Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hlýlegur og hrár iðnaðarstíll í Garðabæ

Hlýlegur og hrár iðnaðarstíll í Garðabæ

Við kíktum í heim­sókn til Lilju Guð­munds­dóttur og Haralds Kolka Leifs­sonar sem búa ásamt tveimur sonum sínum í hvítu, huggu­legu ein­býl­is­húsi frá 1972, við Mar­ar­grund í Garðabæ.

„Við erum búin að vera hérna í 8 ár, við bjuggum áður á Arn­ar­nes­inu en gall­inn við að vera þar fannst okkur vera að þar er engin þjón­usta og við vorum alltaf að skutla og sækja. Okkur finnst miklu hent­ugra að búa hérna á Mar­ar­grund­inni þar sem við erum nær öllu, við höfum varla þurft að skutla strák­unum neitt eftir að við fluttum sem er mik­ill kostur, þeir geta gengið allt sjálfir,“ lýsir Lilja og segir að þau hjónin séu bæði alin upp í Garðabæ en hafi búið í miðbæ Reykja­víkur þegar þau byrj­uðu að búa. ,,Svo fórum við að fikra okkur nær heima­slóðum með barn­eignum, fjöl­skyldur okkar og vinir eru flest hér og maður þekkir orðið marga í bænum, þetta er ekk­ert ósvipað því að búa úti á landi að mörgu leyti sem okkur finnst æðis­legt.“

Lilja við­ur­kennir að þau hjónin séu Garð­bæ­ingar í húð og hár og kannski einmitt þess vegna völdu þau að opna versl­un­ina Barr Living í bænum, nánar til­tekið á Garða­torgi. Blaða­maður spyr Lilju út í það ævin­týri, hvernig kom það til? „Ég var búin að ganga með þann draum mjög lengi að opna verslun, alveg frá því ég var tví­tug örugg­lega. Ég hef alltaf haft mik­inn áhuga á hönnun, fal­legum hús­gögnum og munum fyrir heim­ilið en ég lærði samt við­skipta­fræði í Danmörku, flutti svo heim og fór beint í banka­kerfið að vinna eins og svo margir við­skipta­fræð­ingar á þeim tíma. Vann hjá Íslands­banka og svo Alvogen og Alvotech en allan tím­ann blund­aði þessi draumur í mér. Svo þegar ég varð fer­tug hugs­aði ég með mér, það er ann­að­hvort núna eða aldrei og ég sló til,“ segir Lilja og kveðst hafa leitað vel að þeim merkjum sem hún tók inn í versl­un­ina. Hún hafi ekki viljað vera með merki sem þegar fást á Íslandi, heldur eitt­hvað nýtt sem breikkar vöru­úr­valið.

Húsið er um 300 fer­metrar, á aðal­hæð­inni er stór stofa og borð­stofa, eld­hús, sól­stofa og gangur, nokkrar tröppur liggja upp þar sem svefn­her­bergi og bað­her­bergi eru og niðri er svo annað bað­her­bergi og fleiri her­bergi. Húsið er með krókum og kimum, svo­lítið eins og lítið völ­und­ar­hús og Lilja við­ur­kennir að hafa hálf­part­inn villst fyrst þegar hún kom inn í húsið. „Það heill­aði okkur, rýmið er skemmti­legt og hentar okkur mjög vel.“

Lilja segir þau hjónin hafa heill­ast af skipu­lag­inu og strúkt­úrnum á hús­inu. „Við byrj­uðum á því að mála alla veggi, inni­hurð­irnar og stiga­hand­rið og mál­uðum við­ar­loftin svört sem kemur ótrú­lega vel út. Þetta er allt annað en það þurfti að end­ur­hugsa lýs­ing­una og annað því rýmið virkar aðeins minna og dimmara með svörtum loftum en það er hátt til lofts hérna og við erum alsæl með loftin svört en eig­in­mann­inum leist ekk­ert á þessa hug­mynd í upp­hafi,“ segir hún og hlær inni­lega. „Mér fannst þetta mjög furðu­leg pæl­ing fyrst en þetta kemur vel út,“ segir hann og brosir til Lilju, sem segir það vera eilífð­ar­verk­efni að eiga gam­alt hús. Það sé alltaf eitt­hvað á dag­skránni.

Texti / Sigríður Elín Ásmunds­dóttir
Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni