Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Icelandair sagt fara gegn tilskipun Bandaríkjamanna

Icelandair sagt fara gegn tilskipun Bandaríkjamanna

Banda­rísk stjórn­völd hafa gefið út til­skipun þar sem ítrekað er við flug­fé­lög að far­þegar sem hafa keypt flug­ferð sem er aflýst eða breytt vegna kór­ónu­veirunnar eigi rétt á end­ur­greiðslu. Ekki megi bjóða far­þegum inn­eign í stað­inn. Athygli vekur að á sama tíma og banda­rísk stjórn­völd senda til­skip­un­ina frá sér kynnir Icelandir nýja tækni­lausn sem sendir við­skipta­vinum upp­lýs­ingar um að flugi hafi verið aflýst og boð um inn­eign.

Banda­ríska sam­göngu­ráðu­neytið hefur sent frá sér til­skipun til flug­fé­laga þar sem þau eru minnt á að í ljósi ástands­ins sem ríki vegna Covid-19 far­ald­ur­ins eigi far­þegar rétt á end­ur­greiðslu verði röskun á flugi. Gripið verði til aðgerða gegn flug­fé­lögum sem fari ekki eftir til­skip­un­inni. Heim­ilda­maður sem gjör­þekkir flug­rekstur segir í sam­tali við Mannlíf að til­skipun banda­ríska sam­göngu­ráðu­neyt­is­ins geti sett Icelandair í erf­iða stöðu. Félagið hafi ekki end­ur­greitt far­þegum ferðir sem hafa fallið niður vegna Covid-19 en verði nú að gera það sam­kvæmt þessu, vilji það eiga kost á því að flytja áfram far­þega til og frá Banda­ríkj­unum.

Í til­skipun sam­göngu­ráðu­neyt­is­ins sem það sendi frá sér á föstu­dag er ítrekað við flug­fé­lög að far­þegar, sem eiga m.a. flug til eða frá Banda­ríkj­anna, eigi rétt á fullri end­ur­greiðslu verði röskun á flugi. Þar segir að ráðu­neyt­inu hafi borist fjöldi fyr­ir­spurna frá far­þegum sem hafi ann­að­hvort ekki fengið far­miða end­ur­greidda þótt flugi þeirra hafi verið breytt eða aflýst eða þeim hafi verið boðnir flug­punktar eða inn­eign í stað­inn. Hvort tveggja gangi þvert á til­skip­un­ina. Segist ráðu­neytið ætla að veita flug­fé­lögum svig­rúm til að fara eftir til­skip­un­inni, það muni fylgj­ast vel með fram­vindu mála og grípa til aðgerða ef þess ger­ist þörf.

Fyrr­nefndur heim­ilda­maður Mannlífs segir að skilja megi til­skip­un­ina sem svo að þau flug­fé­lög sem ekki fari eftir henni fái ein­fald­lega ekki að flytja far­þega til eða frá Banda­ríkj­unum. Hann segir þetta setja Icelandair í erf­iða stöðu fjár­hags­lega. Upp hafi komið mál þar sem Icelandair hafi ekki end­ur­greitt far­þegum sínum vegna nið­ur­felldra flug­ferða í tengslum við Covid-19 far­ald­ur­inn, en nú eigi og verði félagið að gera það sam­kvæmt þess­ari til­skipun ráðu­neyt­is­ins, vilji það flytja áfram far­þega til og frá Banda­ríkj­unum.

Hann furðar sig enn­fremur á því að á sama tíma og banda­ríska sam­göngu­ráðu­neytið sendir frá sér til­skip­un­ina, þar sem flug­fé­lög eru minnt á að í ljósi ástands­ins eigi far­þegar rétt á end­ur­greiðslu verði röskun á flugi, þá skuli Icelandair kynna til sög­unnar nýja tækni­lausn sem gerir fyr­ir­tæk­inu kleift að aflýsa ferðum lengra fram í tím­ann en hægt hefur verið hingað til. Lausn sem sendir við­skipta­vinum upp­lýs­ingar um að flugi hafi verið aflýst og boð um inn­eign. Með hlið­sjón af til­skipun banda­ríska sam­göngu­ráðu­neyt­is­ins megi segja að þessi „töfra­lausn sé ólög­leg“ gagn­vart far­þegum á leið til eða frá Banda­ríkj­unum.

Neytendasamtökin gagnrýna tæknilausn Icelandair

Mannlíf ræddi málið við Breka Karlsson, for­mann Neyt­enda­sam­tak­anna, sem bendir á að þessi til­skipun banda­ríska sam­göngu­ráðu­neyt­is­ins sé sam­bæri­leg við reglu­gerð Evr­ópu­sam­bands­ins. Þar sé tekið fram að far­þegar eigi þrenns konar rétt þegar flug­fé­lag breytir eða aflýsir flugi; þ.e. að félagið bjóð­ist til að bóka handa far­þeg­unum annað flug á sama­bæri­legan áfanga­stað á sam­bæri­legum tíma, eða bjóði þeim inn­eign­arnótu eða end­ur­greiðslu. Breki segir að með hlið­sjón af þess­ari reglu­gerð Evr­ópu­sam­bands­ins hafi Neyt­enda­sam­tökin einmitt gert athuga­semd við þessa fyrr­nefndu tækni­lausn frá Icelandair.

„Þegar Icelandair kom fram með þessa lausn, settum við nánar til­tekið út á það við Icelandair að þessi rétt­indi neyt­enda skyldu ekki koma fram í tölvu­pósti sem félagið sendi á fólk, og við höfum undir höndum; þ.e. við settum út á það að í tölvu­póst­inum skuli félagið bara greina frá þess­ari inn­eign sem fólk býðst, ef breyt­ingar verða á flugi, en það greini ekki frá rétt­inum til ann­ars flugs eða end­ur­greiðslu.“

„Þegar Icelandair kom fram með þessa lausn, settum við … út á það við Icelandair að þessi rétt­indi neyt­enda skyldu ekki koma fram í tölvu­pósti sem félagið sendi á fólk, og við höfum undir höndum.“

Breki segir Neyt­enda­sam­tökin enn fremur hafa sett út á fram­setn­ingu tækni­lausnar Icelandair. „Við kvört­uðum yfir því við félagið sjálft og komum því á fram­færi á heima­síðu okkur að á heima­síðu Icelandair væri miklu auð­veld­ara fyrir fólk að velja inn­eign en að fá end­ur­greitt. Maður þarf bara að smella á einn stað til að fá inn­eign­arnótu, en maður þarf aftur á móti að fara inn á nýja vef­síðu og slá þar inn allar upp­lýs­ingar ætli maður að fá end­ur­greiðslu. Það er gert mun flókn­ara.“

„Ekki flugfélagsins“

Fjöl­miðlar hafa und­an­farið fjallað tölu­vert um rétt­indi flug­far­þega á tímum kór­ónu­veirunnar. Í frétt sem birt­ist á Vísi 13. mars kom fram að Sam­göngu­stofa meti það svo að þeir sem hafa keypt sér flug­miða í ferðir sem hafa verið felldar niður vegna far­ald­urs­ins eigi rétt á end­ur­greiðslu. Samhliða þessu vakti Vísir athygli á því að mat Sam­göngu­stofu virt­ist stang­ast á við skiln­ing Boga Nils Boga­sonar, for­stjóra Icelandair, ef marka mátti ummæli sem Bogi lét falla í fréttum Stöðvar 2 kvöldið áður. Þar sagði Bogi: „Ef far­þeg­inn hefur ekki heim­ild til þess að fljúga til ákveð­ins lands þá er það í raun far­þeg­ans, má segja. Þetta er ekki eitt­hvað sem við höfum stjórn á. Það hefur verið þannig hjá okkur og öðrum flug­fé­lögum að ef far­þegi hefur ekki leyfi til að fljúga til ákveð­ins lands og fær ekki land­vist­ar­leyfi er það í raun ekki flug­fé­lags­ins.“

Sama dag og Vísi birti frétt sína kom Ásdís Ýr Pét­urs­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Icelandair, því á fram­færi við Vísi að mis­skiln­ings gætti varð­andi svör Boga við spurn­ingum um end­ur­greiðslu­rétt far­þega. Sagði Ásdís rangt að Bogi hefði farið með fleipur eins og sagði í fyrri útgáfu frétt­ar­innar á Vísi: „Ef Icelandair fellir niður flug á far­þegi rétt á end­ur­greiðslu. Það er skýrt og er Bogi ekki að vísa í slík til­felli,“ sagði Ásdís við frétta­stofu Vísis og bætti við: „Það sem hann á við er að ef við­kom­andi flug er á áætlun er það á ábyrgð far­þeg­ans að hafa til­skilið land­vist­ar­leyfi, hvort sem um er að ræða vega­bréfs­á­ritun eða, í þessu til­felli, að fylgja því komu­banni sem er í gildi í Banda­ríkj­unum.“ Fréttin var upp­færð með ábend­ingu upp­lýs­inga­full­trú­ans.

Breki Karlsson segir í sam­tali við Mannlíf að Neyt­enda­sam­tökin séu með fjölda mála og hafi fengið til­kynn­ingar um önnur þar sem Icelandair hefur ekki end­ur­greitt far­þegum sínum vegna nið­ur­felldra flug­ferða í tengslum við kór­ónu­veiruna innan til­skil­inna sjö daga, sam­kvæmt reglu­gerð Evr­ópu­sam­bands­ins. Samkvæmt Breka eru málin til skoð­unar.

Ekki náð­ist í Boga Nils Bogason, for­stjóra Icelandair, eða Ásdísi Ýr Pét­urs­dóttur, upp­lýs­inga­full­trúa Icelandair, við vinnslu frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi