Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þrír einstaklingar greindir í dag með COVID-19

Þrír einstaklingar greindir í dag með COVID-19
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Þrjú til­felli veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómi voru greind á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala í dag. Heild­ar­fjöldi stað­festra til­fella er núna sex. Ein­stak­ling­arnir sem greindust með veiruna dag komu til lands­ins á laug­ar­dag­inn með flugi Icelandair til Kefla­vík­ur­flug­vallar frá Veróna.

Þessir þrír ein­stak­lingar, tvær konur og einn karl, eru allir á sex­tugs­aldri og búsettir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þau eru ekki mikið veik en þó með dæmi­gerð ein­kenni COVID-19 sjúk­dóms (hósti, hiti, bein­verkir).

Maðurinn sem greind­ist fyrstur Íslend­inga með veiruna var útskrif­aður af Land­spít­ala í dag og er nú í heima­ein­angrun. Allir sem hafa verið greindir með smit eru því í heima­ein­angrum við sæmi­lega heilsu.

Flug frá München of Veróna

Smit­rann­sóknateymi almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra, lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og sótt­varna­læknis vinnur nú að því að rekja smit­leiðir í tengslum við þessi nýju til­felli. Á síð­ustu tveimur dögum hefur teymið haft sam­band við um 115 ein­stak­linga. Mikill meiri­hluti þeirra var um borð í flug­vél Icelandair sem kom frá Veróna (skil­greindu hættu­svæði) á laug­ar­dag­inn.

Meiri­hluti þeirra far­þega sem komu frá München með Icelandair á sunnu­dag­inn hafði verið í Aust­ur­ríki. Hvorki Þýska­land né Aust­ur­ríki eru skil­greind hættu­svæði fyrir COVID-19 og því þurfti um  30 manna hópur að fara í sótt­kví eftir flugið frá München. Allir far­þeg­arnir sem komu frá Veróna fóru hins vegar í sótt­kví.

Staðan í dag

Í dag voru 19 sýni rann­sökuð á Land­spít­ala, þar af reynd­ust þrjú fyrr­nefnd til­felli jákvæð. Frá upp­hafi hafa um 150 sýni verið rann­sökuð. Í kringum 260 manns eru í sótt­kví á land­inu öllu. Nánari upp­lýs­ingar um heima­sótt­kví má nálg­ast á vef land­læknis. Svo gæti farið að fleiri muni þurfa að fara í sótt­kví á næstu dögum. Atvinnu­rek­endur og stjórn­endur á vinnu­mark­aði eru hvattir til að sýna stöðu þessa fólks skiln­ing.

Það er vitað að fjöldi heil­brigð­is­starfs­manna, ekki síst af Land­spít­ala er á far­alds­fæti en af hálfu Land­spít­ala er verið að kort­leggja um hve marga er að ræða. Því er lík­legt að ein­hver fjöldi heil­brigð­is­starfs­manna þurfi að fara í sótt­kví sem varir í 14 daga. Þá er ljóst að íslenskt heil­brigð­is­kerfi er við­kvæmt og það gæti orðið afdrifa­ríkt ef upp kæmi smit hjá starfs­manni. Því vilja land­læknir, sótt­varna­læknir og almanna­varnir biðla til heil­brigð­is­starfs­manna að fresta öllum utan­lands­ferðum eftir því sem kostur er meðan það skýrist hvert umfang far­ald­urs­ins verður.

Upp­lýs­ingateymi almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra vinnur að því að koma upp­lýs­ingum um COVID-19 til þeirra sem telj­ast til við­kvæmra hópa. Þetta eru t.d. aldr­aðir ein­stak­lingar og þeir sem eru með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma. Þetta verður gert í sam­ráði við sjúk­linga­sam­tök, fag­fé­lög og hags­muna­hópa þess­ara ein­stak­linga.

Unnið er að opnun far­sótt­ar­húss á Rauð­ar­ár­stíg í Reykja­vík. Til­gangur þess er að hýsa ein­stak­linga sem hafa verið útsettir fyrir smiti en eiga ekki greiðan aðgang að hús­næði hér á landi (t.d. ferða­menn). 70 her­bergi verða í hús­inu. Verk­efnið er á vegum Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og Rauða kross­ins. Í dag var kennsla og fræðsla fyrir starfs­fólk og sjálf­boða­liða Rauða kross­ins.

Sótt­varna­læknir minnir á að ein­stak­lingar, með búsetu á Íslandi, sem hafa verið á skil­greindum áhættu­svæðum, það er Ítalíu, Kína, Suður Kóreu og Íran og snúa heim eru hvattir til að halda sig heima í 14 daga eftir að þeir hafa yfir­gefið skil­greind áhættu­svæði. Erlendir rík­is­borg­arar þurfa hins vegar ekki að fara í sótt­kví þar sem að talið er að þeir séu ólík­legri að vera í nánu sam­neyti við marga ein­stak­linga og auk þess dvelja þeir yfir­leitt stutt á Íslandi. Smit­hætta frá þeim er því talin veru­lega minni en frá Íslend­ingum sem hér búa.

Ef ofan­greindir ein­stak­lingar fá ein­kenni frá önd­un­ar­færum innan 14 daga, sér­stak­lega með hita, skulu þeir hafa sam­band við Lækna­vakt­ina í síma 1700 eða sína heilsu­gæslu sím­leiðis en ekki mæta óboð­aðir á sjúk­linga­mót­tökur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi