Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Mér leiðist aldrei“

„Mér leiðist aldrei“

Unnur Magna er ljós­mynd­ari á upp­leið; list­ræn og fag­leg. Henni finnst erfitt að skil­greina hvers konar ljós­mynd­ari hún er, en segir að hún hafi verið list­ræn alla tíð og að ljós­myndun haldi sér á tánum.

Hvernig ljós­mynd­ari ertu? „Mér finnst alveg svaka­lega erfitt að skil­greina mig þar sem ég elska mis­mun­andi verk­efni. Ætli það megi ekki segja að ég sé ljós­mynd­ari fólks­ins, þar sem ég tek mest myndir af fólki og við­burðum í lífi fólks. Hef mikið myndað brúð­kaup og por­trett. Þar að auki tek ég myndir af fal­legri nátt­úru og bara því sem fangar athygli mína hverju sinni á ferð um bæinn eða landið.“

Hvað varð til þess að þú ákvaðst að læra ljós­myndun? „Mig lang­aði að sam­eina áhuga­málið mitt og starfs­frama. Þegar maður vinnur við áhuga­málið sitt, eitt­hvað sem manni er virki­lega kært og efst í huga allan dag­inn, er alltaf gaman að mæta í vinn­una. Þar að auki þurfti ég að næra sköp­un­ar­kraft­inn og fá list­ræna útrás. Mér finnst stór­kost­legt að geta skapað eitt­hvað fal­legt, hvort sem það er fyrir mig sjálfa eða annað fólk. Ljós­myndun heldur mér á tánum og mér leið­ist aldrei.“

„Ætli það gefi mér ekki mest að blanda saman ljós­myndun og mann­legum sam­skiptum við mis­mun­andi fólk, á mis­mun­andi aldri, úr mis­mun­andi áttum.“

Hvað finnst þér skemmti­leg­ast að mynda? „Ljós­myndir sem segja ein­hverja sögu eða vekja ein­hverja til­finn­ingu koma efst í hug­ann. Mér finnst bara skemmti­legt að mynda – punktur. En svona í fullri alvöru þá finnst mér skemmti­leg­ast að mynda fólk, mér finnst fólk mjög áhuga­vert. Ætli það gefi mér ekki mest að blanda saman ljós­myndun og mann­legum sam­skiptum við mis­mun­andi fólk, á mis­mun­andi aldri, úr mis­mun­andi áttum. Skemmti­leg­ust eru síðan ekta augna­blikin; þegar maður fangar ekta til­finn­ingar, hverjar sem þær eru. En að því sögðu þá finnst mér líka götu­ljós­myndun og seríu-ljós­myndun mjög áhuga­vert list­form, mig langar að gera meira af því.

Síðan er ákveðin þerapía fólgin í því að vera ein­hvers staðar að mynda fal­legt lands­lag eða pínu­litlu smá­at­riðin í ver­öld­inni sem því miður ekki allir sjá, það er svona mitt jóga. Back to basics-filmu­ljós­myndun finnst mér líka mjög skemmti­leg og ég á gamla Olympus-filmu­vél sem góður félagi gaf mér. Það er eitt­hvað ótrú­lega skemmti­legt við það að fram­kalla sjálfur í myrkra­kompu og góð til­breyt­ing frá þessu digi­tal, en það er tíma­frekt. Ég þyrfti samt sem áður að koma mér upp svo­leiðis aðstöðu.“

Mynd / Aldís Páls­dóttir.

Hvaðan færðu inn­blástur? „Aðallega úr umhverf­inu hverju sinni, ljósi og skuggum, stundum verkum ann­arra ljós­mynd­ara, stundum úr áhuga­verðum sam­ræðum, lista­sýn­ingum eða fal­legum blöðum. Ef mig virki­lega vantar inn­blástur eða á erfitt með að finna hann, þarf ég stundum að jarð­tengja mig og þá leita ég svara við sjó­inn. Þú gætir fundið mig í fjöru við íhugun ein­hvern dag­inn.“

Hefur ljós­myndum alltaf heillað? „Alveg frá því að ég man eftir mér hafa ljós­myndir heillað mig, ætli áhug­inn hafi ekki fyrst kviknað þegar National Geographic kom inn um lúg­una á æsku­heim­il­inu og maður rýndi í ljós­mynd­irnar og allt það stór­kost­lega sem það blað stendur fyrir. Auk þess hef ég alla tíð verið list­ræn og mjög með­vituð um umhverfið, liti, form og mynd­bygg­ingu.“

Hvaða ljós­mynd­arar eru í upp­á­haldi? „Steve MacCurry, Irving Penn, Mary Ellen Mark og Vivian Meyer.“

Hvar fást mynd­irnar þínar? „Hafi fólk áhuga á að kaupa af mér mynd eða ráða mig í verk­efni má endi­lega hafa sam­band við mig í gegnum heima­síð­una mína, www.unnurmagna.com.“

Mynd / Unnur Magna

„Þessi mynd var tekin á æsku­slóðum mínum, í Laug­ar­dalnum í Reykja­vík. Hún var tekin í ljósa­skipt­unum á digi­tal-vél, þegar farið var að rökkva og loftið var rakt. Biðu­kolla finnst mér út af fyrir sig ótrú­legt lista­verk nátt­úr­unnar, þegar ég sá þessa þá var það feg­urðin í ófull­kom­leik­anum sem fang­aði mig, en oft er það þannig að ég leita uppi feg­urð­ina í því ófull­komna. Mér fannst henta betur að hafa hana svart­hvíta. Mér þykir mjög vænt um þessa mynd og fyrir mér er hún áminn­ing um það að það þarf ekki allt að vera full­komið til að vera fal­legt,“ segir Unnur um mynd­ina fyrir ofan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni