Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Lærdómsríkt ferðalag“

RVK Feminist Film Festival er brak­andi ný alþjóð­leg kvik­mynda­há­tíð sem hófst í gær og stendur fram á sunnu­dag, 19. jan­úar. Hátíðin er haldin í Bíó Paradís, Icelandair Hótel Marina og Norræna hús­inu og segja skipu­leggj­endur hennar að við­tök­urnar hafi eig­in­lega farið fram úr björt­ustu vonum.

„Lærdómsríkt ferðalag“
|||Gabrielle Kelly||

„Ég er með fiðr­ing í mag­anum af spenn­ingi en ann­ars er svo mikið sem þarf að gera að maður hefur varla tíma til þess að hugsa um það,“ segir Lea Ævars­dóttir, hátíð­ar­stjóri RVK Feminist Film Festival, í sam­tali við Mannlíf og játar að það sé eig­in­lega svolítð skrítið að sjá hvernig þetta drauma­verk­efni hefur tek­ist á loft.

Hátíðin, sem hóf göngu sína í gær, er að sögn þeirra Leu og Nöru Walker, fram­kvæmda­stjóra hátíð­ar­innar, sú fyrsta sinnar teg­undar á Íslandi. „Það var að vísu haldin sér­stök kvik­mynda­há­tíð kvenna á Lista­há­tíð kvenna árið 1985,“ tekur Lea glað­lega fram, „en þetta er fyrsta fem­iníska kvik­mynda­há­tíðin sem hefur verið haldin á Íslandi.“ Hún segir hátíð­ina vera hugs­aða sem and­svar við þeim kynja­halla sem ríkir meðal kvik­mynda­leik­stjóra á heims­vísu. „Það er nefni­lega slá­andi hversu lítil pró­senta af konum leik­stýrir kvik­myndum á heims­vísu miðað við karla,“ bendir hún á. „Okkur langar að taka þátt í því að jafna þennan kynja­halla,“ segir Nara, „og þess vegna verða bara sýndar kvik­myndir eftir kven­kyns­leik­stjóra.“

Lea segir að kjarn­inn í hátíð­inni sé að efla konur í kvik­mynda­gerð, styrkja tengsla­netið með því að skapa rými fyrir konur í brans­anum til að kynn­ast, hvetja til umræðna og sam­vinnu, fá fleiri fyr­ir­myndir fyrir ungar upp­renn­andi kvik­mynda­gerð­ar­konur og koma kvik­myndum eftir kven­leik­stjóra frekar á fram­færi. Á hátíð­inni sé mikið lagt upp úr fjöl­breytni og því verði alls kyns spenn­andi myndir og við­burðir í boði. Í því sam­hengi nefnir hún fyr­ir­lestur Wendy Gurrero, hjá Geena Davis Institute on Gender in Media, sem mun fjalla um hvernig staðalí­myndir kvik­mynda og fjöl­miðla hafa áhrif á líf og metnað stúlkna og kvenna, og vinnu­stofu í stutt­mynda­gerð með Gabrielle Kelly, virts fram­leið­anda hjá American Film Institute. Að ógleymdri FEM Circle-ferð um Suð­ur­landið með Pink Iceland sem verður með „ein­stöku fem­inísku ívafi“. Þar fyrir utan verði ara­grúi áhuga­verðra kvik­mynda til sýnis og því ættu allir að geta fundið eitt­hvað við sitt hæfi.

„Ég er með fiðr­ing í mag­anum af spenn­ingi.“

Ótrúlegar undirtektir

En hvernig kvikn­aði eig­in­lega hug­myndin á hátíð­inni? „Ætli það megi ekki segja að lít­ill neisti hafi kviknað þegar ég kynnt­ist hátíð­ar­stjóra Stockholm Feminist Film Festival fyrir þremur árum. Ári áður hafði ég komið heim úr kvik­mynda­námi og fannst þá skorta almenni­legt tengsla­net hérna, og þessi kynni urðu til þess að mig fór að dreyma um að gera eitt­hvað í mál­unum. Sama ár kynnt­ist ég Nöru og var alltaf að tala um þessa hátíð. Loks sagði mað­ur­inn minn mér að kýla bara á þetta og þá fékk ég auð­vitað Nöru með mér í verk­efnið.“

„Já, ég var mjög spennt fyrir því að taka þátt,“ segir Nara glöð.

Lea við­ur­kennir að hún hafi ekki tekið þátt í að skipu­leggja hátíð af þessu tagi áður, það komi sér því vel að hafa Nöru sem hafi meiri reynslu en hún af því að setja upp lista­sýn­ingar. Sjálf komi hún þó með sína reynslu af kvik­mynda­fram­leiðslu að borð­inu. „Nara hefur verið með mér í þessu frá byrjun og það hefur gengið á ýmsu en við erum svoddan skör­ungar að við látum fátt aftra okkur. Saman erum við óstöðv­andi,“ segir hún hlæj­andi og nefnir að ekki sé lengra síðan en haustið 2018 sem for­vinna að upp­setn­ingu hátíð­ar­innar hófst, þegar m.a. var haf­ist handa við að sækja um styrki og leitað eftir sam­starfs­að­ilum.

Og að sögn þeirra beggja hafa und­ir­tekt­irnar ekki látið á sér standa. „Við­brögðin hafa verið sterk og komið úr ýmsum áttum,“ segir Lea. „Við vorum til dæmis varla fyrr búnar að setja upp vef­síðu og Facebook-síðu þegar konur fóru að hafa sam­band og við höfum kynnst mörgum kjarna­konum í brans­anum og höfum lært mikið af þeim. Við­brögðin hafa verið ótrú­leg. Þetta hefur verið væg­ast sagt lær­dóms­ríkt ferða­lag.“

En stendur til að gera halda hátíð­ina árlega? „Já, þetta verður árlegur við­burður,“ segir hún. „Það er nauð­syn­legt að vinna að því að konur og aðrir minni­hluta­hópar fái vett­vang til að láta raddir sínar heyr­ast.“

Gabrielle Kelly

Virtur framleiðandi og handritshöfundur

Laug­ar­dag­inn 18. jan­úar munu þátt­tak­endur vinna í að þróa stutt­mynda­hand­rit sín með Gabrielle Kelly, hand­rits­höf­undi og fram­leið­anda, sem starfar við Amerísku kvik­mynda­stofn­un­ina í Los Angeles. Gabrielle hefur ára­langa reynslu af því að leiða hand­rits­nám­skeið um heim allan. Hún hefur meðal ann­ars starfað hjá HBO, CBS Films, Eddie Murphy Productions og Warner Bros. Gabrielle er höf­undur bók­ar­innar Celluloid Ceiling; Kven­leik­stjórar bjót­ast í gegn – Bylt­ing­ar­kennd rann­sókn kven­leik­stjóra víðs­vegar að úr heim­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi