Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Drangaskörð og heiðin ófeiga

Drangaskörð og heiðin ófeiga
Útsýni frá Ófeigs­fjarð­ar­heiði. Kálfatindar í fjarska. Mynd: rt

Eitt harð­býlasta en jafn­framt mest heill­andi svæði á Íslandi er að finna við ystra haf, á Ströndum. Fæstir lands­manna hafa komið í Árnes­hrepp, þar sem veg­ur­inn endar, eins og Hrafn Jök­uls­son orð­aði það svo snilld­ar­lega. Þar er að finna svæði þar sem tím­inn hefur nán­ast staðið í stað. En þó hefur hrepp­ur­inn verið inni í umræð­unni und­an­farin ár vegna stór­felldra áforma HS-orku og hluta heima­manna um að reisa virkjun í Ófeigs­firði. Fórn­ar­kostn­að­ur­inn átti að verða sá að stórum hluta heið­ar­innar yfir firð­inum og Eyvind­ar­firði átti að sökkva undir þrjú risa­stór uppi­stöðu­lón. Hin kalda krumla stór­iðj­unnar að eyði­leggja svæði sem er eitt af stærstu ósnortnu víð­ernum lands­ins. Þessu hafa margir mót­mælt og vilja vernda nátt­úr­una fremur en fórna henni í þágu pen­inga­afla sem fæstu eira. Nú hefur virkj­unin verið slegin af, í bili að minnsta kosti.

Litla kaupfélagið

Fjölmörg tæki­færi eru til úti­vistar á Ströndum. Í Norð­ur­firði er að finna eitt minnsta „kaup­fé­lag“ lands­ins þar sem íbú­arnir kaupa nauð­synjar og hitt­ast til að spjalla. Örfáum kíló­metrum frá er sund­laugin í Kross­nesi sem heillar alla þá sem skella sér í sund. Sund­laugin er úti­laug. Þaðan sér yfir Húnaflóa. Reykja­nes­hyrna, eitt feg­ursta fjall lands­ins blasir þar við. Göngu­ferð á Hyrnuna er létt en gefur þeim sem stendur á hæsta tindi frá­bært útsýni á sól­björtum degi. Það er ekki laust við að göngu­maður tárist yfir feg­urð­inni þar sem Dranga­skörðin bera við.

Önnur göngu­leið er á Örkina sem stendur við utan­verðan Reykja­fjörð, sunnan við Reykja­nes­hyrnu. Örkin er rúm­lega 640 metra há og létt­gengin frá Kjörvogi. Drauma­út­sýni rétt eins og á Kálfatindum, sem gnæfa yfir Norð­ur­firði. Tind­arnir eru álíka háir og Örkin en gangan er mun erf­ið­ari. Bratt er síð­a­stra spöl­inn en þó á færi flestra sem ekki glíma við loft­hræðslu á hæsta stigi.

Dulmögnuð Glissa

Glissa er 720 metra hátt fjall á mörkum Ing­ólfs­fjarðar og Reykja­fjarðar syðri. Gangan hefst á Mela­hálsi þaðan sem gengið er um svo­nefndan Smalaveg. Þar sem göngu­maður fer af veg­inum er stikuð leið á topp­inn. Ferða­fé­lag Íslands stóð fyrir því verk­efni sum­arið 2018. Glissa er eitt allra fal­leg­asta fjallið á Ströndum og býr yfir ákveð­inni dulúð. Sá sem einu sinni gengur á Glissu vill gjarnan koma aftur. Þegar þoka liggur yfir, eins og stundum ger­ist á Ströndum, þá ríkir dul­mögnuð stemn­ing á fjall­inu. Nafnið Glissa er í dag ráð­andi en í gömlum kortum er talað um Glifsu. Menn telja að Glissa þýði gleið skessa. Ganga á Glissu er á flestra færi. Alls gengur fólk um 10 kíló­metra vega­lengd. Leiðin upp er að mestu um Tré­kyll­is­heiði en snörp hækkun er síð­asta kafl­ann á topp­inn. Suma kann að sundla á síð­asta áfang­anum ofan við Unn­ar­skarð.

Göngu­ferð á Gissu.

Drynjandi

Und­an­farin ár hafa margir lagt leið sína að Hvalá til að sjá þann magn­aða foss Drynj­anda sem fellur tugi metra fram af brún. Best er að fara yfir göngu­brú á Hvalá og ganga upp með ánni norð­an­verðri. Þegar ofar dregur þarf að krækja fyrir gil til að kom­ast að foss­inum. Drynj­andi ber nafn sitt með rentu því nokkru áður en hann birt­ist heyr­ast drun­urnar. Nokkru sunnar er foss­inn Rjúkandi sem er með því ein­kenni að sjá má guf­urnar frá honum um langan veg. Báðir eru þessir fossar gull­fal­legir. Þeir sem hafa til þess úthald ganga alla leið upp að Hvalár­vötnum og sjá svæðið sem skipu­lagt var til að fara undir lón. Ekki er úr vegi að tjalda á milli vatn­anna. Á sól­ar­degi verður ferða­mað­ur­inn upp­num­inn. Dranga­jök­ull er hluti af sviðs­mynd­inni ásamt him­in­bláum vötnum sem römmuð eru inn af gróð­ur­litlu landi. Í austri blasa Kálfatindar við.

Fossinn Dynjandi.

Fjörður barónsins

Eyvind­ar­fjörður er næsti fjörður norðan Ófeigs­fjarðar. Sá fjörður er að hluta í eigu ítalsks bar­óns sem seldi vatns­rétt­indin til virkj­ana­manna og setti þar með Eyvind­ará á dauða­lista. Göngu­maður sem fer upp með Eyvind­ará sér fossa sem slá út flest annað í feg­urð. Sá stærsti þeirra er öld­ungis magn­aður þar sem hann brýst fram af ógn­ar­krafti. Tómas Guð­bjarts­son, hjarta­læknir og nátt­úru­vernd­ar­sinni, nefndi foss­inn Greifa­foss til háð­ungar hinum ítalska örlaga­valdi.

Hrikaleg fegurð

Norðan við Eyvind­ar­fjörð er Dranga­vík. Þar er feg­urðin hrika­leg. Dranga­skörðin eru við norð­an­verða vík­ina. Það er fólki ógleym­an­legt að ganga fyrir skörðin og upp­lifa þá fágætu nátt­úru­smíð. Víst er að refir eru þar á stjákli. Sumir halda því fram að hundur nokkur, fram­lið­inn, gangi þar ljósum logum.

Þetta er sum­arið þegar Íslend­ingar ferð­ast inn­an­lands. Það er kjörið fyrir fólk að fara á Strandir og njóta alls þess víð­ernis og hrika­legrar feg­urðar sem nátt­úran býr yfir. Einnig býðst fólki að fara í skipu­lagðar ferðir um svæðið.

Undurfögru Drangaskörð

Dagana 17. til 21. júní er ferð sem hefst í Norð­ur­firði. Siglt verður í Dranga­vík. Fólk er ferjað í land en far­ang­ur­inn fluttur áfram að Dröngum. Gengið út með Dröng­unum sunn­an­verðum og norður um Signýjar­götu­skarð. Haldið með skörð­unum norð­an­verðum að Dröngum þar sem far­ang­ur­inn bíður. Tjaldað og grillað. Daginn eftir verður gengið upp Húsadal að Neðra-Húsa­dals­vatni. Kíkt í nátt­úru­laug. Siglt aftur í Norð­ur­fjörð. Gengið á Reykja­nes­hyrnu og byggða­safnið Kört heim­sótt. Nánar á fi.is.

Himinblá heiðarvötn

Ferða­fé­lag Íslands býður upp tjald­ferð um virkj­ana­svæði Hval­ár­virkj­unar 1.-6. júlí. Siglt er með Strand­ferðum frá Norð­ur­firði í Eyvind­ar­fjörð.

Þátt­tak­endur skoða vötnin og foss­ana sem í dag eru gull­fal­leg nátt­úru­undur en munu ýmist hverfa eða taka miklum breyt­ingum ef af fyr­ir­hug­uðum virkj­ana­á­formum verður. Ferða­mað­ur­inn fær að kynn­ast kyrrð heið­anna og him­in­bláum vötn­unum. Þá liggur leiðin með­fram gull­fossum Eyvind­ar­fjarðar.

Gengið með allt á bak­inu í fjóra daga, gist í tjaldi í þrjár nætur og í húsi Ferða­fé­lags Íslands að Val­geirs­stöðum í tvær nætur. Nánar á fi.is.

Sungið á Örkinni

Bæki­stöðv­ar­ferð á vegum Ferða­fé­lags Íslands í Norð­ur­fjörð frá 7.-10. ágúst.

Þátt­tak­endur koma á eigin vegum að Val­geirs­stöðum. Haldið í Ófeigs­fjörð og gengið að foss­inum Rjúkanda sem er einn sá fal­leg­asti á Ströndum. Daginn eftir verður gengið á Finn­boga­staða­fjall og á Örkina. Komið við í safn­inu Kört. Synt í Kross­neslaug. Heimsókn á Gjögur á heim­leið­inni. Nánar á fi.is.

Höfundur er skála­vörður Ferða­fé­lags Íslands og far­ar­stjóri á Ströndum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi