Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Eyjubóndi í Þjórsá

Á fal­legri og afskekktri eyju í Þjórsá býr Hákon Kjalar Hjör­dís­ar­son ásamt hund­inum Skugga í tæpa sex mán­uði á ári hverju. Árið 1676 varð mikið flóð á svæð­inu sökum ísstíflu og er losn­aði um hana flæddi Þjórsá yfir bakka sína og tún Traust­holts, hólm­ur­inn aðskild­ist frá land­inu og áin streymdi sitt hvoru megin við hann.

Eyjubóndi í Þjórsá

Traust­holts­hólmi er stað­settur í 20 mín­útna akst­ursleið frá Stokks­eyri skammt upp frá ósum árinnar rétt utan bæj­ar­ins Hólmasels, um þriggja mín­útna sigl­ing er svo frá árbakk­anum út í eyj­una.

Mynd / Unnur Magna
Mynd / Unnur Magna

Traust­holts­hólmi hefur verið í eigu fjöl­skyldu Hákons síðan árið 1940, en þá keypti ömmu­systir hans hólmann ásamt eig­in­manni sínum. Bærinn var byggður árið 1943 og var þá fyrsta steypta húsið á svæð­inu, en einnig er Traust­holts­hólmi lík­lega eina byggða eyjan í jök­ulá á Íslandi. Við spyrjum eyju­bónd­ann hvernig landið hafi eig­in­lega endað í hans höndum? „Mamma erfði eyj­una á níunda ára­tugnum þegar systir hennar ömmu lést. Árið 2016 þegar ég átti fer­tugs­af­mæli fékk ég landið frá mömmu í fyr­ir­fram­greiddan arf og hefur Traust­holts­hólmi verið undir mínum væng síðan.“

Mynd / Unnur Magna

Eyjan er 23 hekt­arar að stærð og er svæðið talið vera ein af fyrstu land­náms­jörð­unum. „Á næstu árum verður farið í upp­gröft á land­inu og til að mynda fannst hér eld­stæði á 2,5 metra dýpi síðan fyrir árið 1000,“ segir Hákon. Á eyj­unni er einnig afar fjöl­breytt dýra­líf en þar má finna villtan lax í ánni, mik­inn fjölda fugla­teg­unda og síðan synda selir við af og til.

Sjálfbærnin í fyrirrúmi

Blaða­maður og ljós­mynd­ari bíða við árbakk­ann eftir fari sínu í hólmann og allt í einu birt­ast Hákon og hund­ur­inn Skuggi handan árinnar og hoppa upp í bát sem siglir í okkar átt. Eftir stutta og hressandi báts­ferð leggjum við að landi á áfanga­stað. Við erum leiddar að lít­illi bryggju þar sem eyj­ar­skegg­inn leggur út net í ána nán­ast dag­lega og í þetta skiptið er veiðin tíu lax­fiskar, sem hann segir nokkuð mikið enda sé hápunktur veiði­tíma­bils­ins um þessar mundir. Fisk­arnir eru vel flæktir í net­inu og tekur það tölu­verðan tíma að fá þá lausa. „Það er ákveðin hug­leiðsla að vinna með net, stundum er allt pikk­fast og ég vill helst rífa þetta í tætlur. Maður þarf að tengja við sinn innri mann og anda með nef­inu,“ segir Hákon meðan hann heldur áfram að leysa fisk­ana úr flækj­unni. Hann verkar fisk­inn og býður okkur upp á dýr­indis ceviche (hrár fiskur með sítrónu) við árbakk­ann og erum við sam­mála um að þetta sé lík­lega ferskasti fiskur sem við höfum í okkur látið.

Mynd / Unnur Magna
Mynd / Unnur Magna

Ásamt því að veiða sinn eigin fisk ræktar Hákon einnig kart­öflur og annað græn­meti á land­inu. Hann seg­ist reyna að stunda sjálfs­þurft­ar­bú­skap eftir besta megni en það séu alltaf ein­hver mat­væli sem maður þurfi að kaupa, eins og olía, salt, pipar og fleira í þeim dúr. Á Traust­holts­hólma er ekk­ert heitt vatn, heldur er bor­hola með köldu vatni sem síðan er upp­hitað. „Ég nota gasofna til upp­hit­unar en auð­vitað væri ósk­andi að geta fram­leitt nægi­legt raf­magn til að geta hitað upp á annan hátt.“ Hákon nýtir bæði sól­ar­pan­ela og vind­myllu til raf­magns­fram­leiðslu.

Mynd / Unnur Magna
Mynd / Unnur Magna

Áhersla á upplifun og staðbundið hráefni

Haustið 2015 sótti Hákon um hjá Startup Tourism og hlaut styrk frá þeim til upp­bygg­ingar á eyj­unni. Hann segir þetta hafa verið ákveðin kafla­skil því nú gat hann haft atvinnu af því að dvelja á sínum upp­á­halds­stað yfir sum­ar­mán­uð­ina. „Ég reyni að vera hér frá miðjum apríl fram í lok sept­em­ber ef veður leyfir en mig langar líka rosa­lega að prófa að vera hér heilan vetur – bara til að hafa gert það en það verður nú lík­lega bara í eitt skipti ef af því verður,“ bætir hann við.

Mynd / Unnur Magna

Traust­holts­hólmi var opn­aður fyrir almenn­ingi sum­arið 2016 og segir Hákon það hafa gefið honum tæki­færi á að sjá eyj­una með augum ann­arra. Þegar hann tekur á móti gestum byrjar hann á því að sýna þeim svæðið og sækir svo ferskan lax úr net­inu, verkar hann og býður upp á sushi og ceviche niðri á bryggju. „Fólki finnst þetta merki­legt en við erum orðin svo fjar­læg matnum okkar, krakkar halda að eplin komi úr búð­inni en ekki af trjánum. Ég reyni að nýta það sem er stað­bundið, lax, kart­öflur, salat og jurtir – eins og hvönn, birki­lauf, rabar­bara, hunda­súru í sal­atið og blóð­berg í te og sem krydd.“

Mynd / Unnur Magna
Mynd / Unnur Magna
Mynd / Unnur Magna
Mynd / Unnur Magna

Gestir eyj­unnar eyða nótt­inni í mongólskum tjöldum eða yurts eins og þau eru kölluð á frum­mál­inu. Á land­inu er eitt stórt sam­komu­tjald þar sem bor­inn er fram kvöld- og morg­un­verður og þrjú minni tjöld sem gest­irnir gista í. Nýjasta við­bótin er útisturta við árbakk­ann. „Pælingin var að standa í vatni og horfa á vatn á meðan en það er fal­legt útsýni yfir ána úr sturt­unni.“ Aðspurður segir Hákon gesti sína yfir­leitt eyða einni nótt í eyj­unni og það sé alltaf að fær­ast í auk­ana að Íslend­ingar bóki gist­ingu sem komi skemmti­lega á óvart. Alla jafna tekur hann að hámarki við sex gestum og talar hann um mik­il­vægi þess að halda þessu smáu, „ég hef engan áhuga á að stækka þetta nokkuð, en þá myndi nándin og per­sónu­lega upp­lifunin hverfa.“

Mynd / Unnur Magna
Mynd / Unnur Magna
Mynd / Unnur Magna

Undir lokin spyrjum við eyju­bónd­ann hvað hann aðhaf­ist þegar hann er ekki að sinna eyj­unni? „Ég bjó um tíma í Ósló í Noregi, en þar lærði ég að sigla og keypti mér skútu. Síðustu ár hef ég verið dug­legur að sigla um Mið­jarð­ar­hafið yfir vetr­ar­tím­ann.“ Skútan hans sem ber nafnið Odessa er geymd í Grenada bróð­ur­part árs­ins og hefur Hákon eytt allt frá níu vikum upp í fjóra mán­uði ár hvert við sigl­ingar. Við getum ekki annað en kallað þetta líf í lagi.

Mynd / Unnur Magna
Mynd / Unnur Magna

Mynd / Unnur Magna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni