Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hugsunargangur landans er að breytast

Hugsunargangur landans er að breytast

Áhugi lands­manna á garð­yrkju tók helj­ar­stökk eftir banka­hrun og vex með hverju árinu. Auður I. Ottesen, smiður og garð­yrkju­fræð­ingur, býst við spreng­ingu í líf­rænni ræktun innan tíu ára enda vilji þjóðin rækta eigið græn­meti og ávexti í stað þess að reiða sig á inn­flutn­ing.

Vafa­laust eru fáir Íslend­ingar með jafn­græna fingur og Auður I. Ottesen, smiður og garð­yrkju­fræð­ingur, sem hefur frá árinu 2000 gefið út tíma­ritið Sum­ar­húsið og garð­ur­inn ásamt eig­in­manni sínum Páli Jökli Pét­urs­syni, auk þess sem hún hefur gefið út ell­efu garð­yrkju­bækur, haldið fjölda nám­skeiða og staðið fyrir stórum garð­yrkju­sýn­ingum und­an­farin ár. Hjónin hafa búið á Selfossi síðan árið 2011 þar sem þau halda m.a. nám­skeið og skipu­leggja hátíðir í garð­inum heima hjá sér. Banka­hrunið og yfir­stand­andi heims­far­aldur eiga það sam­eig­in­legt að hennar sögn að hafa vakið áhuga ólíkra hópa í sam­fé­lag­inu á garð­yrkju. „Áhugi á garð­yrkju tók helj­ar­stökk í banka­krepp­unni árið 2009. Fyrir þann tíma átti allt að vera svo ljóm­andi fínt í garð­inum en garð­yrkju­verkin sjálf máttu alls ekki vera tíma­frek, allt átti að vera fyr­ir­hafn­ar­laust. Þetta gjör­breytt­ist í efna­hags­hrun­inu, ekki síst hjá unga fólk­inu sem fyllti alla glugga af tómata­plöntum og potta­blómum. Skóla­garð­arnir sem var búið að afleggja var breytt í grennd­ar­garða og þangað flykkt­ist fólk með fræ og for­rækt­aðar plöntur um allt land til að rækta til matar.“

Breytt hugsun

Þá varð teng­ingin við nátt­úr­una lífs­nauð­syn­leg og lopa­peysan og gúmmí­túttur urðu vin­sælar á ný. „Vöru­bretti og allt sem var end­ur­nýt­an­legt komst í tísku. Til marks um áhug­ann voru garð­yrkju­síður þær fjöl­menn­ustu á Facebook. Hverjum hefði dottið í hug að síða sem Haf­steinn Haf­liða­son garð­yrkju­fræð­ingur stofn­aði um potta­plöntur næði 25.000 vinum? Í COVID-19 far­aldr­inum er ánægju­legt að verða vitni að því að unga fólkið sem býr í blokkum gerir nú kröfu um að fá hluta af tún­unum við blokk­ina undir ræktun á græn­meti. Það gleður mitt garð­yrkju­hjarta.“

..

Hún seg­ist vera nokkuð bjart­sýn á enn frek­ari áhuga lands­manna á ræktun, þá helst líf­rænni ræktun. „Ég á von á spreng­ingu í líf­rænni ræktun innan tíu ára. Hugs­un­ar­gangur land­ans er að breyt­ast, bæði vegna jarð­teng­ing­ar­innar og vegna alvar­legs ástands í lofts­lags­málum. Einnig finn ég fyrir auk­inni kröfu um að þjóðin geti ræktað sitt eigið græn­meti og ávexti í stað þess reiða sig á inn­flutn­ing. Ég gleðst yfir öllum röddum sem gera kröfu um að garð­yrkju­bændur fái betri kjör á raf­magni til að fram­leiða sam­keppn­is­hæfar afurðir. Svo fagna ég COVID-19 lausnum rík­is­stjórn­ar­innar þar sem fjár­munum er ráð­stafað í nýsköpun í mat­væla­iðn­aði. Slíkt gefur nýút­skrif­uðu fag­fólki tæki­færi sem var áður ógern­ingur án stuðn­ings.“

Breyttir kennsluhættir

Sam­komu­bannið hafði áhrif á nám­skeiða­hald Auðar, eins og aðra, en vorin eru stór ver­tíð fyrir hana. Þetta tíma­bil hefur þó verið lær­dóms­ríkt fyrir hana eins og fleiri þar sem hún lærði m.a. á Zoom-for­ritið og færði um leið nám­skeiðin sín yfir á netið. „Ég hef frá árinu 2009 kennt rúm­lega 2.000 manns að rækta krydd- og mat­jurtir og ýmis­legt annað tengt garð­yrkju- og sum­ar­húsa­líf­inu, m.a. í sér­hönn­uðum sýn­ingar- og kennslu­garði á heim­ili okkar hjóna á Selfossi.“

.

Yfir­færslan yfir á netið sló svo sann­ar­lega í gegn. „Fyrsta nám­skeiðið var á vegum Far­skól­ans á Sauð­ár­króki og Símennt­un­ar­mið­stöðvar Eyja­fjarðar. Nám­skeiðið seld­ist upp og ég kenndi þremur hópum þar að for­rækta græn­meti og að rækta græn­meti og krydd í úti­rækt. Það má eig­in­lega segja að nám­skeiðin hafi slegið í gegn og nú hef ég kennt í öllum lands­hlutum og nem­end­urnir orðnir rétt um 200. Þetta hefur verið ofboðs­lega gaman og gef­andi.“

Yngri karlar sækja á

Hún segir það jákvætt að bæði ungt og eldra fólk sæki nám­skeiðin. „Tæplega helm­ingur hefur aldrei ræktað áður en vill rækta sitt eigið krydd og græn­meti og verða sjálf­bær­ari. Konur hafa hingað til verið í miklum meiri­hluta en karlar sækja á, sér­stak­lega yngri karl­menn sem hafa brenn­andi áhuga á ræktun.“

Þrátt fyrir allt er hún bjart­sýn á sum­arið og nefnir þar til sög­unnar eigið verk­efni sem hún kallar Kíktu í skúr­inn til Auðar. „Ég stefni á að bjóða upp á verk­leg nám­skeið í bíl­skúrnum sem ég er að rífa núna og end­ur­smíða. Námskeið í garð­yrkju, smíði garð­hús­gagna og er fram í sækir steypu­verka. Svo vil ég geta farið að taka á móti gestum í garð­inn.“

Lifandi tákn

Ef allt gengur eftir mæta gestir á við­burð­inn Stefnu­mót við Múlatorg 18. júlí í garð­inum hjá þeim hjónum. „Ég vona inni­lega að þetta geti orðið því ég elska að hitta fólkið mitt og miðla af öllu því sem við erum að fást við í garð­inum. Að öllu óbreyttu munum við bjóða upp á hand­verks- og lista­markað og vöru­sölu fyrir garð- og sum­ar­húsa­eig­endur. Lifandi tón­list ómar allan dag­inn og við erum með ljós­mynda- og lista­sýn­ingar í garð­inum auk þess að sýna hvernig hægt er að smíða garð­hús­gögn, steypa skraut­muni og ýmis­legt garð­yrkju­tengt.“

Auður ætlar einnig í sumar að vinna að sjálf­bærri garð­yrkju í upp­hækk­uðu beði sem er í miðjum garð­inum en þar ræktar hún fjöld­ann allan af teg­undum sem allar gefa af sér til átu. „Ég er hreykin af beð­inu mínu því það er lif­andi tákn um að það er hægt að ná mun betri árangri með líf­rænni ræktun með ána­möðkum í hund­raða­vís sem næra plönt­urnar með eigin skít. Mér sýn­ist að upp­skeran úr þessu beði sé um 30% meiri en í hefð­bund­inni ræktun í grennd­ar­garð­inum þar sem ég rækta líka.“

Texti / Starri Jónsson
Myndir / Aðsendar

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi