Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Sem betur fer tókum við hundinn með til Spánar“

„Sem betur fer tókum við hundinn með til Spánar“
Gutti á Spáni

„Þetta er ansi skrítið. Sem betur fer tókum við hund­inn með okkur, þótt ætl­unin sé ekki að vera hér mjög lengi. Það má fara út að labba með hund­inn sinn. Þeir sem eiga ekki hund mega aðeins fara út í búð, eða sinna brýn­ustu erindum,“ segir Ásmundur Helgason sem er staddur á Spáni, í litlum bæ í Valencia hér­aði ásamt eig­in­konu sinni, Elínu G. Ragn­ars­dóttir.  Ásmundur og Elín fluttu út um sama leyti og hörm­ungar kór­óna­veirunnar dundu yfir og upp­lifa nú útgöngu­bann ásamt hund­inum Gutta.

Ásmundur, Elín og hund­ur­inn Gutti. Mynd / Aðsend

En nú virð­ist vera að rofa til. Eftir hörmu­lega daga og vikur örlar nú fyrir bjart­sýni í hjörtum Spán­verja. Dán­ar­talan náði hámarki 25. mars þegar 738 manns lét­ust sól­ar­hring­inn þar á undan. Hafði þá dán­ar­talan hækkað hvern dag frá 16. mars og nú er svo komið að 4.098 hafa fallið fyrir hinum ill­víga vírus. Góðu frétt­irnar, ef það má kalla þær svo, eru þær að í hádeg­inu 26. mars var til­kynnt að „aðeins“ 655 hefðu lát­ist und­an­far­inn sól­ar­hring. Dán­ar­talan lækk­aði sem sagt og hefur það kveikt von um að kúrfan fari lækk­andi, að það versta sé brátt að baki.

Alls­herjar útgöngu­bann var sett á þann 15. mars á Spáni og nú, ell­efu dögum síðar, er von­ast til að það sé farið að skila árangri. Heil­brigð­is­mála­ráð­herra Madríd­ar­hér­aðs Enrique Ruiz Escudero sagði í fjöl­miðlum í morgun að hann bygg­ist við að hámarki hörm­ung­anna yrði náð á morgun, föstu­dag, eða um helg­ina. „Sá tíma­punktur þar sem Madrid greinir færri sjúka en 24 tíma þar á undan nálg­ast hratt. Við munum jafn­vel sjá það ger­ast um helg­ina.“ Þó ótt­ast Enrique að fjöldi smit­aðra í Madrid sé mun meiri en þau 17.000 til­felli sem hafa verið greind, að til­fellin gætu jafn­vel verið um 50.000. Það sama gildi fyrir aðra hluta lands­ins, að á Spáni sé raun­veru­leg tala smit­aðra um 700.000, á meðan opin­bera talan telur rétt um 56.000 smit­aða ein­stak­linga.

Útgöngu­bannið sem sett var á 15. mars átti upp­haf­lega að standa í tvær vikur en hefur nú verið fram­lengt til 11. apríl. Nú hafa öll hótel lokað en áður hafði nán­ast öllum öðrum fyr­ir­tækjum verið lokað. Aðeins mat­vöru­versl­anir, apó­tek og bankar eru nú opnar. Útgöngu­bann­inu er fylgt stíft eftir af lög­reglu og fylgst er með því að fólk fari eitt út í búð, aðeins einn aðili fari út að ganga með hund­inn og að í hverjum bíl sé aðeins ein mann­eskja. Þeir sem brjóta regl­urnar geta átt von á sekt.

„Lög­reglan fylgist stíft með og höfum við hjónin verið stoppuð tvisvar sinnum“

„Lög­reglan fylgist stíft með og höfum við hjónin verið stoppuð tvisvar sinnum. Fyrst vorum við tvö í bíl, sem er bannað og svo vorum við að svindla þannig að annað var með hund­inn en hitt með inn­kaupa­poka. Við vorum sem betur fer ekki sektuð heldur beðin um að hund­skast heim,“ segir Ásmundur.

Drauga­bær Mynd / Aðsend

„Allar götur eru mann­lausar og það er í raun eins og við búum í draugabæ. Öll veit­inga­hús lokuð. Allt er lokað nema apó­tek og mat­vöru­versl­anir. Þegar farið er út í búð er talið inn og svo er bara röð fyrir utan, með tveggja metra bili á milli fólks. Þeir einu sem eru á ferli eru aðrir hunda­eig­endur. Og þeir eru beðnir um að fara í stutta göngut­úra. En klukkan átta á hverju kvöldi fer fólk út í glugga, út á svalir eða út í hurð til þess að klappa og blístra fyrir heil­brigð­is­starfs­fólki. Þannig að bær­inn lifnar við í fimm mín­útur á hverju kvöldi,“ segir Ásmundur.

„Spán­verjar eiga erfitt með að átta sig á af hverju vírus­inn virð­ist dreifa sér hraðar hér en á Ítalíu og í Kína og hafa í raun ekki komið með neina skýr­ingu á því. Ef það er hægt að tala um smit­skömm þá er sú skömm að verða ansi þykk hérna á Spáni. En nú er bara að vona að útgöngu­bannið fari að skila því sem það átti að skila. Í dag eru fyrstu merki um það og von­andi halda töl­urnar áfram að batna næstu daga.“

Hér fyrir neðan má sjá mynd­band sem Ásmundur birti á Facebook-síðu sinni af helstu áföngum ferða­lags­ins frá Reykja­vík til Spánar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi