Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Við þurfum öll á hjálp að halda einhvern tímann“

Tón­list­ar­konan María Magn­ús­dóttir, eða Mimra, fékk mikið lof fyrir plötu sína Sinking Island sem kom út árið 2017. Í kjöl­farið hefur hún reglu­lega gefið út lög, nú síð­ast Right Where You Belong sem kom út fyrir stuttu og er ætlað að vera upp­örvandi fyrir ást­vin sem glímir við and­leg veik­indi.

„Við þurfum öll á hjálp að halda einhvern tímann“

„Lagið samdi ég þar­síð­asta vor og það kom frekar hratt til mín. Ég fékk svo Zöe Ruth Erwin, sem er geggj­aður pródúsent, til að setja það með mér í nýjan bún­ing og þetta er loka­út­gáfan,“ segir María stolt og bætir við að lagið hafi orðið „bjart­ara“ í hönd­unum á Zöe. „Okkur fannst svo við­eig­andi að gefa lagið út núna í jan­úar þegar jólin eru yfir­staðin og skamm­degið loks að hörfa.“

María stund­aði nám við tón­list­ar­skól­ann Goldsmiths Uni­versity í London frá árunum 2015-2016 og lauk þar meistara­gráðu í tón­list. Loka­verk­efni hennar í skól­anum var fyrr­nefnd plata hennar Sinking Island, sem hún tók upp í hljóð­veri skól­ans Goldsmiths Music Studios, en platan hlaut mikið lof. Spurð hvort það sé von á annarri plötu frá henni segir María að það sé ekki langt í að hún byrji að vinna í nýrri plötu. „Eins og er hef ég ein­beitt mér að því að gefa út eitt og eitt lag, í sam­vinnu við mis­mun­andi pródúsenta. Það hefur verið hrika­lega gaman. En nú ætla ég að loka mig af, fara út í smá­vegis til­rauna­starf­semi og gera bara nákvæm­lega það sem ég vil með mús­ík­ina.“

Eins og fyrr segir á nýjasta lag hennar, Right Were you Belong, að vera upp­örvandi fyrir ást­vin sem glímir við and­leg veik­indi og end­ur­speglar text­inn það, en þar segir: „Ég get ekki fjar­lægt vanda­málin þín en ég er til staðar fyrir þig. Við þurfum öll á hjálp að halda ein­hvern tím­ann. Þú ert á réttum stað og á réttri leið.“ Lagið hefur María flutt nokkrum sinnum á tón­leikum og hlotið góðar und­ir­tektir.

Nýorðin móðir

Líf Maríu snýst þó ekki bara um tón­list því hún eign­að­ist sitt fyrsta barn, dóttur, fyrir um sjö vikum og segir hún að dóttirin eigi hug sinn allan. Spurð hvernig gangi að tvinna saman tón­list­ina og móð­ur­hlut­verkið seg­ist hún bara eiga eftir að finna almenni­lega út úr því hvernig hún ætli að gera það. „Tón­list­ar­konur sem ég þekki segja flestar að þær hafi skipu­lagt tím­ann betur og oft orðið afkasta­meiri eftir að hafa eign­ast barn, ég stefni bara að því með tím­anum,“ segir hún róleg og brosir.

En hvað finnst henni um íslenska tón­list í dag? „Ég er hrifin af mörgu sem er í gangi. Hef til dæmis hlustað enda­laust á Cell7 og Hrím und­an­farið. Það er bara mikil gróska og stand­ar­dinn hár, en það er ekk­ert nýtt, búið að vera þannig í mörg ár og við getum verið stolt af því,“ segir hún og bætir við að það sem helst mætti betur fara sé að tón­leika­hald­arar og útvarps­stöðvar passi upp á að gleyma ekki að bóka og spila tón­list með og eftir konur. Tölur sýni að það sé enn ábóta­vant. „Eins mætti fjölga tón­leika­stöðum í Reykja­vík. Borgin mætti líka leggja meira til mál­anna. Róðurinn er oft erf­iður fyrir stað­ina sem fyrir eru og þeir þurfa því sorg­lega oft að hætta.“

Sjálf seg­ist hún ætla að ein­beita sér að því að læra betur á mömmu­hlut­verkið og „elska þennan nýja ein­stak­ling“ í lífi sínu. Stefnan sé svo að fylgja nýja lag­inu eftir með tón­leikum með vor­inu.

Texti / Sigrún Guðjohn­sen

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu