Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Glæsilegt glerhýsi

Glæsilegt glerhýsi

Steve Hermann er þekktur fyrir nútíma­lega hönnun og er einn sá helsti sem fína og fræga fólkið í Hollywood leitar til þegar það er í hús­hug­leið­ingum. Þrátt fyrir að vera ómennt­aður hefur hann hannað hús fyrir elít­una í yfir 20 ár.

Hann lauk við The Glass Pavilion árið 2010. Húsið sem er í Santa Barbara í Kali­forníu er 1.290 fer­metra lúx­usvilla með fimm svefn­her­bergjum, fimm bað­her­bergjum, gestakló­setti, yfir­byggðum palli, eld­húsi með vín­her­bergi, stórri stofu og borð­stofu og risa­stóru lista­gall­eríi þar sem Steve geymir/sýnir antík­bíl­ana sína. Lista­gall­er­íið, sem er á neðri hæð húss­ins, er svo stórt að þar er auð­veld­lega pláss fyrir 32 bíla.

„Þetta hús er mitt stærsta afrek á 20 ára ferli mínum“

Húsið stendur á einum og hálfum hekt­ara af landi sem er mikið til skógur og sést húsið ekki frá neinum vegi né húsi og er lokað af með raf­magns­hliði svo ekki sé hægt að kom­ast inn á lóð­ina og er því algjör­lega prí­vat. Það tók yfir sex ár frá því bygg­ing hófst þar til húsið var full­klárað en not­ast var við sér­staka aðferð við bygg­ingu húss­ins til að láta húsið líta út fyrir að svífa á gras­inu og er sú aðferð bæði mjög sein­leg og vanda­söm. Úthliðar húss­ins eru að mestu leyti úr gleri og var ein­ungis notað Star Fire-gler sem er ein­stak­lega tært gler sem mikið er notað í skart­gripa­út­still­ingar. Það, ásamt því að húsið „svífur“, gerir það að verkum að þessi risa­vaxna glæsi­villa virkar afar létt. Þar sem húsið er að mestu úr gleri bland­ast það ytra við það innra og um leið og nátt­úran kemur inn hættir mann­eskjan að vera falin inni og verður í raun partur að því ytra. Mann­eskjan verður því að mörgu leyti mun ber­skjald­aðri og gæti það virkað pínu­lítið ógn­vekj­andi fyrir suma en fyrir utan að ekki er hægt að sjá inn á lóð­ina eru afar tækni­legar myrkv­un­ar­g­ard­ínur en með því að ýta á einn taka fara gard­ín­urnar niður og er þannig hægt að fá algjöran frið og/eða myrkur.

Steve vildi hafa gang­ana og alrýmin mjög stór og ná fram ákveð­inni stemn­ingu þar sem fólk langar til að setj­ast niður, vera og slaka á. Til þess hann­aði hann sér­staka bekki fyrir húsið og sótti inn­blástur í bekki frá Museum of Modern Art í New York.

Í lista­gall­er­í­inu sýnir Steve antík­bíl­ana sína.

Bekkirnir áttu að vera mjög lágir og næstum eins og legu­bekkir svo þeir væru þægi­legir en á sama tíma myndu aldrei skyggja á útsýnið enda húsið hannað með útsýnið í huga. Eldhúsið er eitt af upp­á­halds­her­bergjum Steve, hann seg­ist hafa verið inn­blás­inn af Evrópu þar sem það er mjög algengt að öll heim­il­is­tækin séu inn­byggð og falin, inn­rétt­ing­arnar hvítar, mínimal­ískar og mjög nútíma­legar eins og tíðkast sér­stak­lega í Skand­in­avíu. Borð­platan er úr sjald­gæfum marm­ara og graníti og má finna nöfn eins og Varena, Poliform og Antonio Lupi á tækjum og tólum. Þar að auki er eld­húsið búið sér­stöku vín­her­bergi!

Hjóna­svítan er útbúin öllum þeim þæg­indum sem hægt er að hugsa sér.

Hjóna­svítan er ekki minna glæsi­leg en Steve segir það nán­ast vera eins og að sofa úti að sofa þar. Inn­an­gengt er úr hjóna­svít­unni í stórt bað­her­bergi og eins og með annað í þessu glæsi­lega gler­hýsi var engu til sparað og má meðal ann­ars finna vask á bað­her­berg­inu sem kost­aði 30.000 doll­ara.

„Eins og að baða sig í nátt­ur­unni að hoppa í þessa sturtu.“

Baðið og sturtan eru alveg út við gler­vegg­inn svo þú upp­lifir þig nán­ast úti sem gerir bað­upp­lifun­ina eins og þú sért að baða þig í nátt­úr­unni. Steve byggði húsið upp­runa­lega með það mark­mið að búa þar sjálfur en setti það síðar á sölu. Sett var á húsið 35 millj­ónir doll­ara.

Eldhúsið er inn­blásið af evr­ópskri hönnun og er með sér vín­her­bergi.

Texti / Linda Jóhanns­dóttir
Myndir / Frá hönn­uði

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni