Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vasulka áhrifin tilnefnd til Eddunnar og sýnd á RÚV á mánudaginn

Heim­ilda­myndin Vasulka áhrifin (e.The Vasulka Effect) er til­nefnd til Eddunnar í flokknum Heim­ilda­mynd árs­ins en til­nefn­ingar til Eddunnar 2020 voru kynntar í gær. Myndin verður á dag­skrá RÚV á mánu­dags­kvöld.

Hrafn­hildur Gunn­ars­dóttir leik­stýrir mynd­inni sem hefur verið í vinnslu í á sjötta ár, Margrét Jón­as­dóttir fram­leiðir og er myndin fram­leidd af Sagafilm og Krumma Films í sam­starfi við Radim Procházka í Tékk­landi, Bullitt Film í Danmörku og Nonami í Svíþjóð.

Myndin er unnin upp úr um þús­und klukku­stundum af myndefni sem komu úr einka­safni Vasulka hjón­anna, þar sem meðal ann­ars mátti finna áður óséð myndefni af Andy Warhol, Jimi Hendrix, Miles David, Jethro Tull, Jackie Curtis, Candy Darling, Patty Smith og fleirum.

Vasulka áhrifin er heim­ilda­mynd um vid­eólista­frum­kvöðl­ana Steinu og Woody Vasulka. Myndin tvinnar saman lífi þeirra Steinu og Woody frá því þau hitt­ast fyrst í Prag í Tékkóslóvakíu árið 1959 þar sem þau voru bæði við nám, hún að læra á fiðlu og hann kvik­mynda­gerð. „Viltu gift­ast mér?“ voru fyrstu orðin sem Woody sagði þegar hann var kynntur fyrir Steinu og hún svar­aði „Já, ef þú gerir við vespuna mína!“. Þar með var örlaga­þráð­ur­inn spunn­inn.

Vasulka áhrifin er heim­ilda­mynd um vid­eólista­frum­kvöðl­ana Steinu og Woody Vasulka.

Hrafn­hildur Gunn­ars­dóttir leik­stjóri segir: „Ég fór af stað til þess að gera mynd um Steinu Vasulka lista­mann en þegar ég hóf að vinna und­ir­bún­ings­vinnu fyrir mynd­ina varð mér ljóst að það var ekki hægt að búa bara til mynd um Steinu. Hún og WoodyVasulka eru í raun sam­ofin sem tvíeyki inn­pakkað í Vasulka vöru­merkið þannig að mér varð fljót­lega ljóst að myndin varð að fjalla um þau bæði.“

HUGAR, Bergur Þórisson og Pétur Jónsson sömdu tón­list við mynd­ina, og Vaclav Flegl sá um hljóð­hönnun, en þús­und klukku­stund­irnar klippti Jakob Hall­dórs­son niður í 85 mín­útur. Arnar Þór Þórisson og Hrafn­hildur Gunn­ars­dóttir sáu um kvik­mynda­töku en Árni Bene­dikts­son um hljóð­upp­töku.

Vasulka áhrifin verður sýnd á RÚV mánu­dags­kvöldið 9. mars kl. 22:20

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi