Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Þetta er svakalegt högg“

„Þetta er svakalegt högg“
Stjarnan hafði kostað miklu til í þeirri við­leitni að verða Íslands­meist­ari í vor. Liðið vann flesta leiki í deild­ar­keppn­inni í vetur.||Böðvar Guð­jóns­son

Nokkur félög í Dom­in­os­deild karla lögðu mikið undir í vetur. Rekst­ur­inn hleypur á tugum millj­óna en úrslita­keppnin sem núna hefur verið blásin af var helsta tekju­lindin. Formenn þriggja stórra félaga eiga von á breyttum reglum um fjölda útlend­inga.

Það var stjórn­endum körfuknatt­leiks­deilda þeirra liða sem voru á leið í úrslita­keppn­ina gíf­ur­legt áfall þegar í ljós kom í vik­unni að körfuknatt­leiksver­tíð­inni væri form­lega lokið. Nokkur félög í Dom­in­os­deild karla höfðu kostað miklu til en úrslita­keppnin, sem fram undan var í apríl, er helsta tekju­lind tíma­bils­ins. Formenn körfuknatt­leiks­deilda þriggja af stærstu félög­unum telja nær úti­lokað að deildin verði spiluð með sama sniði á næsta tíma­bili. Þeir segja allir lík­legt að fjöldi útlend­inga verði tak­mark­aður með ein­hverjum hætti.

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs kost­aði keppn­is­tíma­bilið sumar af þeim körfuknatt­leiks­deildum sem mest lögðu undir allt að 40 til 50 millj­ónir króna. Dæmi eru um að félögin hafi ekki getað greitt leik­mönnum laun á réttum tíma en dýr­ustu leik­menn­irnir fá á bil­inu 450 til 600 þús­und krónur á mán­uði, eftir því sem Mannlíf kemst næst. Örfá dæmi eru um hærri upp­hæðir.

Til við­bótar við þá stað­reynd að engin úrslita­keppni er fram undan hefur kór­ónu­veiran gert það að verkum að tvö lið í deild­inni, Keflavík og Njarðvík, hafa farið á mis við háar fjár­hæðir. Það gerð­ist þegar Nettó-mót­inu var aflýst en það er árviss við­burður. Heim­ildir Mannlífs herma að hvor deild um sig hafi farið á mis við sjö til átta millj­ónir króna.

„Þetta eru miklir peningar“

„Þetta er svaka­legt högg,“ segir Hilmar Júl­í­us­son, for­maður körfuknatt­leiks­deildar Stjörn­unnar um nið­ur­stöðu KKÍ. Hann tekur þó fram að ákvörð­unin hafi verið óum­flýj­an­leg.

Úrslita­keppnin sé afar mik­il­væg tekju­lind. „Þetta eru miklir pen­ingar; ekki bara vegna miða­sölu heldur líka sjoppan, ham­borg­ara­sala, auk þess sem við höfum verið með við­burði á Dúllubar fyrir og eftir þessa leiki. Þetta er ansi mikið,“ segir hann. Hilmar áætlar að á tveimur til þremur leikjum í úrslita­keppni komi jafn­mikið í kass­ann og á öllum ell­efu heima­leikjum tíma­bils­ins í deild­ar­keppn­inni.

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs getur inn­koman af vel sóttum heima­leik í úrslita­keppni hlaupið á þremur til fimm millj­ónum, þegar allt er talið. Einn leikur getur því staðið undir rekstri deild­ar­innar í heild í mánuð, hjá þeim félögum þar sem mest er lagt undir. „Ef við gæfum okkur að við færum alla leið værum við að spila sex til níu heima­leiki.“

Veikari til leiks á næsta tímabili

Hilmar segir að Stjarnan hafi búið sig undir þessa ákvörðun KKÍ og verið búin að senda þá útlend­inga sem voru á mála hjá félag­inu heim. Hann segir að þessi nið­ur­staða hafi í för með sér að félögin komi veik­ari til leiks á nýju tíma­bili í haust. „En við erum ekk­ert í skelfi­legum málum til að loka þessu tíma­bili,“ segir hann þó kok­hraustur. Hilmar á von á því að tími fjög­urra til fimm útlend­inga í liði sé lið­inn. Hann bendir á að yfir 40 útlend­ingar hafi verið á mála hjá félög­unum 12 í deild­inni. Það sé ekki gott til fram­tíðar fyrir íslenskan körfu­bolta. „Við munum sjá allt annað lands­lag á næst­unni.“

„Auðvitað er maður hund­fúll,“ við­ur­kennir Hilmar en Stjarnan vann flesta leiki allra liða í deild­ar­keppn­inni í vetur. Hann segir að Stjarnan muni þó vera með sterkt lið á næsta keppn­is­tíma­bili. „Það eru allir með óbragð í munn­inum og það er óklárað verk­efni fram undan,“ segir hann en KR hefur orðið Íslands­meist­ari hjá körlunum sex ár í röð.

Ingvi Þór Hákon­ar­son, for­maður körfuknatt­leiks­deildar Kefla­víkur, telur að fimm millj­ónir vanti til að gera upp tíma­bilið.

Segir vanta fimm milljónir

Ingvi Þór Hákon­ar­son, for­maður körfuknatt­leiks­deildar Kefla­víkur, ber sig vel þrátt fyrir þessa súru nið­ur­stöðu. Hann tekur undir með Hilmari að þetta hafi verið eina færa nið­ur­staðan. Hann bendir á að leik­menn­irnir hafi verið með samn­ing út deild­ar­keppn­ina en síðan sé greitt fyrir hvern dag í úrslita­keppni. Þeir sitji því ekki uppi með launa­kostnað fyrir kom­andi vikur.

„Maður er enn að melta þetta,“ segir Ingvi Þór um stöðu mála. „Við vorum í fyrsta skipti í mörg ár með lið sem hefði getað barist um tit­il­inn hjá körlunum. Það var allt lagt í þetta núna. Þetta er mjög súrt og maður er enn að átta sig á að það sé búið að flauta þetta af.“ Hann hefur svip­aða sögu að segja þegar kemur að mik­il­vægi úrslita­keppn­innar fyrir tekjur félags­ins. Spurður hvað mikið vanti upp á svo hægt sé að gera upp keppn­is­tíma­bilið svarar hann því til að ef til vill séu það um fimm millj­ónir króna. Það eigi þó eftir að koma betur í ljós. „Við höfum fundað nær dag­lega og ætlum að reyna að fara í ein­hverjar fjár­afl­anir,“ segir hann en Keflavík hefur einnig haldið úti öfl­ugu kvenna­liði. Þar er launa­kostn­aður minni, eins og hjá öðrum félögum.

Ingvi Þór er líka á því að fyr­ir­komu­lagið þegar kemur að útlend­ingum í Dom­in­os­deild­unum muni senni­lega taka breyt­ingum. Hann von­ast til að félögin komi sér saman um lend­ingu hvað það varðar. „Maður verður að reyna að vera bjart­sýnn.“

Vill samkomulag um færri útlendinga

„Það er ekk­ert annað hægt að gera en að sætta sig við þessa nið­ur­stöðu,“ segir Böðvar Guð­jóns­son, for­maður körfuknatt­leiks­deildar KR, í sam­tali við Mannlíf. KKÍ blés í vik­unni af allar keppnir en KR átti lið í fremstu röð í bæði kvenna- og karla­flokki. KR-ingar hafa orðið Íslands­meist­arar í karla­flokki sex ár í röð. Þeir höfðu lagt mikið í söl­urnar fyrir þetta tíma­bil einnig. Margir reynslu­miklir atvinnu­menn spil­uðu í vetur hjá KR, sumir þeirra eru á síð­ustu metrum fer­ils síns. Félagið stefndi á sjö­unda tit­il­inn í röð.

Böðvar hefur áhyggjur af fram­tíð lands­liðs­ins ef Íslend­ingar halda áfram að sitja á bekknum.

„Þetta er mikið högg. Nú er engin úrslita­keppni og engar tekjur,“ segir Böðvar um stöð­una. Hann segir að félögin þurfi að koma sér saman um stefnu þegar kemur að fjölda útlend­inga. KR hafi notið þess að vera aðeins með tvo vegna góðs upp­eld­is­starfs. „Það er ekki íslenskum körfu­bolta til fram­dráttar að hafa fjóra til fimm útlend­inga í lið­unum og láta Íslend­ing­ana sitja á bekknum. Hvernig verður þá lands­liðið eftir tíu ár?“ Hann bætir við að þessi mál þurfi að ræða hvað kvenna­deild­ina varðar líka. „Því miður er það þannig að aðsóknin á kvenna­leik­ina er ekki eins mikil og á karla­leik­ina.“

Hann segir að margir KR-ingar séu í öðrum liðum og spyr sig nú, þegar deildin standi á kross­götum, hvort tími sé kom­inn til að taka upp sím­ann. „Það er spurn­ing hvort maður þurfi að taka KR-sím­talið og kalla menn heim.“

Hann spyr sig hvort félögin geti sótt ein­hvern stuðn­ing til ríkis eða sveit­ar­fé­lag­anna, vegna þess­arar stöðu. „Kannski þarf að koma ein­hver stuðn­ingur inn í félögin til að geta haldið áfram,“ segir hann. „Við erum að skoða tölur og reikna út hvað við töpum miklu á þessu, miðað við þrjú síð­ustu ár,“ segir Böðvar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi