíga út fyrir hefð­bund­inn ramma ferm­ing­ar­halds, þeir vilja hafa allt sam­kvæmt hefð­inni; áprent­aðar serví­ettur, áprentuð kerti, allt í litasjatt­er­ingum og svo fram­vegis. Sjálfs­mynd þeirra er svo skekkt að þeim finnst þeir ekki vera að standa sig í stykk­inu ef þeir fara út fyrir þann ramma. Okkur sem höfum það gott og erum örugg­ari með stöðu okkar finnst ekk­ert mál að brjóta regl­urnar, nota ósam­stæðar servéttur og venju­leg kerti, til dæmis, en það gengur hægt hjá okkur að fá fátæk­asta fólkið til að sam­þykkja að það sé mögu­leiki.“

Nýjum Íslendingum fjölgar mest

Spurð hvort það sé hennar til­finn­ing að fleiri í sam­fé­lag­inu hafi úr litlu að spila segir Vilborg að sam­kvæmt hennar reynslu af hjálp­ar­starf­inu séu það fyrst og fremst nýir Íslend­ingar sem búi við skarðan hlut.

„Margt af því fólki fær ekki menntun sína metna hér og fær því lægst laun­uðu störfin, verður að leigja sér hús­næði með him­in­hárri leigu, ann­ars fær það ekk­ert hús­næði og svo fram­vegis,“ útskýrir hún. „Við þurfum að fara að vinna betur í því hvernig við tökum á móti nýjum Íslend­ingum og hvernig við búum að þeim hér.“

Greinilegt að fólk hefur úr minna að spila

Anna Pét­urs­dóttir, for­maður Mæðra­styrks­nefndar í Reykja­vík, tekur í sama streng og Vilborg varð­andi fjölda beiðna, tekur reyndar fram að beiðn­irnar í ár séu ekki allar komnar, en þetta líti út fyrir að verða svip­aður fjöldi og und­an­farin ár, um það bil þrjá­tíu beiðnir.

„Það hefur lítið breyst þessi síð­ustu ár,“ segir hún. „Fyrir nokkrum árum voru beiðn­irnar fimm­tíu eitt árið, en ann­ars hefur fjöld­inn hald­ist nokkuð stöð­ugur. Lang­sam­lega flestir sem til okkar leita um fjár­hags­að­stoð við ferm­ing­ar­hald er fólk sem fær aðra styrki hjá okkur, það kemur nán­ast varla fyrir að ein­hver leiti til okkar um aðstoð ein­göngu vegna ferm­ingar.“

Þrátt fyrir að fjöldi þeirra sem leitar til Mæra­styrks­nefndar hald­ist nokkuð stöð­ugur seg­ist Anna greini­lega merkja að fólk hafi minni fjár­ráð nú en und­an­farin ár.

„Já, það er alveg greini­legt að fólk hefur úr minna að spila,“ segir hún. „Það ger­ist alltaf þegar það er nið­ur­sveifla í hag­kerf­inu, slíkt hefur ævin­lega mest áhrif á þá sem minnst hafa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi