Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ester Ósk lést af slysförum – Söfnun hafin til styrktar ungum syni hennar

Ester Ósk lést af slysförum – Söfnun hafin til styrktar ungum syni hennar

Ester Ósk Liljan Ósk­ars­dóttir lést af slys­förum 14. febr­úar, aðeins 38 ára að aldri. Ester Ósk lenti í hræði­legu slysi deg­inum áður og komst aldrei til með­vit­undar.

Ester Ósk lætur eftir sig einn son, Arnar Óla, 14 ára.

Yngri systir Esterar Óskar, Vilborg Helga, minn­ist systur sinnar sem bestu vin­konu sinnar, sálu­fé­laga og trún­að­ar­vin­konu.

„Hún var risa stór karakter eins og allir vita. Ég elska hana eins mikið og hægt er og miklu meira en nokk­urn­tím­ann það og mun gera allt sem í mínu valdi stendur til að halda minn­ingu hennar á lofti, standa mig í því sem hún var stolt­ust af í mínu fari og það er að vera besta útgáfan af sjálfri mér til að vera eins góð móðir og ég mögu­lega get,“ segir Vilborg Helga.

Vilborg Helga á dótt­ur­ina Svan­borgu Ósk Liljan, sem er guð­dóttir Esterar Óskar og segir Vilborg Helga Svan­borgu Ósk og Ester Ósk hafa verið perlu­vin­konur og dóttur hennar hafa elskað Esteri Ósk meira en allt.

„Það sem ein­kenndi Ester mest er það hvað hún var ljúf, góð og með risa­stórt hjarta. Sá það besta í öllum án þess að dæma nokkra mann­eskju,“ segir Vilborg Helga.

Söfnunarreikningur fyrir Arnar Óla

Arnar Óli, sem verður 15 ára síðar á árinu, var elsk­aður heitt af móður sinni. „Hún elskaði hann af öllu hjarta og vildi ekk­ert meira en að sjá hann vaxa og dafna á heil­brigðan hátt,“ segir Vilborg Helga.

Vinir og jafn­aldrar Esterar Óskar hafa stofnað söfn­un­ar­reikn­ing, ætl­aðan syni hennar; og verður styrk­ur­inn lagður inn á lok­aðan fram­tíð­ar­reikn­ing á hans nafni, sem mun nýt­ast honum á lífs­leið­inni eftir 18 ára aldur.

Þeir sem vilja sýna sam­hug og leggja söfn­un­inni lið geta lagt frjáls fram­lög inn á eft­ir­far­andi reikn­ing á nafni Arnars Óla, sonar hennar.

Reikn­ings­upp­lýs­ingar: 0552-18-000236
Kennitala: 160805-3070

Liljurnar fjórar

Vilborg Helga og Ester Ósk völdu að taka upp Liljan nafnið eftir dóttur Vil­borgar Helgu,  og síðan gáfu þær móður þeirra Liljan nafnið líka.

„Við vorum Lilj­urnar 4 og það var sárt að þurfa að kveðja 1 Liljuna okkar. Ég vil ekki trúa þessu og mun lík­leg­ast ekki gera það í bráð. Ég veit ekki hvernig ég mun fara að í þessu lífi án bestu vin­konu minnar en trúi því að hún muni hjálpa mér í gegnum þetta allt saman. Þetta gerð­ist alltof hratt og erfitt að með­taka. Hjartað mitt er í þús­und molum og allir sem þekktu okkur vita að ég og Ester vorum eitt, í einu og öllu. Hún var hinn helm­ing­ur­inn minn og ég hennar, við gerðum ekk­ert án þess að ráð­færa okkur við hvor aðra og finnst mér erfitt að geta ekki hringt í hana og spurt hvernig í ósköp­unum ég eigi að díla við þessa sjúk­lega miklu sorg. Ester Ósk Liljan ég elska þig til tungls­ins og til­baka enda­laust í hringi og miklu meira en það.“

„Það er ekki hægt að kveðja börnin sín“

„Ester Ósk eign­að­ist einn son,Arnar Óla árið 2005 sem hún elskaði út fyrir allt og þurfti hann að kveðja móður sína, en Arnar Óli er aðeins 14 ára gam­all og á lífið framundan með föður sínum Þórarni Stef­áns­syni og er ynd­is­legt að sjá og fylgj­ast með hvað það er kært á milli þeirra feðga og óska ég þeim alls hins besta á lífs­ins göngu og auð­vitað fær amma að fylgj­ast með.

Það er ekki hægt að kveðja börnin sín og ég veit ekk­ert hvernig ég á að fara að þessu en Arnar Óli er lif­andi eft­ir­mynd móður sinnar sem fyllir hjarta mitt gleði í hvert sinn sem ég sé hann,“ segir Svanborg Liljan Eyþórs­dóttir, móðir Esterar Óskar og Vil­borgar Helgu.

„Við dóttur mína segi ég, ég elska þig enda­laust og út fyrir allt. Þú fædd­ist á konu­dag­inn og lést á val­ent­ínus­ar­dag­inn elsku hjartað mitt. Lífið verður aldrei eins án þín. Takk fyrir allt hingað til og þangað til næst. Þín mamma.“

Mæðgurnar vilja þakka öllum við­bragðs­að­ilum fyrir þeirra störf, lög­reglu,sjúkra­flutn­inga­mönnum,ynd­is­legu starfs­fólki sjúkra­húss Akraness, ynd­is­legu starfs­fólki gjör­gæslu­deildar Land­spít­al­ans Fossvogi og séra Úrsúlu Árna­dóttur.

Þær vilja einnig þakka þeim sem hafa sýnt fjöl­skyld­unni samúð og kær­leika og gefið þeim styrk til að takast á við sorg­ina og halda áfram á lífs­ins braut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi