Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Krefja Jóhann um 48 milljónir vegna lögfræðikostnaðar

Krefja Jóhann um 48 milljónir vegna lögfræðikostnaðar
Mynd / Heiða Helga­dóttir

Máli tón­list­ar­manns­ins Jóhanns Helga­sonar gegn norska laga­höf­und­inum Rolf Løvland var vísað frá í apríl. Núna er Jóhann kraf­inn um upp­hæð sem nemur um 48 millj­ónum króna.

Dómari í Los Angeles vís­aði máli tón­list­ar­manns­ins Jóhanns Helga­sonar frá í apríl. Jóhann stefndi Uni­ver­sal Music og norska laga­höf­und­inum Rolf Løvland og fleirum vegna lags­ins Söknuður.

Jóhann hefur haldið því fram að lag Løvland, Your Raise Me Up, sem söngv­ar­inn Josh Groban gerði frægt árið 2003 sé stolið og sé í raun útgáfa af lag­inu Söknuður frá árinu 1977. Lagið Your Raise Me Up var samið 2001. Jóhann telur Løvland hafa heyrt lagið Söknuður í ein­hverjum af hans mörgu heim­sóknum til Íslands á tíunda ára­tugnum og í kjöl­farið samið sína útgáfu.

Jóhann höfð­aði mál til greiðslu bóta og fór fram á að allar tekjur sem You Raise Me Up hefur fært Løvland og öðrum yrðu dæmdar honum. Stefnan var lögð fram í Los Angeles í Banda­ríkj­unum 29. nóv­em­ber 2018.

Jóhann er nú kraf­inn um upp­hæð sem nemur um 48 millj­ónum króna vegna lög­fræði­kostn­aðar and­stæð­inga sinna í mál­inu. Frétta­blaðið greinir frá þessu. Þar er fjallað um rök­stuðn­ing lög­manna þeirra sem Jóhann stefndi, segja þeir mál Jóhanns byggja á fjand­skap hans gagn­vart Rolf Løvland og að hann hafi vitað betur. Jóhann hafnar þessum ásök­unum.

Lögmenn þeirra sem Jóhann stefndi starfa á lög­mann­stof­unni Loeb & Loeb. Í frétt Frétta­blaðs­ins segir að lög­menn­irnar rukki tíma­kaup upp á  817 doll­ara (um 120 þús­und krónur), 675 doll­ara (um 99 þús­und krónur) og 488 doll­ara (um 72 þús­und krónur).

Núna situr Jóhann eftir með kröfu upp á 48 millj­ónir króna.

Lögin borin saman af sérfræðingum

Þess má geta að síðan Jóhann lagði stefn­una fyrst fram í lok árs 2018 hefur tón­list­ar­pró­fess­or­inn Lawrence Ferrara gert sam­an­burð­ar­grein­ingu á lög­unum Söknuður og You Raise me Up fyrir hönd Uni­ver­sal Music. Í grein­ar­gerð sinni hafn­aði hann lík­indum milli lag­anna sem um ræðir. Lögmaður Jóhanns, Michael Machat, sagði hann hafa notað gall­aða aðferð­ar­fræði.

Jóhann fékk þá tón­list­ar­fræð­ing­inn Judith Finell til liðs við sig til að sanna lík­indi lag­anna en dóm­ari í mál­inu komst að þeirri nið­ur­stöðu að hennar úrskurður væri óáreið­an­legur þar sem hún klikk­aði meðal ann­ars á að greina frá aðferða­fræð­inni sem hún not­að­ist við.

Sjá einnig: Dómari vísar máli Jóhanns frá

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi