Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Batman á góðu flugi

Batman á góðu flugi
Í draum­starf­inu. Pétur starf­aði meðal ann­ars sem umsjón­ar­maður mynda­sögu­deildar Nexus frá 1997 til 2006 áður en hann tók við starfi rit­stjóra Blöku-sag­anna.

Unnendur mynda­sagna eiga gott í vændum því versl­unin Nexus, sem sér­hæfir sig meðal ann­ars í sölu á mynda­sögum og borð­spilum, hyggst gefa allar Batman-sögur skoska mynda­sögu­höf­und­ar­ins Grant Morrison út á íslensku. Þegar hafa nokkrar sagn­anna litið dags­ins ljós undir merkjum Blök­unnar og nokkur eldri verk að auki og segir rit­stjór­inn Pétur Yngvi Leósson að vegna góðra und­ir­tekta sé stefnt að því að halda starf­inu áfram.

„Útgáfan gengur vonum framar,“ segir Pétur, þegar hann er spurður hvort útgáfan hrein­lega beri sig og sem dæmi nefnir hann að það sé jafn­vel eft­ir­spurn eftir Blöku-bók­unum frá íslenskum söfn­urum sem eru búsettir í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. For­vars­menn útgáf­unnar hafa áður sagt að hún sé fyrst og fremst ástríðu­verk­efni sem miði meðal ann­ars að því að fá ung­menni til að lesa, en Pétur seg­ist ekki vera með upp­lýs­ingar í hönd­unum um ald­urs­skipt­ingu kaup­enda. Með hlið­sjón af fyrr­greindu sé þó vel hægt að ráð­gera að ald­urs­bilið sé breitt, enda höfði sög­urnar um Batman til fólks á öllum aldri.

„Mér til mik­illar furðu höfðu sumar af þeim aðeins varð­veist í svart-hvítu á mikrófilmum sem voru geymdar í skjala­hirslum DC Comics.“

Auðheyrt er að mik­ill hugur er í Nexus-fólki því Pétur bætir við að lang­tíma­tak­markið sé svo að gefa út á næstu þremur til fjórum árum allar Batman-sögur skoska mynda­sögu­höf­und­ar­ins Grant Morrison, sem komu út á árunum 2006-2013, ásamt öllum lyk­il­sög­unum sem Morrison vitnar í í verkum sínum. Hann seg­ist ekki eiga von á öðru en að það gangi upp enda hafi við­tök­urnar verið góðar og sam­starfið við banda­ríska mynda­sögu­fyr­ir­tækið DC Comics, sem gefur út sög­urnar um Batman og ýmsar fleiri hetjur, gengið vel.
„DC-mönnum er alveg ljóst að við nálg­umst þýð­ingar og útlits­breyt­ingar af virð­ingu og auð­mýkt og þeir hafa mjög gaman af öllum gömlu káp­unum sem við erum búin að íslenska að fullu,“ segir hann léttur í bragði.

DC hafði efasemdir í upphafi

Mynda­sög­urnar sem Nexus hefur íslenskað og gefið út undir merkjum Blök­unnar sam­an­standa af nokkrum eldri sögum og svo fyrr­nefndum sögum Morrison sem hófust með níundu bók Blök­unnar, sem kom út fyrir jól. Nexus raðar sög­unum þannig að saman mynda sögur Morri­sons og eldri sög­urnar hálf­gerða ævi­sögu Batmans, en að sögn Péturs hafa þær aldrei verið settar fram í réttri lesröð áður. Spurður hvers vegna þessi leið hafi verið farin segir hann að sögur Morri­sons séu ein­fald­lega áhuga­verð­ustu ofur­hetju­mynda­sögur sem hafi rekið á fjörur hans og fyrst ákveðið hafi verið að gefa þær út hafi hrein­lega ekki verið hægt að sleppa eldri sög­unum sem Morrison vísar reglu­lega í.

„Það sem vakti fyrir Morrison á sínum tíma var að skrifa ein­hvers konar ímynduð Ragnarök fyrir heild­ar­út­gáfu­sögu Leð­ur­blöku­manns­ins með því að blanda langri útgáfu­sögu hans í plottið,“ útskýrir hann. „Sögurnar hans vitna þannig stundum í löngu gleymdar sögur, sem sumar hverjar voru ófá­an­legar þegar sögur Morri­sons sjálfs voru að koma út. Ég kol­féll fyrir sög­unni hans og fór að fín­kemba öll við­töl við hann til að skrá­setja nákvæm­lega hvaða sögur þetta væru sem vitnað væri í. Mér til mik­illar furðu höfðu sumar af þeim aðeins varð­veist í svart-hvítu á mikrófilmum sem voru geymdar í skjala­hirslum DC Comics,“ lýsir hann og við­ur­kennir að þegar hann hafði fyrst sam­band við DC um að íslenska sögur Morri­sons hafi fyr­ir­tækið talið að sagan væri of flókin fyrir nýja les­endur. „En eftir að þeir sáu rann­sókn­ar­vinn­una á bak við útgáfuplanið okkar gáfu þeir okkur grænt ljós til að hefj­ast handa við að gefa þessar eldri sögur út í réttri lesröð.“

Forfallinn myndasöguaðdáandi

Und­ir­bún­ingur að útgáfu á mynda­sög­unum hófst í jan­úar 2018 og 16. nóv­em­ber sama ár, nánar til­tekið á Degi íslenskrar tungu, leit fyrsta Blakan, þ.e. Leð­ur­blakan #8, dags­ins ljós. „Þetta er eina Blakan sem er tutt­ugu síðna frí­blað en ekki þykk bók, en því var dreift til grunn­skóla­barna í 7.-10. bekk um land allt. Blaka #1 kom svo út í kjöl­farið, í byrjun des­em­ber það ár,“ segir Pétur, en hann hefur gegnt starfi rit­stjóra verk­efn­is­ins frá upp­hafi, sér um val á sögum, ann­ast texta­upp­setn­ingu, let­ur­val og mynd­vinnslu og hefur auk þess starfað sem þýð­andi sagn­anna frá og með sjö­undu og níundu bók og upp úr.

Þegar við spjöllum um útgáf­una fer ekki á milli mála að Pétur hefur brenn­andi ástríðu fyrir starf­inu, enda seg­ist hann hafa lesið mynda­sögur frá því hann man eftir sér. „Ég byrj­aði að remb­ast við að lesa hasar­blöð á ensku fimm ára, árið 1979 þegar ég fékk Daredevil #158 í hend­urnar, en það er fyrsta hasar­blaðið sem ég eign­að­ist og fyrsta Daredevil-sagan sem mynda­sögu­goðið Frank Miller teikn­aði. Ég var svo þrettán ára þegar ég fór að panta mér hasar­blöð frá Banda­ríkj­unum,“ rifjar hann glað­lega upp og játar að hann sé enn ákafur safn­ari með óþrjót­andi áhuga á flestu sem teng­ist góðum hasar­blöðum.

Hann segir að það sé því algjör draumur að fá að koma sög­unum yfir á íslensku. Þetta sé í raun starf sem hann hafi séð í hill­ingum þegar hann var yngri en þá hafi hann oft óskað sér að hægt væri að nálg­ast sam­bæri­legar sögur með almenni­legri let­ur­gerð og í þýð­ingu svip­aðri í gæðum og íslenska þýð­ingin á Sögunni enda­lausu eftir Michael Ende. „En ekki vand­ræða­legar bein­þýð­ingar og stein­gelda prent­fonta eins og tíðk­að­ist hjá Siglu­fjarð­ar­prent­smiðj­unni og fleirum í den. Ég safn­aði öllum blöð­unum frá Sigló en bein­þýð­ing­arnar hjá þeim og let­ur­valið komu mér hrein­lega í upp­nám,“ segir hann og hlær.
Spurður hvenær sé svo von á næstu Blöku-bók segir hann að það sé nú ekki langt í það, þar sem sú tíunda sé þegar farin í prentun. Þeir sem séu áhuga­samir geti síðan alltaf fylgst með frek­ari fregnum á Facebook-síðu Nexus.

_______________________________________________________________________

Kafað ofan í undarlegustu mál kuflklædda krossfarans

Eins og fram kemur hér að ofan áætlar Nexus að gefa út allar Batman-sögur Grant Morri­sons, svokölluð Blöku-Ragnarök, sex bækur á ári, ásamt lyk­il­sög­unum sem Morrison vitnar í. „Saga Morri­sons hefst s.s. í níundu bók af Blöku sem kom út rétt fyrir jól,“ segir Pétur og bætir við að hún sé hlaðin til­vís­unum í eldri lyk­il­sögur, sem birt­ust í fyrstu átta bók­unum af Blökunni. „Í fyrstu Blöku árs­ins, tíundu bók­inni, er síðan farið í næstu fjóra kafl­ana í sögu Morri­sons, upp­runa­lega Batman #663, 664, 665 og 666, frá árinu 2007,“ heldur hann áfram. „Þar afhjúpar hetjan Batman m.a. svo­kall­aða Svarta mála­skrá, þ.e. leyni­lega skrá sem hann hefur haldið yfir öll furðu­leg­ustu málin sem hann hefur lent í í gegnum tíð­ina, svona svo­lítið í anda X-Files, með vís­anir í blöð frá 6. ára­tugnum, þar sem sög­hetjan glímir við geim­verur og ýmsar aðrar furðu­verur.“

Pétur segir að sög­urnar sem Morrison vitnar í séu stundum sögur sem margir Batman-aðdá­endur hafi helst viljað gleyma, vegna þess hversu absúrd og barna­legar þær þyki. En höf­undar þeirra hafi ein­fald­lega neyðst til að taka U-beygju í efn­is­tökum á sínum sem rekja megi til árs­ins 1954 þegar banda­ríski geð­lækn­ir­inn Frederic Wertham stóð fyrir áróð­urs­herð gegn mynda­sögum og höf­undum þeirra sem lauk með því að lögum var komið yfir þetta sögu­form og ýmis­legt rit­skoðað. „Mynda­sögur sem lög­uðu sig að stöðlum lög­gjaf­ar­innar voru þannig gefnar út með litlum stimpli efst í hægra horni sem á stóð „Samþykkt af mynda­sögu­eft­ir­lit­inu“,“ segir hann, „en það átti að gefa til kynna að þær hefðu að geyma barn­vænt efni. Þetta úti­lok­aði m.a. raun­sæjar lýs­ingar á glæpum í blöð­unum sem skýrir meðal ann­ars af hverju glæpa­menn fóru að víkja fyrir geim­verum og öðrum furðu­verum í Batman-sög­unum og drunga­legt sögu­svið Gotham-borgar tók að minna á lit­ríka djass-klúbba.“

Í hugum margra aðdá­enda stendur þetta tíma­bil eftir sem hálf­gerður smán­ar­blettur á sögu Batmans, að sögn Péturs. „En sú stað­reynd að sögu­hetjan gat þolað tæpan ára­tug af alls konar furðu­leg­heitum án þess að glata aðdrátt­ar­afli sínu vakti hins vegar áhuga Morri­sons,“ bætir hann við. „Og hann fékk þá snilld­ar­hug­mynd að nota þessar sögur til að skoða hetj­una í nýju ljósi með því að kynna til sög­unnar fyrr­nefnda Svarta mála­skrá, sem hefur að geyma öll furðu­leg­ustu málin sem Batman hefur lent í. Og þetta notar Morrison sem und­an­fara að máli í eigin verki þar sem kafað er ofan í und­ar­leg­asta mál kufl­klædda kross­far­ans til þessa, en um það er einmitt fjallað í lokakafla vænt­an­legrar Blöku-bókar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi