Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Annalísa lést vegna COVID-19: „Ég er endalaust þakklát fyrir tímann með henni“

Annalísa lést vegna COVID-19: „Ég er endalaust þakklát fyrir tímann með henni“
||

Annalísa Jansen lést í morgun vegna COVID-19, 80 ára að aldri. Annalísa skilur eftir sig fjögur börn, ell­efu barna­börn auk barna­barna­barna.

Frétta­blaðið greindi frá nafni Önnulísu. Dóttir Önnulísu, Anna Margrét Ólafs­dóttir og dóttir hennar, Ragn­heiður Ásta Pét­urs­dóttir, minn­ast Önnulísu með færslum á Facebook og gáfu Mannlíf góð­fús­legt leyfi til að deila minn­ing­ar­orðum sínum.

Ragn­heiður Ásta Pét­urs­dóttur barna­barn Önnulísu minn­ist ömmu sinnar með eft­ir­far­andi orðum:

„Í morgun kvaddi elsku amma Lísa. Hún fékk covid-19 og um tíma leit út fyrir að hún væri á bata­vegi en svo breytt­ist það skjótt og síð­ustu daga var ljóst að það stefndi í þetta. Amma varð tæp­lega 81 árs. Hún var dag­mamma í fjölda ára og end­aði svo starfsævi sína á leik­skóla, enda­laust barn­góð og ljúf og góð.

Ég var heppin og bjó í næsta húsi við þau afa frá níu ára aldri og naut þess að líta við eftir skóla langt fram á ung­lingsár – fá kaffi­tíma, hjálpa til með dag­mömmu­börnin, spjalla og jafn­vel spila smá Nintendo með ömmu. Ég er enda­laust þakk­lát fyrir tím­ann með henni og fyrir að börnin mín fengið tæki­færi til að kynn­ast ynd­is­legu langömmu sinni.

Ég er líka óend­an­lega þakk­lát fyrir englana á A6 sem vöktu yfir henni í þessum erf­iðu aðstæðum og sinntu henni af ein­stakri hlýju, horfðu með henni á snöpp sem við sendum til hennar og hjálp­uðu henni að hringja eitt óvænt stór­fjöl­skyldu­mynd­sím­tal áður en henni fór að versna. Þau klæddu okkur líka í geim­gall­ana og hug­hreystu okkur þegar við fengum eitt og eitt að koma inn á deild­ina til að kveðja í þessum súr­r­eal­ísku aðstæðum, gerðu sitt allra besta og rúm­lega það í glöt­uðum aðstæðum.

Þessi veira er ömur­leg og verður að taka alvar­lega, haldið ykkur heima og gerið það sem á og þarf að gera til að halda áfram að tækla þennan far­aldur! Bústaður, bíltúr, kaffi­boð og það allt má bíða. Ég vildi óska að við fjöl­skyldan gætum hist í dag og knús­ast og rifjað upp góðar minn­ingar en það er bara ekki í boði eins og er svo ég knúsa bara krakk­ana og minn­ist elsku bestu ömmu hér heima.“

Mæðgurnar Annalísa og Anna Margrét

„Það eru margir sem munu minnast elsku mömmu með mikilli hlýju og kærleika.“

Anna Margrét Ólafs­dóttir, dóttir Önnulísu, móðir Ragn­heiðar, minn­ist móður sinnar sömu­leiðis og seg­ist gríð­ar­lega þakk­lát fyrir að hafa haft hana hjá sér í tæp 60 ár. „Nú þegar ég sit hér heima með kveikt á kerti fyrir hana og borða kruður að dönskum sið eins og mamma gerði hvern ein­asta dag birt­ast alls konar minn­inga­brot úr æsku sem ylja strax og munu gera áfram. Mamma helg­aði líf sitt börnum og vissi fátt betra en að hafa barna­hóp í kringum sig. Pabbi var sjó­maður og oft lengi í burtu þannig að hún sá að miklu leyti ein um upp­eldið á okkur systkin­unum og við vorum alltaf í fyrsta sæti hjá henni, þá og alla tíð,“ segir Anna Margrét.

Annalísa var dag­móðir þegar Anna Margrét ólst upp og segir hún ófá börn hafa notið kær­leika og hlýju móður sinnar, sem átti síðan far­sælan starfs­feril á leik­skól­anum Skóg­ar­org þar til hún á eft­ir­laun. „Það eru margir sem munu minn­ast elsku mömmu með mik­illi hlýju og kær­leika.“

Annalísa lá í tæpar þrjár vikur á A6 með sjúk­dóm­inn og leit út fyrir í síð­ustu viku að hún væri að sigra bar­átt­una og jafn­vel talað um útskrift.

„Hún fékk hins vegar um helg­ina hjarta­á­fall sem var of alvar­legt fyrir veikan lík­amann og við tók líkn­andi með­ferð.“

Þakklát fyrir að geta kvatt

Þakkar Anna Margrét starfs­fólk­inu á A6 fyrir störf þeirra og að hafa gert allt sem þau gátu til að gera henni og öðrum fjöl­skyldu­með­limum kleift að kveðja Önnulísu.

„Það er búið að vera erfitt fyrir okkur í fjöl­skyld­unni að þurfa að kveðja mömmu í þessum sturluðu aðstæðum og geta ekki verið hjá henni síð­asta spöl­inn nema stutta stund í einu en starfs­fólkið á A6 hefur gert allt sem í þeirra valdi stendur og rúm­lega það til að gera þetta bæri­legra þrátt fyrir að klár­lega hafi það aukið álagið á deild­inni sem er gríð­ar­legt fyrir. Við fengum að koma í heim­sókn og upp­lifunin mín var eins og ég væri auka­leik­ari í hryll­ings­mynd bíð­andi eftir „cut“ skipun frá leik­stjór­anum þegar ég gekk inn í rýmið þar sem smit­aðir ein­stak­lingar voru. Ég vona heitt og inni­lega að sem fæstir aðstand­endur þurfi að kveðja sína nán­ustu við þessar aðstæður,“ segir Anna Margrét.

„Við þurftum að sjálf­sögðu að vera í fullum hlífð­ar­bún­ingi eins og starfs­fólkið og það var erf­ið­ara og mun óþægi­legra en ég hefði nokkurn tím­ann getað ímyndað mér og mjög streitu­vald­andi. Ég átta mig nú mun betur á aðstæð­unum sem starfs­fólkið vinnur við allan sól­ar­hring­inn og sendi því mínar hlýj­ustu kveðjur og þakk­læti.“

Kvaddi móður sína hinstu kveðju í gegnum myndspjall

Anna Margrét segir að með aðstoð tækn­innar hafi fjöl­skyldan getað haldið sam­bandi við móður hennar, en þær kvödd­ust hinstu kveðju í gær­kvöldi í gegnum mynd­spjall á Facebook.

„Nútíma­tæknin gerði það að verkum að við náðum að halda fjar­sam­bandi sem ég veit að gladdi mömmu mikið. Á kvöldin var Snapchat skoðað með henni en við vorum dug­leg í fjöl­skyld­unni að senda henni kveðjur á þann hátt. Eitt kvöldið fengum við facebook mynd­spjall og gátum séð mömmu og spjallað við hana í góða stund. Í gær­kvöldi fékk ég að kveðja mömmu í gegnum facebook mynd­spjall og var það mér ómet­an­legt.“

Þakklát starfsfólki A6

„Við fjöl­skyldan erum starfs­fólki A6 gríð­ar­lega þakk­lát og vitum að elsku mamma var þar í góðum og hlýjum höndum. Ég þakka elsku mömmu fyrir árin 60 og er viss um að elsku Pétur minn, pabbi, Stella systir hennar og svo mor­mor og mor­far hafi tekið vel á móti henni í sum­ar­land­inu. Það er erfitt að við afkom­endur mömmu getum ekki verið saman, hug­hreyst og knúsað hvert annað en aðstæð­urnar í sam­fé­lag­inu í dag eru óraun­veru­legar og for­dæma­lausar og koma í veg fyrir það sem verður erfitt en við munum engu að síður kom­ast í gegnum þetta saman því við erum mjög náin og sam­rýnd fjöl­skylda. Guð geymi elsku bestu mömmu mína og gefi okkur sem syrgjum hana æðru­leysi og styrk,“ segir Anna Margrét.

Mannlíf vottar ætt­ingjum og vinum Önnulísu inni­lega samúð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi