Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bakvörðurinn segist vera saklaus

Bakvörðurinn segist vera saklaus

Konan, sem var hand­tekin í gær grunuð um hafa fram­vísað fölsku starfs­leyfi sem heil­brigð­is­starfs­maður og stolið lyfjum á dval­ar­heim­il­inu Bergi í Bol­ung­ar­vík, seg­ist vera sak­laus.

Lögmaður kon­unnar, Jón Bjarni Krist­jáns­son, hefur sent yfir­lýs­ingu á fjöl­miðla þar sem fram kemur að konan hafi hvorki fram­vísað fölskum gögnum né gert til­raun til að villa á sér heim­ildir, en það var for­stjóri Heil­brigð­is­stofn­unar Vest­fjarða sem til­kynnti málið til lög­regl­unnar á Vest­fjörðum. Lög­mað­ur­inn segir að yfir­völd hafi fengið allar upp­lýs­inngar um menntun kon­unnar og reynslu áður en hún tók til starfa sem bak­vörður á dval­ar­heim­il­inu og verið kunn­ugt um að hún hefði m.a. sótt nám við enska skóla og háskóla við sjúkra­liðun og „nurs­ing assistant“, en að menntun hennar hafi ekki verið metin svo að hún gæti öðl­ast til­skilin starfs­leyfi á Íslandi. Þetta hafi allt legið fyrir þegar konan hóf störf á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Bergi. Þá kemur fram í yfir­lýs­ing­unni að konan sé á leið í sótt­kví og vænti þess „að rann­sókn lög­reglu muni hreinsa hana af þessum alvar­legu ávirð­ingum.“

Sjá einnig: Falski bak­vörð­ur­inn á fram­boðs­lista í síð­ustu kosn­ingum – „Harm­leikur“ segir fyrr­ver­andi sam­starfs­maður

Yfir­lýs­ingin sem lög­mað­ur­inn hefur sent fyrir hönd umbjóð­anda síns hljóðar svo: „Umbjóð­andi minn hefur ekki á neinum tíma falsað gögn eða villt á sér heim­ildir. Hún skráði sig í bak­varða­sveit­ina til að leggja heil­brigð­is­kerf­inu lið á þessum erf­iðu tímum. Við skrán­ingu í sveit­ina og á öllum stigum upp­lýsti hún yfir­boð­ara sína um hvaða menntun hún hefði aflað sér og hver reynsla hennar væri. Umbj. minn hefur um ára­bil starfað við umönnun og hefur sótt nám við enska skóla og háskóla við sjúkra­liðun og „nurs­ing assistant“. Hún hefur leit­ast eftir því við háskóla­yf­ir­völd á Íslandi að menntun hennar yrði metin svo hún gæti öðl­ast til­skilin starfs­leyfi á Íslandi. Áður en til þess kom var óskað eftir aðstoð hennar við Heil­brigð­is­stofnun Vest­fjarða og varð hún við áskor­un­inni. Þar gekk hún í þau störf sem yfir­boð­að­arar hennar fólu henni, svo sem að snúa sjúk­lingum, taka hita, gefa þeim að drekka, þvo þvott o.fl. Yfirvöld höfðu fengið allar upp­lýs­ingar um menntun hennar og reynslu. Hún fór aldrei dult með að menntun hennar hefði enn ekki verið metin af háskóla­yf­ir­völdum á Íslandi en var boðin og búin til aðstoðar.

Aðrar ásak­anir á hendur umbj. mínum eru fjar­stæðu­kenndar og úr lausu lofti gripnar.

Hún væntir þess að rann­sókn lög­reglu muni hreinsa hana af þessum alvar­legu ávirð­ingum og biður að fjöl­miðlar stilli mála­til­bún­aði gegn henni í hóf þar til nið­ur­stöður rann­sókna liggja fyrir. Umbjóð­andi minn er á leið í sótt­kví og bíður sam­ein­ingar við fjöl­skyldu sína. Hún verður ekki til frek­ari svara fyrr en að lög­reglu­rann­sókn lok­inni og ber hún fullt traust til lög­regl­unnar.“

Sjá einnig: Bak­vörður með fals­aða papp­íra hand­tek­inn – verður ski­maður fyrir Covid-19

Sjá einnig: Bakverði sem grun­aður er um þjófnað sleppt úr haldi

Ekki náð­ist í umrædda konu í gær þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir.

Fréttin hefur verið upp­færð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi