Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Uppskriftin að fallegri viðarplötu í eldhúsinu

Við­ar­borð­plötur í eld­húsum eru góð leið til þess að fá meiri hlý­leika inn á heim­ilið. Gott er að velja gegn­heilar plötur en þær end­ast lengi og þola vel með­höndlun. Það er þó ýmis­legt sem þarf að hafa í huga varð­andi við­hald á slíkum plötum og þurfa þær góða umhirðu svo þær end­ist sem best.

Uppskriftin að fallegri viðarplötu í eldhúsinu

Þar sem við­ar­borð­plötur eru til staðar er áhættu­samt að kaupa und­ir­límdan vask. Flestir borð­plötu­fram­leið­endur ábyrgj­ast ekki plöt­urnar þar sem slíkur vaskur er en aukin hætta er á sprungu­skemmdum. Raki á greið­ari leið inn í skurðsárið og eru dæmi um að plötur hafi klofnað eftir endi­löngu. Besta lausnin er að velja sér vask sem situr ofan á borð­plöt­unni. Einnig ætti síður að velja blönd­un­ar­tæki sem fest­ast beint ofan í borð­plöt­una sjálfa. Óhrein­indi geta safn­ast fyrir umhverfis tækin og lita­breyt­ingar komið fram í viðnum.

Hægt er að olíu­bera við­arplötur eða lakka þær. Kost­ur­inn við olí­una er sá að auð­velt er að við­halda fal­legri áferð. Ef högg­skemmdir verða er auð­velt að pússa upp aðeins þann hluta sem er skemmdur og olíu­bera hann aftur. Komi högg­skemmdir í lakk þarf að pússa upp alla plöt­una og lakka hana upp á nýtt. Olían er einnig vist­vænni kostur.

Ef borð­platan þín er alger­lega ómeð­höndluð er nauð­syn­legt að olíu­bera hana vel bæði undir og yfir en mik­il­vægt er að sama raka­stig sé í borð­plöt­unni allri. Ef platan er ein­ungis olíu­borin að ofan­verðu er hætta á að hún verp­ist með tím­anum og skemmist. Olíubera þarf allt að fjórum sinnum í fyrsta skiptið sem borið er á plöt­una. Áður en platan er olíu­borin er mik­il­vægt að engin óhrein­indi séu til staðar, því er gott að þrífa flöt­inn með rakri tusku og leyfa honum síðan að þorna vel áður en haf­ist er handa.

Algjört lyk­il­at­riði er að velja líf­ræna olíu sem má kom­ast í snert­ingu við mat­væli.
Ekki nota sterk sápu­efni við þvott. Viður hefur nátt­úru­lega eig­in­leika til þess að hrinda frá sér bakt­er­íum svo vatn og mild sápu­efni duga vel. Mynd / Úr safni

Ef olíu­bera á plötu sem hefur verið olíu­borin áður er einnig mik­il­vægt að byrja á því að þrífa burt öll óhrein­indi með rakri tusku og fjar­lægja bletti séu þeir til staðar. Sum óhrein­indi, líkt og fitu­blettir, nást ekki alltaf af ein­ungis með tusku og því er gott að nota sand­pappír og juð­ara en einnig til þess að rjúfa yfir­borðið og opna við­inn svo hann taki betur við olí­unni.

Þegar viður er púss­aður er gott að hafa það sem reglu að strjúka alltaf í sömu átt og við­ar­æð­arnar liggja. Eftir að platan er pússuð er mik­il­vægt að strjúka yfir flöt­inn með þurri tusku í sömu átt og æðarnar í viðnum liggja til þess að varna því að ryk safn­ist fyrir í sam­skeytum og mis­fellum (þar sem við­ar­fyllir hefur verið not­aður) séu þær til staðar. Að þessu loknu er ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að byrja að olíu­bera. Gott er að nota sápu­lausan svamp í verkið og ekki á að spara olí­una í fyrstu umferð og við­ur­inn ætti að drekka olí­una vel í sig. Mik­il­vægt er að láta plöt­una þorna vel á eftir. Þegar hún erorðin þurr eru skrefin end­ur­tekin en þó með aðeins fínni sand­pappír en við fyrstu umferð.

Ef bleyta sest ofan á yfir­borðið er mjög mik­il­vægt að þurrka hana burt sem fyrst en bleyta getur skilið eftir sig bletti.

Alltaf er mik­il­vægt að hreinsa burtu ryk sem safn­ast fyrir við pússun því ann­ars geta kekkir mynd­ast í olí­unni og yfir­borðið orðið hrjúft. Þessi skref eru end­ur­tekin eins oft og þurfa þykir. Við síð­ustu umferð er best að nota tusku í stað svamps. Um leið og við­ur­inn er orð­inn mett­aður hættir hann að drekka í sig olí­una og litlir pollar geta mynd­ast ofan á yfir­borð­inu. Þá er mik­il­vægt að þurrka yfir­borðið með þurri tusku og fjar­lægja alla umfram olíu. Sé vandað til verks­ins er auð­velt að við­halda fal­legri áferð og olíu­bera þarf sjaldnar. Við­arplötur sem vel er hugsað um end­ast kyn­slóðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni