Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigmundur segir að nú þurfi ríkisstjórnin að stjórna: „Dugar ekki lengur að fela sig á bak við sérfræðinga“

Sigmundur segir að nú þurfi ríkisstjórnin að stjórna: „Dugar ekki lengur að fela sig á bak við sérfræðinga“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, kallar eftir aðgerðum rík­is­stjórn­ar­innar, vegna útbreiðslu COVID-19, í pistli sem hann birtir í Morg­un­blað­inu í dag undir yfir­skrift­inni Nú þarf stjórnin að stjórna.

Hann segir að nú þurfi stjórn­völd að bregð­ast við með „mjög afger­andi hætt“ í stað þess að „fela sig á bak við sér­fræð­inga“. „Það dugar ekki lengur að fela sig á bak við sér­fræð­inga.“

Hann segir að efna­hags­leg áhrif vegna útbreiðslu COVID-19 geti orðið mikil hér á landi. „Þetta kallar á afdrátt­ar­laust inn­grip stjórn­valda. Það mun þurfa að lækka skatta á fyr­ir­tæki og e.t.v. veita þeim aukið svig­rúm til skila. Bankar þurfa að vinna með fyr­ir­tækjum til að gera þeim kleift að standa í skilum frekar en að yfir­taka þau. Íslensk fyr­ir­tæki hafa lengi ofgreitt trygg­inga­gjald. Nú þarf að snúa því dæmi við og leyfa fyr­ir­tækj­unum að njóta góðs af þeim trygg­ingum sem þau hafa lagt inn fyrir til að lág­marka upp­sagnir. Kerfið mun þurfa að sýna aukið svig­rúm og sveigj­an­leika. Ryðja þarf úr vegi hindr­unum. Hætta að elt­ast við menn eins og bónd­ann sem var að rækta sil­ung til sjálfs­þurftar í eigin tjörn. Leggja þess í stað áherslu á að þjón­usta þá sem vilja fram­kvæma og fram­leiða. Ríkið mun þurfa að auka fjár­fest­ingu í innviðum til að við­halda fjár­fest­ingu og atvinnustigi en á sama tíma þarf það að spara ann­ars staðar, draga úr ímynd­arpóli­tík og öðru prjáli,“ leggur Sig­mundur til í pistli sínum.

Hann segir að nú þurfi allir að leggj­ast á eitt til að lág­marka skað­ann. „Aðal­at­riðið er að rík­is­stjórnin sýni við­brögð sem eru í sam­ræmi við umfang vand­ans og til þess fallin að takast á við hann.“

Sig­mundur segir að nú þurfi rík­is­stjórnin að þora að taka ákvarð­anir. „Þegar mikið liggur við þarf rík­is­stjórn að taka af skarið, taka ákvarð­anir og þora að bera ábyrgð á þeim, enda þótt allt sem gjört er við slíkar aðstæður orki tví­mælis. Við munum veita rík­is­stjórn­inni allan stuðn­ing við að ráð­ast í nauð­syn­legar aðgerðir til að takast á við þennan for­dæma­lausa vanda. Við Íslend­ingar höfum áður náð ein­stökum árangri í að takast á við ein­stakan vanda. Nú er aftur þörf á slíkum aðgerðum,“ skrifar Sig­mundur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi