Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bæjarstjóri og slökkviliðsstjóri Fjarðabyggðar kjósa að tjá sig ekki um mál Andreu Bjarkar

Bæjarstjóri og slökkviliðsstjóri Fjarðabyggðar kjósa að tjá sig ekki um mál Andreu Bjarkar

„Það gekk eig­in­lega bara allt út á það hjá þessum aðilum að finna eitt­hvað á mig,“ segir Andrea Björk Sig­ur­vins­dóttir, sem var eina konan í slökkvi­liði Fjarða­byggðar þegar hún hóf störf þar sum­arið 2017. Hún hafði reynslu af sjúkra­flutn­ingum og brenn­andi áhuga á starf­inu, sótti sér aukna menntun í því og lagði sig alla fram. Fljót­lega fór þó að bera á því að ýmsir sam­starfs­menn hennar voru ekki hrifnir af því að fá konu sem starfs­fé­laga og Andrea upp­lifði síend­ur­tekið áreiti innan slökkvi­liðs­ins sem end­aði með því að hún brotn­aði saman og hætti sam­kvæmt lækn­is­ráði. Hún hefur nú lagt fram form­lega kvörtun vegna kyn­bund­ins áreitis og ein­eltis eftir að hafa ítrekað verið hunsuð af yfir­mönnum slökkvi­liðs­ins þegar hún kvart­aði. Á end­anum hrökkl­að­ist hún úr bænum og flutti til Dalvíkur ásamt eig­in­manni og börnum, en hún er enn óvinnu­fær og treystir sér ekki ein út í búð, hvað þá meira, svo djúp­stæð áhrif hafði ein­eltið á hana.

Fjallað er um málið í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Bæjarstjóri og slökkviliðsstjóri Fjarðabyggðar kjósa að tjá sig ekki um málið

Mannlíf hafði sam­band við bæj­ar­stjóra Fjarða­byggðar, Karl Óttar Pét­urs­son, og slökkvi­liðs­stjóra Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar, Guðmund Helga Sig­fús­son, og lagði fyrir þá nokkrar spurn­ingar í tölvu­pósti. Báðir svör­uðu þeir því til að þeim væri því miður ekki unnt að tjá sig um mál ein­stakra starfs­manna slökkvi­liðs­ins. Spurn­ing­arnar sem þeir fengu og svör þeirra fara hér á eftir.

Karls Óttars Pét­urs­son bæj­ar­stjóri Fjarða­byggðar Mynd / Fjarða­byggð

Spurn­ingar til Karls Óttars Pét­urs­sonar, bæj­ar­stjóra Fjarða­byggðar:

Hefur meint áreiti á hendur Andreu Björk komið til kasta bæj­ar­stjóra?

Ef svo er hver er nið­ur­staða þín eða skoðun þín á mál­inu?

Hefur bæj­ar­fé­lagið eða starfs­manna­stjóri þess látið gera úttekt á mál­inu með það fyrir augum að upp­lýsa hvað gerð­ist innan slökkvi­liðs­ins?

Er ástæða til aðgerða innan slökkvi­liðs­ins eða hefur verið gripið til aðgerða?

Hefur þáver­andi starfs­manna­stjóri bæj­ar­fé­lags­ins skilað skýrslu eða minnis­p­unktum um afskipti sín af mál­inu?

Hyggst bæj­ar­stjóri skoða málið frekar og hver er afstaða bæj­ar­fé­lags­ins til kröfu Andreu um miska­bætur vegna máls­ins?

Svar Karls Óttars:

„Ég get því miður ekki tjáð mig um mál­efni ein­stakra starfs­manna Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar, eða ein­stök mál þeim tengd.

Komi upp mál sem varða vinnu­vernd og heil­brigði á vinnu­stað er unnið með þau eftir fag­legu ferli innan hverrar stofn­unar sveit­ar­fé­lags­ins, eins og gild­andi lög og kjara­samn­ingar gera ráð fyrir. Mál eru auk þess unnin í sam­ræmi við þær leið­bein­ingar og reglur sem Fjarða­byggð hefur sett sér varð­andi þetta og nálg­ast má á heima­síðu sveit­ar­fé­lags­ins, fjar­da­byggd.is.“

Guð­mundur Helgi Sig­fús­son slökkvi­liðs­stjóri Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar Mynd / Fjarða­byggð

Spurn­ingar til Guð­mundar Helga Sig­fús­sonar, slökkvi­liðs­stjóra Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar:

Hefur þú gripið til aðgerða á vinnu­stað þínum vegna máls Andreu Bjarkar?

Kannast þú við lýs­ingu hennar á því áreiti sem hún segir frá og liggja til grund­vallar þeirri rann­sókn sem gerð var á mál­inu af hálfu bæj­ar­fé­lags­ins?

Getur þú stað­fest að þú hafir orðið þess var að ekki var allt með felldu í sam­skiptum sumra ann­arra starfs­manna við Andreu Björk?

Til hvaða aðgerða hefur þú gripið vegna ásak­ana á hendur und­ir­manni/und­ir­mönnum þínum?

Andrea segir að sá sem hún kvart­aði mest undan, og hún hafi hitt á fundi með þér til að leita sátta, hafi neitað að skrifa undir fund­ar­gerð­ina nema tryggt yrði að hún færi ekki fyrir augu ann­arra. Er það rétt og ef svo er hví sam­þykkt­irðu þá beiðni hans?

Eru allir þeir sem Andrea kvart­aði undan enn í starfi hjá Slökkvi­liði Fjarða­byggðar?

Verða ein­hverjar breyt­ingar gerðar á starfs­manna­málum slökkvi­liðs­ins í kjöl­far máls­ins?

Svar Guð­mundar Helga:

„Ég get því miður ekki tjáð mig um mál­efni ein­stakra starfs­manna Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar, eða ein­stök mál þeim tengd.

Komi upp mál sem varða vinnu­vernd og heil­brigði á vinnu­stað er unnið með þau eftir fag­legu ferli eins og gild­andi lög og kjara­samn­ingar gera ráð fyrir. Mál eru auk þess unnin í sam­ræmi við þær leið­bein­ingar og reglur sem Fjarða­byggð hefur sett sér varð­andi þetta og nálg­ast má á heima­síðu sveit­ar­fé­lags­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi