Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Mikilvægt að vera nýtinn“

Í Bryggju­hverf­inu í Reykja­vík eru stúd­enta­garðar sem falla vel að umhverf­inu og eru í góðu sam­ræmi við nær­liggj­andi bygg­ingar en þar búa þau Helena Ósk Ósk­ars­dóttir og Hafþór Egg­erts­son.

„Mikilvægt að vera nýtinn“
Helena Ósk Ósk­ars­dóttir .

Helena er nem­andi á öðru ári í arki­tektúr við Lista­há­skóla Íslands og Hafþór er starf­andi tattúlista­maður og hafa þau sett sinn svip á íbúð­ina sem er virki­lega nota­leg.

Helena tók á móti okkur og á sama tíma laum­aði sex mán­aða hverfiskött­ur­inn Lóa sér inn, sat fyrir eins og atvinnu­fyr­ir­sæta og vildi sig hvergi hreyfa fyrr en að heim­sókn lok­inni og hvarf þá á braut.

Íbúðin er 66 fm að stærð og sam­anstendur af tveimur her­bergjum, stofu, eld­húsi og bað­her­bergi. Úr stof­unni er svo gengið út á huggu­legar svalir sem snúa í suður. Helena og Hafþór eru mjög ánægð í íbúð­inni og segir Helena jafn­framt að þótt inn­rétt­ingar og gól­f­efni séu kannski ekki alveg í takt við það sem hún hefði valið, hefði hún fengið að ráða, hafi þau náð að setja sinn svip á íbúð­ina.

Velur hluti af kostgæfni

And­rúms­loftið er hlý­legt og minnir stíll­inn á heim­il­inu svo­lítið á önnur lönd meg­in­lands Evrópu, líkt og Belgíu og Holland, en dökkur viður og vönduð hús­gögn eru ein­kenn­andi í inn­an­húss­hönnun þeirra landa. Er það mjög ólíkt skand­in­av­íska stílnum þar sem ljós­ari litir og ljós­ari viður er ríkj­andi.

Helena hefur skapað sinn eigin stíl og seg­ist hafa sér­stak­lega gaman af því að fara á flóa­mark­aði og finna fal­lega hluti en innbú hennar og Hafþórs er að mörgu leyti til­komið vegna ferða hennar á slíka mark­aði. Námsmenn þurfa oft og tíðum að vera útsjón­ar­samir og nægju­samir og eru því ferðir á flóa­mark­aði til­valdar. Því hafi til að mynda Góði hirðirinn og Ikea reynst þeim vel en Helena seg­ist ekki fylgja tísku­straumum, heldur velur hún hluti inn á heim­ilið af kost­gæfni, hluti sem henni þykja fal­legir óháð því hvaðan þeir koma. Hún segir jafn­framt að henni finn­ist eldri hús­gögn gefa heim­il­inu skemmti­legan karakter.

Þegar Helena var 15 ára stund­aði hún nám við Mynd­lista­skól­ann í Kópavogi en kenn­ar­inn hennar við skól­ann kynnti Fridu Kahlo fyrir henni sem átti eftir að hafa mikil áhrif á hana. ,,Ég varð eig­in­lega ást­fangin. Ég mál­aði mikið á þessum tíma og heill­að­ist alger­lega af stíl Fridu sem má eig­in­lega lýsa sem nokk­urs konar draum­kenndum veru­leika og allar götur síðan hefur hún veitt mér mik­inn inn­blástur,‘‘ segir Helena en stórar myndir af Fridu Kahlo setja skemmti­legan svip á heim­ilið. Mynd / Unnur Magna
,,Mörgum finnst ekki taka því þegar þeir búa í stúd­enta­í­búðum að gera þær fínar vegna þess að dval­ar­tím­inn þar er oft frekar stuttur í heild­ar­sam­heng­inu.‘‘

Form og gerð rýmis þarf að fá að ráða för

„Mörgum finnst ekki taka því þegar þeir búa í stúd­enta­í­búðum að gera þær fínar vegna þess að dval­ar­tím­inn þar er oft frekar stuttur í heild­ar­sam­heng­inu,‘‘ segir Helena og bætir við að það sé samt sem áður afar mik­il­vægt að líða vel heima hjá sér. Þess vegna hafi hún strax tekið þá stefnu að gera heim­ilið eins nota­legt og hún gæti þrátt fyrir að ætlun hennar og Hafþórs sé ein­ungis að búa í íbúð­inni í nokkur ár.

Mynd / Unnur Magna

Að búa í stúd­enta­í­búð setur fólki ýmsar skorður en til dæmis má ekki negla nagla í veggi og þarf því að finna aðrar lausnir. Þyngstu mynd­unum sem ekki er hægt að hengja öðru­vísi upp en með nöglum kom Helena fyrir á skemmti­legan hátt á bekk í stof­unni. Það er því vel hægt að finna góðar lausnir og aðlaga sig aðstæð­unum en Helena bendir einnig á að það sé mjög mik­il­vægt að taka til­lit til forms og gerðar rým­is­ins þegar inn­réttað er og leyfa því svo­lítið að ráða för því þannig sé hægt að laða fram það besta, þá sér í lagi þegar plássið er af skornum skammti. Hún segir einnig að það sé afar mik­il­vægt að geta gert gott úr því sem maður hefur, vera lausn­a­mið­aður og nýt­inn. Það þurfi því alls ekki að kosta mikið að gera heim­ilið huggu­legt. Við kveðjum Helenu, þökkum henni kær­lega fyrir en heim­ili hennar og Hafþórs veitir svo sann­ar­lega góðan inn­blástur.

Mynd / Unnur Magna
Mynd / Unnur Magna
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni