Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Pétur með ólæknandi krabbamein: „Brúðguminn á ekki langt jarðlíf framundan“

Pétur með ólæknandi krabbamein: „Brúðguminn á ekki langt jarðlíf framundan“
Svan­fríður og Pétur í sex­tugs­af­mæli Péturs. Mynd / Úr safni Birtíngs

„Við Svan­fríður höfum lifað í synd í sex ár. Okkur fannst nóg komið af því og að stundin núna væri rétt svo við giftum okkur í gærkveldi að við­stöddum 6 manns og hund­inum. Það er meiri reisn yfir því að vera ekkja heldur en fyrr­ver­andi ást­kona,” skrifar Pétur Ein­ars­son, fyrr­ver­andi hót­el­stjóri og flug­mála­stjóri sem glímir þessa dag­ana við ólækn­andi krabba­mein. Það er engan bil­bug að finna á Pétri sem stofn­aði síð­una Dagbók krabba­meins­sjúk­lings. Létt­leiki í bland við dauð­ans alvöru svífur yfir vötnum. Pétur segir meðal ann­ars frá því þegar hann og sam­býl­is­kona hans, Svan­fríður Ingva­dóttir sem búa á Dalvík, ákváðu að ganga í hjóna­band í síð­ustu viku. Pétur hafði verið útskrif­aður af sjúkra­hús­inu á Akureyri þar sem ekki var talin von um lækn­ingu. Og það var veisla.

„Fyrst var mat­ar­veisla sem Sindri sonur okkar und­ir­bjó. Snilld hans á sér varla sam­svörun. Okkur kom saman um að aðal­réttur sem við fengum væri ekki undir 6.500 á veit­ing­ar­húsi og vorum ein­stak­lega ánægð með þá hugsun. Gift­ingin sjálf var seið­andi dramat­ísk. Magnús Gunn­ar­son prestur flutti ræðu sem var svo ynd­is­leg að tárin runnu hjá við­stöddum og Svan­fríður og Pétur stóðu í faðm­lögum ófær um að halda aftur af til­finn­ingum”.

Pétur fékk lagið My way með Frank Sinatra. Hann lýsti þeirri til­finn­ingu að ganga í hjóna­vand á end­stöð lífs­ins.

„Ein­kenni­leg til­finn­ing að vita að brúð­gum­inn á ekki langt jarð­líf framundan, ef ekki ger­ist ómögu­legt krafta­verk. Brúð­kaups­veislan fór fram með miklum ágætum fram eftir nóttu. Veislan var með Symphos­ium sniði. En hund­ur­inn hvarf og prest­ur­inn fór svo heldur fækk­aði veislu­gestum. En eins og við vitum þá eru gæðin betri en magnið,” skrifar Pétur um veisl­una í síð­ustu viku.

Hann fer þess á leit við aðra sem glíma við krabba­mein að þeir segi sögu sína á síð­unni Dagbók krabba­meins­sjúk­lings.

„Ég mun því draga úr skrifum mínum, en óska eftir fleiri skrifum þar sem menn, karlar og konur, segja reynslu sína hvort sem aðstand­endur eða sjúk­lingar. Ég trúi því að öflug umræða efli skiln­ing og þekk­ingu, sem svo aftur gerir það að verkum að það er sjálf­sagður hlutur að tala um krabba­mein og dauð­ann – en auð­vitað er ég ekki að hvetja til þess að menn drekki sér í við­fangs­efn­inu.Fyrst og fremst eigum við að tala um jarð­lífið og hvernig við getum lifað saman í sátt og sam­lyndi á þess­ari jörð”.

Pétur er full­kom­lega æðru­laus í aðstæðum sínum.

„Dauðinn á að verða okkur eins eðli­leg og fæð­ingin,” skrifar hann.

Hann segir að nú sé spennu­fall. Tíðum ferðum á sjúkra­húsið sé lokið. Fjöl­mörgum sím­tölum við lækna lokið.

„Fjöl­mörgum heim­sóknum barna, barna­barna, ætt­ingja, kunn­ingja og vina að mestu lokið. Allar þessar heim­sóknir voru, af minni hálfu, túlk­aðar sem hinsta kveðja, svo þettað er orðin nokkuð löng jarð­ar­för. Ég veit orðið allt sem ég þarf að vita um sjúk­dóm­inn. Ég hef nán­ast lokið öllum verk­efnum sem ég taldi mig verða að ljúka fyrir dauða minn. Það er kom­inn friður og ró. Enginn veit hvað næstu dagar bera í skauti sér,” skrifar Pétur á síðu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi