Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ýmsar einfaldar og sniðugar leiðir til að bæta heimilið

Sandra Dís Sig­urð­ar­dóttir er mennt­aður inn­an­húss­arki­tekt og lýs­ing­ar­hönn­uður. Síðustu ár hefur hún aðal­lega starfað við lýs­ing­ar­hönnun en á síð­asta ári fór hún út í sjálf­stæðan rekstur og starfar nú bæði sem inn­an­húss­arki­tekt og lýs­ing­ar­hönn­uður. Hér gefur hún les­enum nokkur góð ráð.

Ýmsar einfaldar og sniðugar leiðir til að bæta heimilið

Hver eru algeng­ustu mis­tökin sem fólk gerir þegar kemur að því að inn­rétta heim­ilin?

„Það gleymir að spá í lýs­ing­unni og er stundum ekki búið að hugsa hlut­ina til enda áður en farið er í fram­kvæmdir.“

Algeng mis­tök sem fólk gerir er að gleyma að spá í lýs­ing­una segir Sandra.

Hvar á maður að spara og hvar á maður að splæsa?

„Hugsið til þess hvað þið notið mest og eyðið mestum tíma ykkar á heim­il­inu. Það á að eyða í þá hluti en spara ann­ar­staðar. Einnig þar að hugsa út í hvað fólk vill að end­ist sem lengst þá er gott að vanda valið á því eða eyða aðeins meira og fá betri end­ingu úr þeim hlut.“

Hvað þarf fólk að hafa helst í huga áður en það ræðst í fram­kvæmdir á heim­il­inu?

„Vera búin að ákveða hvað það ætlar að eyða í fram­kvæmd­irnar og vera búin að láta hanna það sem á að gera áður en byrjað er á fram­kvæmd­unum.“

Hvernig myndir þú skipu­leggja hið full­komna þvotta­hús?

„Hið full­komna þvotta­hús er rúm­gott.  Þvotta­vélin og þurrk­ar­inn er lyft upp­frá gólf­inu og sett í rétta vinnu­hæð, það eru flokk­un­ar­körfur fyrir þvott­inn. Góð aðstaða til að hengja þvott upp til þerris, plás fyrir strauborð, borð­pláss til að geta brotið saman þvott og að lokum góð geymslu­að­staða fyrir ryksugu, skúr­inga­dót o.fl.“

Hvernig er best að nýta gang eða hol á milli her­bergja?

„Sniðugt er að nýta þessi rými fyrir stóran speg­ill, mynda­vegg eða bóka­hillu.“

Þig langar að hafa eitt­hvað annað á veggj­unum en myndir og hillur, hvað gæti það verið?

„Vegg­vasar fyrir blóm, vegg­lampi, speglar og kerta­stjakar á vegg­inn.“

Hvaða ráð mynd­irðu gefa þeim sem er með allt grátt, svart og hvítt en langar að bæta við litum?

„Fá sér púða í sófann í lit, fá sér einn stakan stól í áber­andi lit, plöntur gefa líka mikla hlýju og lit inn á heim­ilið. Fá sér lampa hvort sem það er hang­andi-, borð- eða vegg­lampi í lit. Það eru svo margar leiðir til að færa lit inn á heim­ilið, það er snið­ugt að hafa bara nokkra hluti í lit til að fá smá til­breyt­ingu og þá er líka auð­velt að skipta þeim hlutum út ef maður fær leið á litnum.“

Sófar og stólar í lit geta gert mikið fyrir rýmið að sögn Söndru.

Áttu ein­hver leyni­ráð þegar kemur að því að hressa upp á heim­ilið?

„Auðvelt er að mála, kaupa nýja púða í sófann og end­ur­raða inni hjá sér hvort sem það eru bara skraut­munir eða breyta skipu­lag­inu á hús­gögn­unum.“

Hvað er það allra mik­il­væg­asta að þínu mati þegar kemur að eld­hús­skipu­lag­inu?

„Að flæðið sé gott, nóg af skápa­plássi og vinnu­plássið á borð­inu sé gott.“

Hvað þarf helst að hafa í huga varð­andi lýs­ingu á heim­il­inu og áttu þér upp­á­halds ljós?

„Gott er að blanda saman almennri lýs­ingu inn á heim­il­inu með nokkrum teg­undum af hang­andi-, borð- eða stand­lömp­unum til að geta skapað stemn­ingu inn á heim­il­inu. Ég á svo marga upp­á­halds lampa að ég get ekki valið einn.“

Myndir / Hallur Karlsson og aðsendar

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni