Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslenskur detox-hópur á flótta undan kórónaveirunni – „Ekkert annað í stöðunni en að fara út í kuldann og myrkrið“

Íslenskur detox-hópur á flótta undan kórónaveirunni – „Ekkert annað í stöðunni en að fara út í kuldann og myrkrið“
||adsd

Hópur Íslend­inga sem var í detox­ferð í Póllandi átti fótum sínum fjör að launa í gær­kvöldi við að kom­ast burt úr land­inu áður en því var lokað. Talskona hóps­ins segir að á tíma­bili hafi hún upp­lifað hálf­gert stríðs­á­stand.

Hrönn Hjálm­ars­dóttir, heilsu­m­ark­þjálfi og far­ar­stjóri hóps Íslend­inga.

„Þetta er mjög súr­r­eal­ískt, bara eins að vera stödd í bíó­mynd. Ég er enn að átta mig á að þetta sé að ger­ast,“ segir Hrönn Hjálm­ars­dóttir, heilsu­m­ark­þjálfi og far­ar­stjóri hóps Íslend­inga sem slapp með naum­indum frá Póllandi á sunnu­dags­kvöld áður en land­inu var lokað vegna aðgerða stjórn­valda til að hefta útbreiðslu COVID-19 kór­óna­veirunnar.

Hópurinn var hálfn­aður með tveggja vikna heilsu­ferð í bænum Chmielno, sem er í tæp­lega klukku­tíma akst­urs­fjar­lægð frá Gdansk í Póllandi, þegar honum voru kunn­gjörð þau tíð­indi að til stæði að loka land­inu.

Hrönn segir frétt­irnar hafa komið flestum í hópnum í opna skjöldu því fólk hafi reiknað með að geta klárað ferð­ina þrátt fyrir ástandið og því hafi þurft snör hand­tök til að koma hópnum, níu konum og einum karli, yfir til Vilnius í Litháen.

„Við vorum nefni­lega svo græn að vorum fyrst poll­ró­leg og þurftum því að hafa hraðar hendur til að koma okkur burt. Ég skoð­aði á Netinu hvaða leiðir stæðu til boða, meðal ann­ars þann mögu­leika að fara með ferju niður til Sví­þjóðar en það gekk ekk­ert að bóka með henni og þá upp­götv­aði ég sem betur fer að það var flug með Wizz air frá Vilniusi til Íslands í kvöld [mánu­dags­kvöld]. Þannig að við bók­uðum okkur í það í snatri og hót­el­eig­and­inn hjálp­aði okkur að finna rútu sem gat ekið okkur að landa­mærum Póllands og Litháen.“

Að sögn Hrannar tók ferða­lagið sex klukku­stundir og um tíma var alls ekki útséð með það hvort hóp­ur­inn kæmst á leið­ar­enda. „Fyrir það fyrsta var ekk­ert auð­velt að fá rútu til að sækja okkur í Litháen. Það vildi ekk­ert rútu­fyr­ir­tæki gera það,“ útskýrir hún.

„En svo hafð­ist það til allrar lukku með aðstoð eins í hópnum, hann þekkti til manns í Litháen og sá hafði milli­göngu um það að útvega rútu. Við vorum svo komin lang­leið­ina að landa­mær­unum þegar við fréttum að rútan sem ætl­aði að koma og sækja okkur í Litháen hefði lent í slæmum árekstri og væri óöku­hæf. Við náðum að redda annarri en um leið og bíl­stjór­inn frétti að við værum Íslend­ingar neit­aði hann af ein­hverri ástæðu að ná í okkur. Og þá voru góð ráð dýr.“

Þegar rútan kom að landa­mærum Póllands tóku á móti henni pólskir lög­reglu­bílar og vopn­aðir landamæra­verðir. Hrönn segir að sem betur fer hafi bíl­stjór­inn hjálpað þeim að talað við landamæra­verð­ina og náð að útskýra stöð­una fyrir þeim og í fram­hald­inu hafi þeir hleypt íslenska hópnum í gegn.

„Þeir sögð­ust hins vegar ekki vita hvernig Lit­há­arnir kæmu til að taka á móti okkur,“ segir hún. „En það var ekk­ert annað í stöð­unni en að fara út í kuld­ann og myrkrið og draga far­ang­ur­inn með okkur í gegnum þetta einskis­manns­land og yfir til Litháen.“

Fór ekki út í smáatriði til að hræða ekki börnin

Hrönn segir að mikil óvissa hafi ein­kennt ferð­ina, þar sem hóp­ur­inn hafi ekki vitað hverjar  mót­tök­urnar yrðu í Litháen og hvort hópnum yrði yfir­leitt hleypt yfir landa­mærin. Til að bæta gráu ofan á svart hafi hóp­ur­inn fengið óstað­festar fréttir um að búið væri að fella niður allt flug til og frá Litháen og því óvíst hvort yrði af ferð­inni heim til Íslands. Hrönn, sem er gift tveggja barna móðir, seg­ist hafa verið í reglu­legu sam­bandi við fjöl­skyld­una sína heima á Íslandi meðan á þessu stóð en hún hafi gætt að fara ekki út í smá­at­riði til að hræða ekki börnin.

Ánægð með að hafa valið að flýja

Hrönn við­ur­kennir að hóp­ur­inn hafi verið svo­lítið á báðum áttum með að taka sjens­inn og láta af þessu verða, en hún seg­ist nú vera ánægð með þá ákvörðun þar sem lit­há­esku landamæra­verð­irnir hafi bless­un­ar­lega hleypt þeim í gegn og rúta flutt þau upp á hótel í Vilniusi, þar sem íslenski hóp­ur­inn dvelur nú. Að öllu óbreyttu fljúgi þau með Wizz air heim í kvöld.

„Við erum auð­vitað þvæld eftir þessa ell­efu tíma sem tók að kom­ast hingað upp á hótel en í raun erum við samt furðu róleg, ekki síst í ljósi þess að þetta var hálf­gert stríðs­á­stand í gær,“ segir Hrönn, þegar hún er spurð út hvernig íslenski hóp­ur­inn hafi það. „Við erum líka þakk­lát fyrir það að hafa verið keyrð upp á hótel og glöð með að kom­ast heim, ef allt gengur eftir.“

Ferðin skrítin byrjun

Þetta er fyrsta ferðin af þessi tagi sem Hrönn hefur milli­göngu um í Póllandi og hún við­ur­kennir að þetta sé svo­lítið skrítin byrjun. „Svo átti að vera önnur ferð um pásk­ana en hún hefur verið felld niður. Núna stefni ég á að bjóða upp á næstu ferð í októ­ber.“

Þetta hlýtur að setja strik í reikn­ing­inn hjá ykkur? „Auðvitað gerir þetta það. En ef við horfum á ljósu punkt­ana þá náðum við samt viku á Wichrowe heilsu­hót­el­inu og erum nokkuð spræk, hót­elið ætlar bara að rukkar okkur fyrir tím­ann sem við dvöldum þar, Wizz air end­ur­greiðir flugið frá Póllandi til Íslands og við erum von­andi að fara að fljúga heim í kvöld og ættum að lenda klukkan 20 á íslenskum stað­ar­tíma. Við­bót­ar­kostn­að­ur­inn er bara fólg­inn í rútum, hót­elum og nýju flugi. Í ljósi þess hversu hratt þetta gerð­ist, að öllu skyldi vera lokað svona skyndi­lega, og manni leið eins og í bíó­mynd þá virð­ist sem betur fer ætla að ræt­ast úr þessu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi