Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslenskir dansarar svekktir á Spáni

Íslenskir dansarar svekktir á Spáni
||Katrín Birna Vign­is­dóttir

„Við fáum alla­vega að útskrif­ast en það er auð­vitað mjög svekkj­andi að gera það ekki með eðli­legum hætti og upp­lifa loka­árið sitt svona. Þetta er ekki gaman, “ segir Katrín Birna Vign­is­dóttir, útskrift­ar­nemi í dansi við lista­há­skóla í Barcelona, sem þarf nú að klára loka­prófin heiman frá sér eftir að skóla­hald háskól­ans sem hún útskrif­ast var lagt af vegna útbreiðslu kór­óna­veirunnar á Spáni.

Katrín Birna Vign­is­dóttir, útskrift­ar­nemi í dansi við lista­há­skóla í Barcelona.

Katrín Birna hefur áhyggjur af því að þetta geti haft áhrif á fram­tíð­ar­mögu­leika sína og þeirra íslensku dans­ara sem útskrif­ast frá skól­anum í ár.
„Þetta er allt saman mjög óljóst í augna­blik­inu. Vonandi fáum við að vita eitt­hvað fljót­lega eftir páska. Öll loka­prófin sem við eigum eftir verða bara á net­inu en við vitum samt ekki alveg hvernig þau próf verða. Ég á til dæmis eftir próf í loft­fim­leikum og það gæti orðið dálítið erfitt heima í stofu,“ segir Katrín Birna og bendir á að útskrif­ar­sýn­ing skól­ans hafi verið aflýst þangað sem þekktir dans­höf­undar og fjöldi umboðs­manna koma gjarnan til að gera samn­inga við fram­tíð­ar­dans­ara.

Aðspurð hefur hún áhyggjur af því að þetta kunni að hafa áhrif á fram­tíð­ar­mögu­leika íslensku dansar­anna sem nú eru að útskrif­ast. „Það var búið að bóka fullt af flottum nöfnum. Það er ótrú­legt svekk­elsi að missa af þessu og ég hef smá áhyggjur af því að þetta gæti haft áhrif á okkar fram­tíð.“

„Það er ótrú­legt svekk­elsi að missa af þessu og ég hef smá áhyggjur af því að þetta gæti haft áhrif á okkar fram­tíð.“
Auður Huld Gunn­ars­dóttir.

Auður Huld Gunn­ars­dóttir útskrif­ast nú einnig frá sama háskóla og hún tekur undir að staðan nú gæti haft áhrif á fram­tíð dansar­anna. Hún saknar þess mjög að geta ekki mætt í skól­ann og klárað loka­árið með stæl. „Ég er að reyna að vera jákvæð en þetta er auð­vitað bara glatað. Mér finnst leið­in­legt að missa af tím­anum með öllu þessu góða fólki og allri þjálfun­inni. Þetta mun pott­þétt hafa áhrif á mögu­leika ein­hverra en ég er sem betur nú þegar komin með ein­hverja mögu­leika. Það er bæði leið­in­legt og svekkj­andi að útskrif­ast með þessum hætti,“ segir Auður Huld.

Katrín Birna segir það mik­il­væg­asta þó að hún nái að útskrif­ast og segir skól­ann gera allt sem hægt er til að aðstoða nem­endur inn í fram­tíð­ina. „Við fáum lík­lega bara eitt­hvað blað með útskrift­ar­próf­inu. Við erum erum með góða kenn­ara sem eru að hjálpa okkur með mynd­bönd sem við náum þá að senda út til umboðs­manna. Það eru allir að reyna sitt besta en auð­vitað er maður svekktur og eðli­legt að þetta kunni að hafa áhrif á okkar fram­tíð­ar­mögu­leika.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi